Heimilispósturinn - 01.11.1949, Side 9

Heimilispósturinn - 01.11.1949, Side 9
ugum tárum. Og þetta bar oft við. Og eina slíka nótt skeði það, að ég kraup á kné í rúmi mínu með krosslagðar hendur og bað þess grátandi, að dauðinn misk- unnaði sig yfir mig. Ég leit svo á, að ef ég veiktist skyndilega, væri það tákn þess, að ég hefði verið bænheyrður. En ég veikt- ist ekki. Hins vegar varð ég þess var um þetta leyti, að löngunin til að yrkja vaknaði í brjósti mínu. Fyrst orti ég fáein smá- ljóð, sem ég er nú búinn að gleyma, en fyrsta „stórverkið“, sem ég samdi, var „Maritana“. Það fjallaði um hugrakka stúlku, sem hafði samskonar skapferli og lyndiseinkunnir og Jeanne d’ Arc. Þú skilur, af fyrri lýsingu minni á hugar- ástandi mínu um þessar mundir, orsök þess, að ég orti mest megnis andleg vers um þetta leyti. En svo er forsjóninni fyrir að þakka, að þessi ljóð eru öll glötuð. Þú veizt einnig, hvernig mér varð smám sam- an ljóst, síðar meir, að mér var ómögulegt að vera lengur í her- -skólanum, sem ég fyrirleit og hafði viðbjóð á. Ég hef oft lýst fyrir þér efasemdum mínum og heilabrotum, unz ég tók loks ákvörðun. Á þessu tímabili, þegar ég lá lengst af rúmfastur, sjúkur á sálinni fremur en á líkamanum, þroskaðist skáld- gáfa mín og varð sjálfstæðari og skýrari. Og ég minnist með gleði hinna heimspekilegu kvæða minna „Satan á rústum Rómaborgar“ og „Eiðurinn“. En jafnframt því, sem skáld- gáfa mín þroskaðist, fylltist hjarta mitt tómleikatilfinningu og kuldi einmannaleikans nísti mig . . . Því næst hófst fjórða skeið ævi minnar: námsárin. Ég hafði þegar ákveðið að varpa frá mér framtíð minni sem fræði- og vísindamanns, þegar þú, hjartkæra Panicka, blést mér hugrekki í brjóst, læknaðir hina efasjúku sál mína og gafst lífi mínu inntak og markmið. Öll ævi mín, fram að þessu, finnst mér hafa verið óralangt ferðalag í þreifandi myrkri, unz ég fann þig, og sigurlaun mín eru þau að mega þrá þig og vita þig tilheyra mér eftirleiðis . . .“ Daður Valeríu við Rilke breyttist í alvöru. Rilke minnt- ist æ oftar á hjónaband í bréfum sínum, og Valerie var því ekk- ert mótfallin. Þau hittust nú oftar en áður. Hún vandist fé- lagsskap hans. Hún las með honum, hjálpaði honum að búa sig undir prófið og réð honum til að gefa út kvæði sín. Hún vildi sóla sig í bjarma skáld- frægðar hans. En þar eð enginn vildi gefa út kvæði eftir óþekkt skáld, ákváðu þau að kosta út- gáfuna sjálf. Mörg þessara kvæða voru tileinkuð Valeríu, og þess vegna seldi hún nokkra af skartgripum sínum, til þess að afla peninga upp í útgáfu- kostnaðinn. Og fyrir atbeina og peningahjálp Valeríu kom fyrsta bók Rilkes, „Líf og ljóð, myndir og dagbókarblöð“, út árið 1894 hjá Kattentidtforlagi í Strassburg. Bókin var tileink- uð Vally von Rhonfeld. Vally naut frægðarinnar eins og söng- dís á leiksviði. Hið langa nef Rilkes, þykkar varimar og ó- frítt andlitið vöktu henni ekki neinn leiða lengur. Hinsvegar fóru augu Rilkes smám saman að opnast fyrir því, hversu til- Framhald á bls. 12 ? ? ? 7

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.