Heimilispósturinn - 01.11.1949, Page 26

Heimilispósturinn - 01.11.1949, Page 26
DOROTHY WHIPPLE: Herbergi nr. 64. HÖTELIÐ var nýtt og hafði verið byggt með það fyrir augum, að það væri ekki hljóð- bært. Elísabet Marlow, sem gekk á eftir ungþjóninum eftir löngum og mannlausum gang- inum, leizt ekki á þögnina og fannst hún óhugnanleg. Lokaðar dyrnar, hitasvækjan og loft- leysið vakti einhvern ugg hjá henni. Ungþjónninn var fölur og veiklulegur eins og jurt, sem vaxið hefur í ljóslausum kjall- ara. Þegar þau stóðu við lyft- una, hafði hann horft á hana með hálflokuðum augum og spurt: „Hvaða númir þú?“ — og hann hafði endurtekið spurn- inguna eins og hann tortyggði hana. Henni leið enganvegin vel. Hún fór að velta því fyrir sér, hvort allir gestir hótelsins væru í sömu erindagerðum og hún, og hvort þjónarnir vissu það. Ungþjónnínn opnaði dyrnar á íbúð nr. 64 og kveikti ljósið. Annar þjónn kom í sömu svipan með farangur hennar, sem var ein taska. Svo skall hurðin í lás og hún var ein. Þrjú mannlaus herbergi, búin dýrum húsgögnum, blöstu við henni. Þögnin var jafn óhugan- leg og frammi á ganginum. Allt var kyrrt og hljótt nema eldglæringarnar og suðið í raf- magnsarninum. Elísabet gekk út að gluggan- um og opnaði hann. Það var eins og líf færðist inn í her- bergin með hávaðanum utan af götunni, og gluggatjöldin bærð- ust. Henni létti við að sjá ein- hverja hreyfingu. Hún fór inn í svefnherberg- ið. Abreiðan á gólfinu var svo þykk, að hún sökk í hana, silki- tjöld voru fyrir gluggunum og mýkstu dúnteppi á rúminu. Harvey hafði áreiðanlega orðinn hrifinn af herberginu og íburði þess. En henni féll það ekki í geð. Hún hafði meiri mætur á köldum litlum og ein- földum húsbúnaði. Þessi her- bergi voru eins ólík henni og þau frekast gátu verið, en hún var heldur ekki með sjálfri sér þetta kvöld. Á baðherberginu voru tvær dyr, aðrar í svefnherbergið, en hinar út á hótelganginn. Hún bar töskuna sína inn í baðher- bergið og læsti báðum dyrun- um, svo að hún gæti verið ör- ugg, þó að Harvey kæmi. * Hvaða brjálæði hafði gripið hana, að hún skyldi vera að koma hingað! Hvaða vitfirring hafði náð slíkum tökum á henni, að hún, sem hafði verið trú og dygg eiginkona Johns í fimmtán ár, skyldi nú ætla að gefa sig á vald Harveys Brown — hún, sem var orðin þrjátíu og sex ára gömul? Hún vissi, að hann var falsk- ur og að honum var ekki að treysta. Hún hafði tekið eftir 24 9 2?

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.