Heimilispósturinn - 16.12.1950, Blaðsíða 14

Heimilispósturinn - 16.12.1950, Blaðsíða 14
ing. Það varð „norður“. Borten brosti í kampinn. — Ég ræ þangað, sagði hann og svo heim- leiðina líka. Þykir gaman að róa, sterkur í handleggjunum, hef gott af að róa. Hammer leit á hann. — Já, hver f jandinn. — Þér eruð rösk- ur. — Ég gæti nú gripið í að róa líka. Þykir gaman að því. Er líka að hlaupa í spik, of lyst- ugur, hehehe. Við veiðum þá sinn hálftím- ann hvor. Hálftíminn er fljótur að líða. — Allt of fljótur, sagði Bort- en. — En hálftíma hvor er hæfi- legt. Svo gekk hann að hornskápn- um og fyllti vasapela. — Gamalt ákavíti? spurði Hammer — Mér datt þetta ein- mitt til hugar, ágætt að hafa örlítið með sér. Nota sjálfur gamalt ákavíti. Ég skal taka með mér flösku, næst. Þeir þrömmuðu út, báðir nokkuð þungir á sér. Borten há- vaxinn og miklu þunglamalegri en Hammer. Hammer var dá- lítið broslegur í allt of stórum fötum, gamall vindjakki utan yfir treyjunni stuttur, þrekinn og ólánslegur í vexti. Veiði- mannahúfur, báðir. Veiðimenn. Borten sótti veiðistöngina að húsabaki. Hammer bar ljósker- ið, ljóslaust, labbaði niður eftir stígnum, gekk hljóðlega niður að bryggjunni, leit í kringum sig, talaði ekki orð. Þeir fóru varfærnislega niður í bátinn, og Borten réri hljóðlega og hafði vafið segldúk úm árarnar í keipnum. Gott veður, örlítil gola, ágætt veiðiveður. Þeir mættu engum á sundinu, kom- ust svo norður fyrir, létu bátinn reka og hlustuðu. — Ágætt, sagði Hammer. Borten kveikti á ljóskerinu. Það logaði ágætlega. Svo hengdi hann það á krók utan á bóginn og setti bogna járnplötu yfir. Ljósið lagði niður í vatnið. — Það er eitt, sagði Borten. — Við skiptum sektinni jafnt, ef það skyldi koma fyrir. Er það ekki? — Auðvitað svaraði Hamm- er. — Auðvitað Borten. Það eru hundrað krónur í fyrsta skipti. Ég get tekið allt á mig. Það skiptir engu máli. Þetta er sann- arlega þúsund króna virði, minnsta kosti . . . — Róið þér svolítið nær landi, sagði Borten, — svona já, hægt, rólega svona já, og nú inn með landinu. Það hilti undir Borten frammi í bátnum, þar sem hann stóð álútur og einblíndi niður í sjó- inn, með veiðistöngina í árar- stöðu. Hæ, sagði hann, og stakk stíngnum snöggt niður, og dró hann hratt að sér. Stór áll var vafinn um gaffalinn og beit í stinginn. Ja, hver fjandinn . . . sagði Hammer, Uss . . . hvíslaði Borten. Róa hægt, jafnt, svona já . . . Hæ, sagði hann, stakk aftur. Fimm stundum síðar bám þeir Borten og Hammer bala á milli sín upp eftir stígnum að húsinu. — Þungt? spurði Borten. — Skrambi þungt, sagði Hammer. Nokkuð mikill sjór. Það er nú ágætt, sagði Borten. — Við gerum að í fyrramálið. Þeir 12 HEIMILISPÓSTURINIt

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.