Heimilispósturinn - 01.11.1949, Síða 31
Larry Parks í kvikmyndinni „Jolson Story“. Sjá kvikmyndaopnu, bls. 32.
garðhliðinu og rólegt og öruggt
fótatak Johns. Hún þaut til
móts við hann. Það var langt
síðan hún hafði gert það, en
hann virtist ekki vera neitt
undrandi yfir því að hún skyldi
gera þetta kvöld.
„Já,“ sagði hann, um leið og
hann kyssti hana. „Það eru
slæmar fréttir.“
„Hvað?“ spurði hann, og
það fór allt í einu hrollur um
hana. „Hvað hefur komið fyr-
ir?“
„Nú,“ sagði hann, ,,ég hélt
að þú ætlaðir að fara að segja
mér frá því. Það er í öllum
kvöldblöðunum. Ég hélt, að all-
ir hér í borginni hefðu heyrt
um það. Harvey Brown hefur
fundizt dáinn í hótelherbergi í
London. Hjartaslag. Það var
kvenmaður hjá honum, en hún
kom sér undan. En hún skildi
eftir ýmsa muni, svo þeir finna
hana. Þeir finna hana áreiðan-
lega. Ég hefði gaman af að
vita, hver hún er. Það getur
vel verið,“ sagði hann um leið
og hann hengdi upp hattinn,
„það getur vel verið, að við
könnumst við hana.“
9 ? §
29