Vinnan - 01.12.1943, Page 24
munu hafa talaff Olgeir júlíusson frá Barffi viff Akur-
e}rri og Magnús Jónsson frá Hamarkoti. Vafalaust hef-
ur nokkur undirbúningur fariff fram áður, líklega veriff
undirbúiff lagafrumvarp og samþykkt á þessum fyrsta
fundi félagsins.
Voru allir þessir verkamenn samankomnir þarna til
þess aff stofna verkamannafélag og það gerffu þeir og
gáfu því nafnið „Verkamannafélag Akureyrarkaupstað-
ar“.
Þarna var svo kosin stjórn í félagiff og hlutu þessir
kosningu:
Jóhannes Sigurffsson formaður,
Olgeir Júlíusson ritari og
Magnús Jónsson gjaldkeri.
Lög þau, sem samþykkt voru, eru prentuff sérstak-
lega á öffrum stað í þessu blaði (bls. 236) og eru þau
hin eftirtektarverðustu, svo sem síffar verffur aff vikiff.
Áriff 1895 taka félagar Verkamannafélagsins aff
panta vörur og hafffi stjórn félagsins forgöngu um þaff,
en kosnir voru nokkrir menn henni til affstoffar, svo sem
Agúst Jónsson (faffir Olafs trésmíffameistara), Jónatan
múrari (faffir Tryggva byggingameistara) og Páll Jóns-
son (faffir Jóhannesar trésmiffs). Fékk stjórnin vör-
urnar hjá Pöntunarfélagi Eyfirffinga, og var Eggert
Davíðsson á Tjörnum sá deildarstjóri, er afhenti þeim
þær. Var þetta aff vísu í litlum stíl og fóru vöruskiptin
fram meff leynd, því aff verkamenn vildu ógjarna láta
kaupmenn vita af því, aff þeir færu meff peninga, sem
þeir ynnu fyrir hjá kaupmönnum, til pöntunarfélagsins.
En mikill var munur á vöruverffinu, svo aff viffskiptin
frjálsu voru eftirsóknarverff.
Síffsumars 1895 mun Lárus Thorarensen hafa komiff
í félagiff. Sjálfan minnir hann, aff þaff hafi þá fyrst
veriff stofnaff. Og öll líkindi eru til þess, aff þeir, sem
eigi voru í því, hafi ekki vitaff um tilveru þess, því aff
starfsemi þess hafffi veriff meff nokkurri leynd. Og eigi
þarf þaff aff brjóta í bág við leyndina, aff þaff var stofn-
aff á „Bauknum“, því að sögn eins stofnandans var Ólaf-
ur „vert“ hlynntur félagsskap þessum.
Lárus hafffi þetta haust átt í útistöffum við eina sel-
stöðuverzlunina, verið sviptur vinnu og lagffur í ein-
elti af kaupmönnum. Tekur hann nú virkan þátt í fé-
lagsskapnum, — sjálfan minnir hann, að sett hafi þá
verið nefnd til aff semja lög félagsins og hafi verið í
henni: Kristján Nikulásson, síffar lögregluþjónn, Sig-
valdi Þorsteinsson, síffar kaupmaffur, Olgeir Júlíusson.
síðar bakari, Magnús Jónsson í Garffi og Lárus sjálfur.
— og síffan hafi félagiff verið stofnað og á öffrum
fundi þess hafi veriff í þaff komnir um 100 menn, -
en ekki man hann neitt um fyrstu stjórn þess.
Líklegt þykir mér, aff félagiff hafi veriff endurlífgað
haustiff 1895, svo sem títt er um félög hér á landi
einnig síðar, lögin ef til vill endurskoffuð effa full-
komnuð, — og það sé þetta, senr Lárus man. Vera kann
og að Jóhannes hafi verið að fara burt um þetta leyti
og félagsskapurinn legið niðri.
I ársbyrjun 1896 er svo Lárus kosinn formaður félags-
ins (að líkindum er Jóhannes þá farinn), Olgeir ritari
og Kristján Nikulásson gjaldkeri. — Mun félagið að
öllum líkindum hafa starfað vel það ár og tekizt að
festa árangrana af þeim sigrum, er það vann í baráttu
sinni.
Engar fundarbækur finnast frá félaginu og minnii
Lárus, að þær hafi brunnið inni, er hús það brann á
Oddeyri, sem þær voru geymdar í.
Lög félagsins eru þó enn til eins og þau hafa veriff
Veitingahúsið
„Baukurinn6*, síðar
„Hótel Oddeyriþar
sem Vmf. Akureyrar-
kaupstaðar var
stofnað
234
VINNAN