Vinnan


Vinnan - 01.12.1943, Síða 11

Vinnan - 01.12.1943, Síða 11
ÁRNI ÁGÚSTSSON: Frelsisbarátta ráðstj órnarþj óðanna og alþjóðahyggja verkalýðshreyfingarinnar „Sjá roðann í austri hann brýtur sér braut; fram, bræður, það clagar nú senn.... “ Aldrei fremur en nú finna þessi orð skáldsins hljóm- grunn í brjóstum Islendinga. I austrinu, á sléttum Rússlands, þar sem kúgaðar þjóðir vörpuðu af sér fjötrum ófrelsis fyrir aldarfjórðungi síðan, geisa nú stórkostlegri orustur en áður eru dæmi um. Hinar ungu, frjálsu þjóðir Ráðstjórnarlýðveldanna hafa neyðzt til þess öðru sinni á 25 árum, að hverfa frá friðsamlegum uppbyggingarstörfum og taka sér vopn í hendur gegn siðleysi og grimmd þeirrar ránstefnu úreltra þj óðfélagsafla, sem ógnar menningu og frelsi alls mannkyns. íslenzka þjóðin, með menningararf sinn og söguhelgi og frelsisást í blóðinu, er snortin djúpri samúð og aðdáun á hetjulegum viðbrögðum hins nýja mannkyns, er vaxið hefur upp undir skipu- lagi sósíalismans, er ber í sér frelsisvon allra þjóða. Það hefur komið í hlut þessara ungu þjóða sósíalism- ans, að verja sig og allt, er þær hafa áunnið sér í fórn- frekri byltingu og þrotlausu umbótastarfi, gegn inn- tásarher nazistanna þýzku, öflugustu og ægilegustu stríðsvél, sem þekkzt hefur. Og um leið og þær verja sig og hinn dýrmæta frelsisarf byltingarinnar, þá tendra þær nýjar vonir í brjóstum miljónanna, sem þjást undir fargi hinna úreltu og brjálæðislegu skipu- lagshátta auðvaldsheimsins. Það er því að vonum, að meðal lýðræðissinnaðra þjóða, njóti Ráðstj órnarlýð- veldin sívaxandi aðdáunar vegna hinnar glæsilegu bar- áttu, er þau nú heyja til bjargar menningunni á örlaga- tímum hennar. Er það nú öllum Ijóst, sem sjáandi eru, að ef Rauða hersins og einingar ráðstjórnarþjóðanna hefði ekki notið við, þá væri gervöll Evrópa fallin undir blóðveldi nazismans. Þessi vitneskja veldur því fyrst og fremst, að allir þeir, sem frelsi unna og jafnrétti þrá, sjá í hetjubaráttu ráðstjórnarþjóðanna sín eigin lífs- verðmæti varin. Hver ný sókn af hálfu Rauða hersins gegn innrásarher nazista á rússneskri grund táknar al- þjóðlega sókn gegn andstæðingum frelsis og mannrétt- inda. í Rússlandi, þar sem verkalýðsvöld hafa á einum aldarfjórðungi lyft mörgum þjóðum úr dýpstu niður- lægingu margra alda kúgunar á hátt stig frjálsrar menningar, er nú barist, ekki einungis um framtíð og velferð hinna ungu, frjálsu Ráðstjórnarlýðvelda, held- ur einnig um framtíð allra annarra þjóða. Vér íslend- ingar finnum nálægð þessarar miklu baráttu vegna þess fyrst og fremst, að vér skynjum það, bæði um hyggjuvit vort og tilfinningar, að þetta er einnig bar- átta vor, baráttan um líf eða tortímingu allra þeirra verðmæta, er oss, eins og öðrum frjálsum þjóðum, eru nauðsynleg til þess að geta lifað í samræmi við eðli vort og uppruna. I öllum frjálsum löndum hljóma nú þessi orð meðal fólksins: Von vor er: Sigur Rauða hersins yfir herskörum nazistanna. Og í hinum undir- okuðu löndum felst þessi sama setning, þessi sama von, í hljóðlausum bænum hins þjáða fólks. Þjóðirnar vita það nú orðið, að það er undir styrkleika Rauða hersins komið og siðferðiskrafti ungu þjóðanna í austri, sem muna kúgun keisaratímanna og þekkja af eigin reynd hið sanna lýðfrelsi og öryggi sósíalismans, hvort það verður gyðja frelsisins eða morðingjar hennar, sem knýja á dyr fólksins að stríði loknu. Vér íslendingar eirum ekki ófrelsi. Vér elskum frelsið. En stundum getur okkur missýnst. Vegna fjar- lægðar okkar frá umheiminum hefur óvandaður frétta- flutningur, runninn undan rifjum óvandaðra sendimanna afturhaldsins, truflað skilning alltof margra á því, hve skipulag alþýðunnar í Ráðstjórnarríkjunum og upp- bygging hennar þar, er þýðingarmikil aflstöð fyrir frelsisbaráttu alþýðunnar í öllum öðrum löndum. Þetta vita forustusveitir auðvalds og afturhalds mæta vel. Sú vitneskja þeirra veldur því ekki hvað sízt, að aftur- haldið leggur stórfé fram daglega í því skyni að ó- frægja Ráðstjórnarríkin og einangra þau frá alþýðu þeirra landa, sem enn eru óleyst undan oki auðvalds- skipulagsins. En sá kínverski múr, sem nazistar og aðr- ir leiguþjónar svartasta afturhaldsins hafa gert fjár- frekar tilraunir til að hlaða upp milli alþýðu auðvalds- landanna og Ráðstjórnarlýðveldanna, er að hrynja. í j)ví mikla frelsisstríði gegn ofbeldi nazismans, sem nú er háð, hafa staðreyndirnar um afburðaþol og ein- ingu sovétþjóðanna mátt sín meir en fáránlegar lyga- fréttir afturhaldsins um sundraðar þjóðir í Austurvegi, er bíði tækifæris til þess að losna undan veldi Stalins. Hið aðdáunarverða viðnámsþol Rauða hersins gegn innrásarhernum og einhuga fórnarvilji ráðstjórnar- þjóðanna í hinni stórfenglegu baráttu alþjóðlegs eðlis, hefur opnað augu allra mannvina og frelsisunnandi VINNAN 221

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.