Heimilispósturinn - 16.12.1950, Blaðsíða 18
Á tímum hinnar stórmerku fornritaútgáfu þykir eigi hlýða
að nein plögg séu undan diegin, er nokkru þykja varða. Eftir-
farandi frásögn, sem rituð er á hinu „ástkœra ylhýra máli“, hefur
fundist á lausu blaði úr Morkinskinnu, en ekki hefur vísinda-
mönnum ennþá tekist að finna höfund hennar. Til samanburðar
er látin fylgja þýðing á dönsku, sem að vísu er ekki gerð af lög-
giltum dómtúlk og skjalaþýðanda, enda tekur Heimilispósturinn
enga ábyrgð á henni.
Skreiðarförin.
Að aflíðandi óttu batt lúðu-
lakalegur sveitajaxl saman
pjönkur sínar, þar á meðal nest-
ið, sem var ábrystir í aski, kæfu-
belgur, keitusúrt smjör, sviða-
lappir upp úr súru, kæst skata,
sigin grásleppa, ásamt tólf ára
gömlum skyrhákarli.
Lagði hann síðan torfreiðing
á drógina og náragirti klakk-
lausan klifbera. Síðan batt hann
hestahnút á snoppuna og tagl-
hnýtti merina aftan í reið-
skjótann.
Taglhnýtingurinn var litför-
óttur, glaseygur á öðru auga og
hringeygður á hinu með álfa-
bruna upp undir auga. Markið
var blaðstýft aftan hægra, biti
framan, stúfrifað vinstra og
standf jöður að aftan.
Hann setti upp lambhúshettu,
færði sig í keitubleytta brók og
skinnstakk yfir, setti upp
þæfða, kútróna togvettlinga og
klofbatt sig síðan. Hann tók
með sér tvenn skæði úr hrygg-
lengju af tvítugum húðarjálk.
Veðurútlit var slæmt. Klósigi
upp úr landsuðri og klakkar í
vestri. Netjuþykni í háhvolfinu,
Stokfiskexpeditionen.
Ved hældende Ottetid samm-
ensnörede en usoigneret Rusti-
kus sin Bagage deriblandt
Provianten, som bestod af
Kalvedans i en Æske, en
Ködpostejbælg, urinsurt Marg-
arine, svedede Faareben op af
Acid, en aromatisk Gammel-
rokke, en vindtörret Kvabso
samt en tolvaarig Tykmælkshaj.
Derpaa plaserede han en
Torvsaddel paa Rosinanten og
lyskespændte den pindelöse Pak-
saddel. Derpaa slyngede han en
Hesteknud om Snabelen og hale-
knyttede Öget bagi Gangeren.
Den haleknyttede var dekore-
ret, glasöjet paa det ene Öje og
cirkelöjet paa det andet og led
af fagopyrinus i de suboculare
Regioner. Karakteren var folio-
snittet paa Bagsiden af det
höjre, Stykke foran, stump-
sprækket venstre og Staaspiral
bagi.
Siden puttede han en Cylin-
derhat paa Hovedet, iförte sig
en urinvaad Pyjamas og Pels
ovenpaa, bedækkede sine Hæn-
der med valkede, dunkeroede
Handsker, hvorefter han hase-
bandt sig. Hann forsynede sig
med to Par Skomateriale af
Ryghuden af en Drog i Tyverne.
Den meteorologiske Prognose
var ildevarslende. Cirrus op af
Landsydet og Pinde i Vest.
16
HEIMILISPÓSTURINN