Heimilispósturinn - 16.12.1950, Blaðsíða 17

Heimilispósturinn - 16.12.1950, Blaðsíða 17
1 „Guð hjálpi yður, maður! Þér kallið mig þjóf! Og mér, sem hefur alltaf verið talin trú um það, að ég liti svo sakleysislega út!“ G. K. Cheserton, sem var mjög feit- ur maður, og Bernard Shaw, sem var mjög magur, hittust einu sinni. Chesterson sagði: — I hvert skipti, sem ég sé þig, dettur mér í hug, að hungursneyð ríki í heiminum. Shaw svaraði: — Rétt er það! Og í hvert skipti, sem ég sé þig, hugsa ég mér, að hún sé þér að kenna. * 1 Glasgow bjuggu f jórir bræður og einn þeirra fór úr landi til þess að afla sér fjár. Að 20 árum liðnum ákvað hann að snúa heim aftur, skrifaði bræðrum sínum og bað þá að koma og taka á móti sér á járn- brautarstöðinni. Á járnbrautarstöð- inni biðu hans þrír menn með sítt og mikið skegg. Við nánari athugun sá hann, að þetta voru bræður hans og heilsaði þeim hjartanlega. — En hvernig í dauðanum stendur á því, að þið hafið lagt ykkur til svona sítt skegg? spurði hann. Þeir svöruðu einum rómi: — Þér ferst að spyrja, sem stakkst af með rakhnífinn. * Betlari barði að dyrum húss eins í Skotlandi og sagði við frúna, sem opnaði: — Kæra frú, getið þér ekki lið- sinnt mér? Ég hef misst hægri fót- inn. — Ja, hann er ekki hér,- svaraði frúin og lokaði hurðinni. HEIMILISPÖSTURINN 15

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.