Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.02.2021, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 09.02.2021, Qupperneq 18
Advania býður upp á vef-lausnina Signet til að undir-rita skjöl rafrænt á þægi- legan og einfaldan hátt. „Okkar markmið er að spara fólki sporin, þannig að það þurfi ekki að flakka á milli staða til að undirrita umsóknir, eyðublöð og samninga,“ segir Atli Örn Egilsson, sölusérfræðingur hjá Advania. Signet gerir fyrirtækjum kleift að veita viðskiptavinum sínum betri þjónustu og flýta fyrir ferlinu við að ganga frá undirskriftum á skjölum. „Við sjáum til dæmis stéttar- félög nota Signet í miklum mæli til að undirrita umsóknir um styrki en áður þurfti fólk að mæta á staðinn og fylla út umsókn sem er núna hægt að skila inn í símanum,“ segir Atli. „Á sama tíma hjálpar Signet fyrirtækjum að vera umhverfisvænni með því að minnka útprentun og spara ferðir á mill staða eingöngu til að undirrita.“ Rafrænar undirritanir eru þægi- legar í notkun og auðvelda bæði rekstraraðilum og viðskiptavinum lífið á sama tíma. „Advania veitir alhliða þjónustu í upplýsingatækni og er eitt stærsta fyrirtækið sinnar tegundar á Íslandi. Fyrirtækið er einnig hluti af norrænni samsteypu og er með starfsstöðvar á öllum Norður- löndunum,“ segir Atli. „Fyrirtækið getur séð um alhliða upplýsinga- tæknirekstur og leggur mikið upp úr góðri þjónustu við við- skiptavini. Starfsfólk Advania býr einnig yfir gríðarlegri reynslu en fyrirtækið býr að því að hafa verið til síðan á fyrri hluta 20. aldar og reynslan veitir okkur sérstöðu. Advania býður upp á fjölmargar lausnir fyrir fólk og fyrirtæki og Signet rafrænar undirritanir er gríðarlega spennandi lausn sem hefur virkilega nýst viðskipta- vinum vel,“ segir Atli. „Signet virkar þannig að þú setur inn skjöl sem á að undirrita, velur viðtakendur sem þurfa að skrifa undir og sendir þau svo út. Þá fá allir tilkynningu og geta skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og undirritað skjöl með fullgildum rafrænum undirritunum heima í sófa,“ útskýrir Atli. „Það þarf því ekki að koma á staðinn, hittast eða bíða eftir að einhver komi frá útlöndum til að klára málin.“ Sparar spor og eykur öryggi Signet hefur verið í smíðum hjá okkur frá árinu 2008 og við erum ávallt að bæta við lausnina til að mæta þörfum viðskiptavina enn betur,“ segir Atli. „Bráðlega verður til dæmis þeim möguleika bætt við að geta sent mörg skjöl í einu þegar það þarf margar undirritanir á pakka af skjölum, vegna þess að viðskiptavinir hafa óskað sérstak- lega eftir þessu. Signet er hannað af öryggissér- fræðingum Advania. Mikil áhersla er lögð á öryggi og notendur geta treyst því að aðeins undirrit- endur fái aðgang að skjölunum. Aðgangur að Signet er varinn með rafrænum skilríkjum og öll samskipti eru dulkóðuð,“ útskýrir Atli. „Undirritanir í Signet eru með vottaðri tímasetningu og því þarf fólk ekki að votta skjölin eins og tíðkast hefur lengi. Það að geta bara klárað umsókn eða samþykkt eitthvað í símanum er talið hluti af góðri þjónustu í dag, þannig að þetta bætir upp- lifun viðskiptavina,“ segir Atli. „Fyrirtæki sækjast líka eftir þessu til að stytta ferilinn við að fá sam- þykki til að geta farið að vinna verkin fyrr.“ Hentar öllum gerðum reksturs „Við sáum gríðarlega aukningu í rafrænum undirritunum og notkun á Signet á síðasta ári og rafrænar undirritanir hjálpuðu fyrirtækjum að láta viðskipti halda áfram þrátt fyrir samkomu- takmarkanir,“ segir Atli. „Flestir hafa líka undirritað eitthvað í gegnum Signet á einn eða annan hátt, því þessi lausn nýtur mikilla vinsælda hjá litlum og stórum aðilum. Eina forsendan fyrir því að nota Signet er að vera með rafræn skil- ríki hjá Auðkenni. Viðskiptavinir okkar eru bæði stofnanir með yfir 1000 starfsmenn og einyrkjar, því þetta hentar öllum gerðum fyrir- tækja og reksturs,“ segir Atli. „Við bjóðum upp á mjög gott verð og það er mjög einfalt og f ljótlegt að taka kerfið í notkun.“ Nánari upplýsingar um Signet er að finna á heimasíðu Advania, www.advania.is. Signet sparar fólki sporin Signet veflausnin frá Advania gerir fólki kleift að undirrita skjöl og samninga rafrænt. Þannig ein- faldar Signet rekstur fyrirtækja, bætir þjónustu og minnkar kolefnisspor fyrirtækjanna. Atli Örn Egilsson, sölusérfræðingur hjá Advania, segir að markmið Advania sé að spara fólki sporin þannig að það þurfi ekki að flakka um til að fá undirritanir á skjöl. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Við sjáum til dæmis stéttarfélög nota Signet í miklum mæli til að undirrita umsóknir um styrki en áður þurfti fólk að mæta á staðinn og fylla út umsókn sem er núna hægt að skila inn í sím- anum. Atli Örn Egilsson 4 KYNNINGARBLAÐ 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 Þ R I ÐJ U DAG U RUPPLÝSINGATÆKNI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.