Heimilispósturinn - 01.11.1949, Blaðsíða 5

Heimilispósturinn - 01.11.1949, Blaðsíða 5
ANBRÉ MAUKOIS: Korinþska skrauthliðið • • r r r OLL hjonabandsar sm, sem nú voru orðin fjörutíu, höfðu þau Barchester lávarður og kona hans búið í sama hús- inu við Park Lane. En eftir stríðið tóku efni þeirra að ganga til þurrðar. Þau höfðu verið óheppin í fjármálum og einn sona þeirra hafði fallið, svo að þau urðu nú að sjá ekkju hans og börnum farborða. Auk þess urðu þau að greiða fimm skild- inga af hverju sterlingspundi í tekjuskatt. Barchester lávarður varð að horfast í augu við þá staðreynd, að hann gat ekki haldið bæði ættaróðalinu í Sussex og húsinu við Park Lane. Hann hugsaði sig lengi um, áð- ur en hann ákvað að ræða við konu sína um áhyggjur sínar. Hann var hræddur við að hryggja hana. Fyrir þrjátíu árum hafði hjónaband þeirra orðið fyrir miklum skakkaföll- um, en aldurinn hafði færzt yfir þau með rósemi sinni, umburð- arlyndi og ást. — Mér þykir það mjög leitt vina mín, sagði hann, — en ég sé aðeins eina Ieið út úr ógöng- unum, ef við eigum að geta lif- að þau ár, sem við eigum eftir, við sömu lífsþægindi og hingað til, og ég veit, að það hryggir þig að þurfa að fara þessa leið. Eg læt þig um að ákveða, hvort við reynum hana eða ekki. Hlustaðu nú á: Lóðirnar, sem iiggja hérna fram með garðin- um, hafa hækkað gífurlega í verði. Einn af nágrönnum okkar vill ólmur fá lóðina okkar, vegna þess að hún liggur eins og reit- ur inn í landareign hans. Verð- ið, sem hann býður mér, er svo hátt, að við getum ekki einasta keypt okkur annað hús hérna í hverfinu, heldur eigum við af- gangs svo mikið, að við þurf- um ekki að hafa neinar áhyggj- ur, það sem eftir er ævinnar. En ég veit, hversu vænt þér þykir um Barchester House, og ég vil ekki gera neitt, sem þér er móti skapi. Frú Barchester féllzt samt á að selja húsið, og nokkrum mán- uðum seinna höfðu gömlu hjón- in komið sér fyrir í nýju húsi, sem stóð aðeins fáein hundruð metra frá gamla húsinu, sem verkamennirnir voru þegar byrjaðir að rífa. Þegar Barc- hester lávarður og kona hans fóru í skemmtigöngu, gengu þau alltaf fram hjá gamla húsinu sínu, og það vakti þeim ein- kennilega tilfinningu að sjá það, sem hafði verið snar þáttur í lífi þeirra, ein af meginstoðum tilveru þeirra, smátt og smátt lagt í rústir. Þegar þau sáu, að búið var að rífa þakið af hús- inu þeirra, varð þeim innan brjósts eins og þau stæðu sjálf úti í roki og rigningu, án nokk- urs þaks yfir höfuðið. Það olli þó frú Barchester trega, þegar framhliðin hafði verið rifin, og hún sá, líkt og á leiksviði, her- bergið, sem Patrick, sonur henn- ? 9 9 3

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.