Vinnan


Vinnan - 01.12.1943, Side 25

Vinnan - 01.12.1943, Side 25
skráö 19. apríl 1897 inn í litla bók og aftan við þau eru skráð nöfn þeirra 47, sem þá eru félagsmenn. En þá var tekið, að sögn Lárusar, að dofna yfir félaginu. og deyr það nokkuru síðar. En sjóður þess, um 80 kr., var, samkvæmt fyrirmælum laga þess, lagður á banka til geymslu ásamt reglugerð, undirskrifaðri af þeim 4 eða 5 mönnum, sem enn töldust þá félagar. Og þegar Verkamannafélag Akureyrar var stofnað, 1906, var sjóður þess afhentur því með gjafabréfi frá görnlu brautryðjendunum og skyldi hann ávaxtaður handa framtíðinni — og er hann enn geymdur og sífellt bók- færður, með eignum þess félags og nú síðast 1943 hjá hinu nýstofnaða félagi, er ber nafn fyrsta verkamanna- félags Akureyrar og íslands: Verkamannafélagi Akur- eyrarkaupstaðar. Barátta Verkamannafélagsins og tildrög stofnunar þess Höfuðverkefnin, sem Verkamannafélag Akureyrar- kaupstaðar setur sér og vinnur að, 1894—97, eru þessi: 1. Baráttan gegn skuldaþrælkuninni. 2. Baráttan fyrir 10 stunda vinnudegi. 3. Baráttan fyrir hækkuðu dagkaupi. í öllum þessum málum hefur því tekizt að vinna veru- Iega á . Baráttan gegn skuldaþrœlkuninni er, eins og bezt má sjá af lögunum, eitt aðalatriðið, sem vakir fyrir for- ustumönnum félagsskaparins. Það er eftirtektarverður frelsisandinn í þeim lagagreinum, sem um skuldirnar fjalla. Það á að forðast þær, sem heitan eldinn. Það tal- ar út úr greinunum dýrkeypt reynsla alþýðumannsins af því hve sárt skuldaokið var. „Enginn félagsmaður hefur leyfi til að semja um út- borgun kaups síns öðruvísi en eftirfarandi greinar á- kveða“ — segir í byrjun 14. greinar. — „Enginn félags- maður má taka lán upp á eigin ábyrgð með þeim skuld- bindingum, er strítt geti móti lögum félagsins, eða geta verið hættuleg fyrir efnahag hans“ — segir 17. greinin. „Aldrei má minna en þ4 ganga til lúkningar skuld hans“ segir í B-lið 14. greinar. Verkamenn skulu kapp- kosta að verða skuldlausir. Og félagið á að hjálpa þeim til þess á alla lund: „Félagið skal skyldugt til að standa í ábyrgð fyrir lánum, sem félagsmenn þurfa að taka, að svo miklu leyti sem það er fært um,“ segir 16. grein. Það er sterk samhj álpartilfinning, sem lýsir sér í þess- um greinum, sem og í ákvæðunum um varasjóð. — Og það er engum efa bundið, að þó nokkru hefur það á- orkað á þessu sviði. Baráttan fyrir 10 stunda vinnudegi er annað höfuð- atriði félagsins. í 12. gr. laganna er bannað að vinna meir en 10 tíma, nema fyrir aukaborgun, að viðlögðum brottrekstri. — Vinnutíminn var, þegar félagið hóf starfsemi sína, 12-—16 stundir á dag og dagkaupið var 2 krónur í út- tekt, hve lengi sem unnið var. — Og félaginu tókst að fá 10 thna vinnudag viðurkenndan. Það var enginn smáræðissigur, sem þar með vannst. Baráttan fyrir hœkkun dagkaupsins var þriðja höfuð- atriðið, eins og 13. gr. laganna kveður á um. Dagkaupið, sem hið nýja félag ákvað að meðlimir sínir krefðust, var 2,50 kr. fyrir 10 tíma vinnu, en aukagreiðsla fyrir eftirvinnu. Nú hófst barátta hins nýja félags við kaupmenn, sem neituðu að ganga að kröfum þessum. Munu kaupmenn hafa reynt að fá vinnukraft hjá hændum, en tókst ekki. Var hvorttveggja, að selstöðuverzlanirnar voru sízt bet- ur þokkaðar hjá bænduin en verkamönnum og svo hitt, að bændur voru sízt aflögufærir um hjú. Unnu verkamenn þann sigur í þessum átökum, að þeir fengu 10 stunda vinnudag greiddan með 2,50 kr. dagkaupi (að minnsta kosti 1. apríl til 1. nóv., en liugs- anlegt að 2 kr. dagkaupið hafi verið greitt 1. nóv. til 1. apríl) og svo 10 aurum hærri borgun á hvern eftir- vinnutíma en dagvinnutíma. Erfiðlegast gekk með greiðslu verkakaupsins í peningum, en einnig þar mun mikið hafa áunnizt. Nú skal greint frá atburði, er tvímælalaust hefur átt sinn stóra þátt í því, að þessi barátta verkamanna á Akureyri var hafin einmitt 1894. Árið 1891 hafði Skúli Thoroddsen boðið sig fram til þings í Eyjafjarðarsýslu og verið kjörinn. Er ekki að efa, að mælska hans, persónuleiki og brennandi áhugi fyrir réttindum smælingjanna hefur vakið marga al- þýðumenn til meðvitundar um rétt þann, er þeim bæri. Einkum má ætla, að hinu sterka kaupmannavaldi á Akureyri hafi í ræðum hans verið óspart sagt til synd- anna fyrir framkomu þess gagnvart verkamönnum. Á Alþingi 1893 ber svo Skúli Thoroddsen fram frum- varp til laga „um greiðslu á daglaunum verkamanna og verkakaups við verzlanir.“ í fyrstu grein þessa frumvarps segir: „Mönnum þeim, er vinna daglaunavinnu við verzlan- ir, skal góldið verkakaup í gjaldgengum peningum, en óheimil er borgun með skuldajöfnuði eða öðru, og eru allir samningar ógildir, sem þessu eru andstæðir.“ Um þetta frumvarp urðu sem vænta mátti harðar deilur á Alþingi. Það vántaði svo sem ekki, að andstæð- ingunum findist að verið væri að svipta menn frelsi með þessu frumvarpi, innleiða- „svartasta ófrelsi“ í landið og það yfir veslings verkamennina líka (það átti svo sem að vernda þá gegn svona ófrelsis-lögum!). Einn andstæðingurinn (Jón Þork.) sagði t. d.: „Hér er farið fram á að þröngva að persónufrelsi landsmanna sjálfra, með því að þvertaka fyrir samn- VINNAN' 235

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.