Heimilispósturinn - 16.12.1950, Blaðsíða 21

Heimilispósturinn - 16.12.1950, Blaðsíða 21
„Ekkert!" sagði McCarey hátt. „Ég hef sagt skilið við blaða- mennskuóþverrann fyrir fullt og allt í kvöld, og þegar Gavin rekur trýnið hér inn, ætla ég að jafna um gúlana á honum." Það var eins og McCarey liði bet- ur, þegar hann var búinn að lýsa þessu yfir. Hann brosti ólundarlega, leit til dyranna, þar sem fjandmað- ur hans átti að birtast og þambaði úr glasinu, eins og hann væri að ■drekka blóð hans en ekki vínið. „Mig langar til segja þér frá þess- um þvottamanni," sagði hann, „með- al annars af þeirri ásjtæðu, að hann er að gera mig vitlausan. Hin ástæð- an er sú, að Gavin er mesta padda og kvikindi af öllum pöddum og kvik- indum, og ég hef sérstaka ánægju af því að gera honum óleik." „Þvottamaðurinn hét Meyer," héit hann áfram. „Hvaða nafn lét María Stuart rita á hjarta sitt?“ „Calais," sagði ég. „Calais," endurtók McCarey. „Jæja, nafnið Meyer rist á hjarta mitt. Mey- ar þvottamaður. Megi englarnir vaka yfir honum." „Er hann dáinn?" spurði ég. „Já, guði sé lof," sagði McCarey. „Dáinn og grafinn I akri leirkera- .smiðs." „Hvað kom fyrir hann?" spurði ég. „Mig skortir orð til að lýsa því," sagði McCarey og tárfelldi. Hann tæmdi fimmta glasið sitt þögull. „Lof mér að heyra," sagði ég. „Ég get ekki sagt þér allt," sagði hann. „Það er sumt, sem ég má ekki segja þér frá. Mér þykir það leitt:" Hann þagnaði og starði á mig íbygginn. Loks sagði hann: „Meyer dó eina nótt, fyrir mánuði síðan. Hann var tvískotinn gegnum höfuð- ið — og hægri höndin var höggvin af honum um úlnliðinn, til frekara ■öryggis. En þú mátt ekki misskilja mig. Ég harma ekki dauða Meyers. Það er líf hans, tíu árin sem hann stóð yfir þvottabalanum i Harlem, sem mig hryllir við." McCarey varð alvarlegur og gaut út undan sér augunum. Hann var lágvaxinn og horaður öldungur. Hann kom til Haiiem fyrir tíu árum og flutti inn í eina af þessum óþverraholum í Troopstræti — í kumbalda, sem var fullur af eymd og örbirgð." „Þannig var íbúð- in, sem Meyer flutti í,“ sagði Mc- Marey glottandi, eins og hann væri að hæðast að hinni skáldlegu lýsingu sinni. „Hann tók eitt herbergi á leigu hjá kerlingarskrímsli, sem heitir frú Maum. Hún er ein af þessum ó- freskjum í kvenmannslíki, sem þríf- ast bezt þar sem minnst er um mat og húsrúm, þótt ótrúlegt sé.“ McCarey drakk úr öðru glasi. „Meyer fór strax að þvo þvott í kjallaranum, þegar hann var fluttur inn. Veiztu, hvað hann gerði? Hann sótti þvottinn til viðskiptavina sinna einn daginn, og stóð allan næsta dag við þvottabalann. Enginn skipti sér af honum eða talaði við hann. Hann sótti þvottinn í körfu, sem hann bar á höfðinu. Á höfðinu í körfu," endur- tók McCarey. „Taktu eftir þessu!" Ég kinkaði kolli og skildi þó ekki hvað hann var að fara. „Taktu eftir þessu!" sagði McCar- ey, einkennilega æstur. Enn þagði hann góða stund og dreypti á vininu. „Jæja, kerlingarherfan er ekkja og hefur fyrir bami að sjá, sem er skinhorað og hálfgerður fáviti. Það, sem nagdýrslegu augun hennar tóku fyrst eftir, var það, að Meyer eyddi öllum peningum sínum í nýjar slár fyrir dyrnar og stálrimla fyrir glugg- ana, eins og hann óttaðist einhverja ægilega hættu. -— Meyer átti ekki nokkurn vin. Hann hafði engan til .HEIMILISPÓSTURINN 19

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.