Vinnan


Vinnan - 01.12.1943, Page 17

Vinnan - 01.12.1943, Page 17
arlegrar samheldni tókst verkalýðnum að brjóta af samtökum sínum kúgunarfjötra fjandsamlegs ríkis- valds. Verkamannastéttin hefur í óvenjulegri eftirspurn eftir starfskröftunum fundið styrk sinn og þjóðfélags- lega þýðingu. Hún hefur neytt valds síns að nokkru. Hún hefur gert gamlan draum hrautryðjenda hreyfing- arinnar að veruleika, 8 stunda vinnudaginn, og kjörin hafa víðast verið stórum bætt, frá því sem áður var. Þetta eru stórir sigrar og þeir eru unnir fyrst og fremst af verkalýðsstéttinni sjálfri. Þeir eru ávöxturinn af framsýni og baráttuhug ungrar og framsækinnar stétt- ar, sem er æ betur og betur að skilja sitt þjóðfélagslega mikilvægi og sína sögulegu köllun. En hefur verkalýðsstéttin þá efni á að leggja hendur í skaut, hefur nokkuð það enn gerzt, sem útiloki að gamla tímanum skjóti upp aftur, ef verkalýðsstéttin er ekki á verði og gerir sínar ákveðnu ráðstafanir til tryggingar framtíðinni. Areiðanlega ekki. Við höfum aðeins stigið nokkur skref fram, nálgast ný og stórvaxnari verkefni. Og þau verkefni kosta vafalaust harðari átök og mæta skarp- ari mótstöðu af hálfu afturhaldsins í þjóðfélaginu en baráttan fyrir síðustu kjarabótunum kostaði. Það er ekkert leyndarmál lengur, að viss hluti aftur- haldsins á íslandi og opinberir talsmenn þess, eins og t. d. Jónas frá Hriflu, bíða þeirrar stundar með ó- þreyju, að unnt sé að skapa atvinnuleysi hér á landi, í líkum anda og verst þekktist á kreppuárunum fyrir styrjöldina. I skjóli hins endurborna atvinnuleysis á svo að ráðast á kaupgjald verkalýðsins og launþeganna almennt og eyðileggja önnur þau réttindi, sem áunnizt höfðu, meðan menn gátu um frjálst höfuð strokið. Gegn þessum fyrirætlunum afturhaldsins er nauðsyn- legt, að verkamenn og aðrir launþegar séu á verði. Og vörnin er ekki einhlít. Sókn til betri og fullkomnari lífskjara og krafan um atvinnuöryggi verður á næstu vikum og mánuðum að vera borin fram af öllum þeim þunga, sem alþýðusamtökin eiga yfir að ráða. Verkefnin eru hvarvetna, ef viljann til framkvæmda vantar ekki. Fiskiflotinn er úreltur og úr sér genginn og þarf nauðsynlega endurnýjunar við. Það er réttlæt- iskrafa sjómannastéttarinnar og brýnt hagsmunamál allrar þjóðarinnar, sem fyrst og fremst byggir framtíð sína og möguleika á sjávarútgerðinni. Bygging inn- lendrar skipasmíðastöðvar, er fær sé um að annazt að fullu skipabyggingar og viðgerðir er einnig aðkallandi verkefni, sem leggja ber mikla áherzlu á, að hrundið verði í framkvæmd svo fljótt sem kostur er á. Þá má og nefna húsbyggingaþörfina. Ibúðarhús vantar svo tilfinnanlega hér í höfuðstaðnum, að ekki er ástæða til að fara um það mörgum orðum. Auk þess neyðist fjöldi fólks til að búa í húsnæði, sem ekki er nokkrum siðuðum manni sæmandi. Ástandið í skólamálunum er víða alveg óviðhlítandi. I mörgum sveitum vantar alveg barnaskóla, og kenn- arar og skólabörn eru á sífelldum hrakningi, og að- stæður allar svo fjarri nútíma kröfum, sem hugsast get- ur. Og víða í bæjunum er ástandið lítið betra. Allir þekkja a. m. k. hvernig er ástatt um gagnfræðaskólana í Reykjayík, svo fleiri dæmi séu ekki nefnd. Áburðar- og sementsverksmiðj ur eru alveg tvímæla- laust brýn nauðsyn, og myndu stórspara gjaldeyri, en skapa hinsvegar atvinnu og aukna möguleika í ræktun °g byggingum. Svona mætti lengi telja. Alls staðar blasa við hin óunnu verkefni í þessu lítt numda en kostaauðuga landi. Að hér þurfi að skapast atvinnuleysi þegar „ástand- inu“ léttir, er svo mikil fjarstæða, að ekki er orðum að því eyðandi. Og verkalýðsstéttin getur undir engum kringumstæð- um sætt sig við endurborið atvinnuleysi fyrirstríðsár- anna. Reynsla hennar af því var of dýrkeypt, til þess að hún láti bjóða sér samskonar ástand á ný. Og neyti verkalýðurinn samtakamáttar síns og þjóðfélagsaðstöðu til hlítar, ræður hann yfir geysilegum mætti og mögu- leikum til áhrifa og umsköpunar. Yerkalýðsstéttin þarf almennt að gera sér það Ijóst, að hún er fjölmennasta og þýðingarmesta stétt þjóðfélagsins, og sá aðiljinn, sem öll bygging þess og framleiðsla hvílir á. En það er ekki að ófyrirsynju fyrir alþýðuna að vera á verði. Hernaðaráætlun afturhaldsins og auðkýfing- anna er ekkert launungarmál. Ófyrirleitnustu stjórn- málaspekúlantar auðvaldsins eru strax teknir til að hóta með hruninu, sem þeir hugsa sér að leiða yfir þjóð- ina, svo fljótt, sem kostur er á, til þess beinlínis að koma fram hefnd á hendur launþegastéttinni. Svo sárt sakna þeir gerðardómshlekkj anna, sem verkalýðurinn braut af samtökum sínum, sjálfum sér og öðrum laun- þegum til ómetanlegs hagræðis í stéttabaráttunni. Nú er áríðandi að verkalýðsstéttin geri sér grein fyrir hættunni í tíma. Láti ekki yfirstandandi velgengni villa sér sýn, heldur efli samtök sín og skapi sér banda- menn meðal þeirra þjóðfélagsstétta, sem skyldastra eiga hagsmunanna að gæta. Og reynist yfirstéttin ófær til að ráða fram úr vandamálunum, sem upp koma eftir styrjöldina, geti ríkisvald hennar og þjóðfélagsskipan elcki tryggt þjóðinni almennt þau lífskjör, sem siðuðum mönnum eru sæmandi, verður verkalýðsstéttin í sam- vinnu við önnur framsækin öfl í landinu að vera reiðu- búin til að létta þeim vanda af afturhaldinu, sem því kynni að reynast ofvaxinn. Bókbindarafélag Reykjavíkur hefur sagt upp samningum sínum um kaup og kjör. Samn- ingarnir eru úr gildi um næstu áramót. VINNAN 22"

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.