Vinnan


Vinnan - 01.12.1943, Page 31

Vinnan - 01.12.1943, Page 31
GUÐMUNDUR GÍSLASON HAGALÍN: BRENNIÐ ÞIÐ VITAR.... ísfirðingar hafa löngum sótt sjó af kappi, og mikl- um auðæfum hefur verið ausið upp úr djúpum sjávar- ins þar vestra. En lengi var það svo, að meginhluti gróðans af fiskveiðunum, sem alltaf kröfðu mikilla mannfórna, rann til kaupmanna og skipaeigenda í höf- uðstað Danaveldis, já, þannig var það allt þangað til fyrir örfáum áratugum. Við Djúpið eru kauptúnin þrjú, Bolungavík með 600 ibúum, Hnífsdalur með 300 og Súðavík með nokkuð á þriðja hundrað manns, og loks er þá Isafjarðarkaup- staður með 2900 íbúum. Þau rúm fjögur þúsund manna, er þarna búa, lifa fyrst og fremst á sjávarút- vegi, en auk þess eru allmargir í sumum sveitahrepp- unum við tsafjarðardjúp, sem lifa að meira eða minna leyti á sjósókn. íbúar ísafjarðarkaupstaðar eru háðastir sjónum af öllum þeim, sem Vestfirði byggja, máske þó að Vatn- eyringum og Geirseyringum í Patreksfirði undanskild- um. Kringum ísafjarðarbæ er mjög lítið ræktunarland, og það mun alltaf verða þannig, að sjávargagnið verði hjá Isfirðingum grundvöllur allrar annarrar starfsemi. Það er því svo, að þá er illa viðrar eða afli er lítill, verður þröngt fyrir dyrum hjá þeim, er byggja hinn mjóa og sérkennilega tanga, sem fyrrum var nefndur Skutulsfjarðareyri. Á árunum 1933—1938 fór saman fádæma aflatregða og sérlega lágt verð á sjávarafurð- um. Þá var erfitt um öflun nauðsynja hjá Isfirðingum og þröngt í búi hjá mörgum manninum, og auðvitað voru þessu samfara hin mestu vandkvæði fyrir bæjar- félagið. Var bæði það og allur almenningur orðið mjög aðþrengt, þá er afli jókst á nýjan leik árið 1939. Nú um nokkurra ára skeið hefur aflazt sæmilega, en gæftirnar verið misjafnar að vanda. Haustið í fyrra var með afbrigðum illviðrasamt, og svo væntu menn þess, að vetrarvertíðin mundi verða skárri. En þær von- ir brugðust herfilega. Gæftaleysið var svo hörmulegt, að elztu menn mundu vart annað eins. Voru farnir alls um 30 róðrar frá nýjári til páska — eða á tæpum fjór- um mánuðum, og margir þessara róðra gáfu lítinn arð, já, margir þeirra kostuðu offjár í veiðarfærum, en afl- inn sama og enginn. Þá urðu og mannskaðar, enda var það svo, að góðviðri hélzt sjaldnast heilan sólarhring í einu. Að kvöldi var kannske heiðríkja og stillilogn, og allir bátar reru. Fyrir hádegi daginn eftir var komið ofsaveður með frosti og augalausum byl. Mátti segja, að aðstandendur sjómanna og aðrir þeir, sem láta sér annt um þá, gætu vart nokkurn tíma verið óhræddir um líf þeirra, ef á sjó var farið, hve góðar sem veður- horfurnar virtust vera.... Það er vetrarkvöld. Logn og heiðríkja og því nær frostlaust veður. Tungl er á lofti —• og þvílík stjörnu- dýrð! Sjórinn kringum Tangann er eins og fágað silfur. Það bjarmar fagurlega á fannþaktar hlíðar, og svartar hamraþiljur fjallanna sýnast eitthvað svo dapurlegar, að það er líkt og þær fyrirverði sig fyrir sínar dökku ásjónur. Ofan við þær rísa tindar og hnúkar í tiginni ró. Glitrandi hvíta ber þá við bláhvolf himins. I logninu heyrast hlátrar út um opna glugga. Hurða- skellir kveða við, og marrandi fótatak heyrist á götum og gangstéttum. Ungar stúlkur ganga tvær og þrjár, skotra augum og tala hljóðskraf. En hér og þar um allar götur hæjarins sjást karlmenn á ferð í sjóstígvél- um, skjólklæddir menn með lítinn kassa í annarri hendi, kassa með höldu á loki. Sjómenn á leið í sjóferð. . . . Og allt í einu kveða við háværir skellir, suðandi dynur eða ólundarlegt buldur. Þessi hljóð berast frá bátahöfn og bryggjum, og ef þú nálgast þessa staði, þá leggur að vitum þér megna olíustækju, blandna söltum eimi sjáv- arins. Nú skarkar í vögnum og urgar og hvæsir í bíl- um, og frá báturn með rauðum, grænum og hvítum ljósum heyrast hróp og köll. Niður í smærri bátana er dembt stórum lóðabölum, 30—40 í hvern. Svo magnast skellirnir. Stóru bátarnir eru á leið suður undir Jökul, þeir minni út á miðin allt frá Barða- grynni og norður undir Horn. Ljósin komast á kvik, sýnast svífa í lausu lofti yfir dökkum þústum, sem ber hratt inn Pollinn, fara í stóran sveig fyrir Tangann og síðan út Sundin — áleiðis til hafs. Tvö hundruð sjó- menn eru að halda úr höfn til veiða frá ísafirði, og upp undir það eins margir samtals fara þetta sama kvöld á haf út úr þorpunum Flateyri, Suðureyri, Bol- ungavík, Hnífsdal og Súðavík. Vonandi að veðrið hald- ist! Já, skyldi það nú ekki einu sinni geta haldizt? O, VINNAN 241

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.