Vinnan - 01.05.1975, Síða 7
Ályktun
kjaramála-
ráðstefnu
ASÍ
Að fengnum upplýsingum 9-manna
samninganefndar ASf um gang samninga-
viðræðna við samtök atvinnurekenda og
við ríkisstjórnina, svo og að kannaðri þró-
un verðlagsmála frá því er ráðstefna
verkalýðssamtakanna var haldin 30. nóv.
— 1. des. sl., ályktar kjaramálaráðstefna
ASÍ eftirfarandi:
l.Frá því er ráðstefnan var haldin, um
mánaðarmótin nóv./des. sl., hefur óða-
verðbólgan geisað fram af meiri hraða
og tilfinnanlegar fyrir alþýðuheimilin en
nokkru sinni áður. Sú kjararýrnun sem
þá var metin sem 12—23% lækkun kaup-
máttar, hefur vaxið á þeim 3 mánuðum,
sem síðan eru liðnir, yfir 30 stig í fram-
færsluvísitölu og fullvíst er, að á næstu
dögum og vikum mun hún enn vaxa um
a. m. k. 20 stig. Skerðing kaupmáttar, ef
ekki er að gert, yrði 1. maí nk. 30—
40% og þyrfti kaupgjald þá að hækka
um 50—60% til þess að náð yrði þeim
kaupmætti, sem samið var um í febrúar
1974.
Þessi geigvænlega þróun kjaramála
hefur orðið án þess að stjórnvöld hafi
gert minnstu tilraun til að spyrna við
landinu, grundvallarmarkmið þeirra
og annarra skyldra félagsmálahreyf-
inga, baráttu verkalýðssamtakanna
fyrir bættum lífskjörum fólksins, um
hagsmunasamtök atvinnurekenda og
um almenna þjóðfélagsfræði og meg-
inatriði íslenskrar félagsmálalöggjafar.
Ennfremur skal kenna almennar
fundarreglur og fundarstjórn og bók-
hald og fjárgæslu verkalýðsfélaga og
sjóða þeirra. Leggja skal áherslu á að
þjálfa nemendur í að setja hugsanir
sínar skipulega fram í ræðu og riti og
gera þá færa um að taka að sér fé-
lagsleg leiðbeinenda- og kennslustörf
auk annarra trúnaðar- og forystu-
starfa í þágu verkalýðshreyfingarinn-
ar.
Auk þess veiti skólinn leiðsögn í
tungumálum, listum og öðrum efnum
cftir því sem henta þykir.
3. gr. — Fræðsla fer fram í formi
námskeiða og skal námsefni og náms-
fótum, og að verulegu leyti fyrir þeirra
tilverknað.
Gengið hefur verið fellt um 20%,
lagðir hafa verið á ýmsir sérskattar,
söluskattur verið hækkaður um 1% og
heimilaðar stórfelldar hækkanir á fjöl-
mörgum vörum og almennri þjónustu,
sem ekkert heimili getur án verið, svo
sem rafmagni, hitaveitu, afnotum út-
varps og sjónvarps, svo fá dæmi séu
nefnd. Vxsitala framfærslukostnaðar stóð
hinn 1. febrúar í 372 stigum á móti 297
stigum 1. ágúst sl., og nú er vitað um
miklar hækkanir viðkvæmustu neyslu-
vara, svo sem búvara, og stórfelldra al-
mennra hækkana vegna gengisfellingar-
innar, sem nú mun leggjast með ofur-
þunga á framfærslukostnað næstu daga
og vikur. Framfærslukostnaður heimil-
anna mun því, án mótaðgerða, hækka
um 10—11% a.m.k. á næstu 2 mánuðum.
Á sama tíma fer atvinna minnkandi og
veldur stórfelldum tekjumissi heimila
láglaunafólksins, en stöðvun útlánaaukn-
inga viðskiptabanka, aukin bindiskylda
þeirra í Seðlabankanum og samdráttar-
stefna ríkisvaldsins í heild, ógnar nú
skrá samin í samræmi við þá tilhög-
un. Starfið fer fram í fyrirlestrum,
umræðu- og starfshópum eða á ann-
an hátt, sem best þykir henta.
Námskeið eða önnur starfsemi skól-
ans fer fram í húsakynnum hans, eða
annars staðar í hinum ýmsu landshlut-
um eftir því sem þörf krefur og henta
þykir.
4. gr. — Stjórn Menningar- og
fræðslusamtaka alþýðu er jafnframt
skólastjórn Félagsmálaskóla alþýðu.
Hún ræður skóilastjóra, kennslukrafta
og annað starfslið.
5. gr. — Kostnað við rekstur skól-
ans ber Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu, að því leyti sem fjárveit-
ingar frá því opinbera nægja ekki.
6. gr. — Reglugerð þessi öðlast
gildi, þegar hún hefur verið staðfest af
miðstjórn ASÍ og Menningar- og
fræðslusambandi alþýðu.
alvarlega því atvinnuöryggi sem vinnu-
stéttirnar hafa þrátt fyrir allt búið við
síðustu árin. Af þessum sökum öllum
stefnir óðfluga að neyðarástandi meðal
alls þorra verkalýðsstéttarinnar.
2. Þessi ógnvekjandi þróun kjaramála er af
stjórnvöldum skýrð með versnandi við-
skiptakjörum, sem vissulega verður ekki
synjað fyrir að eiga hér nokkra sök, en
þó hvergi nærri nema að hluta. Orsak-
anna er ekki síður að leita í algeru and-
varaleysi þeirra og samtaka atvinnurek-
enda til að verja í nokkru hag verka-
lýðsstéttarinnar. Ráðstefnan lýsir því sök
á hendur þessum aðilum, og fordæmir
ábyrgðarleysi þeirra og andstöðu gegn
réttmætum og óhjákvæmilegum kröfum
verkalýðsstéttarinnar um launahækkanir,
sparnað í opinberum rekstri og skatta-
lækkanir til þeirra, sem komnir eru í
þrot með lífskjör sín og afkomu.
3. Ráðstefnan telur að atvinnurekendum
og ríkisstjórn hafi af verkalýðssamtök-
unum, nú um eins árs skeið, verið sýnt
mikið langlundargeð, og gefin fyllstu
tækifæri til að koma í framkvæmd ráð-
stöfunum í þá átt að mæta áföllum þjóð-
arheildarinnar með því m. a. að vinna
að réttlátari skiptareglum þjóðartekna,
og verja þannig rétt þeirra og kjör, sem
verst eru settir, en sú stefna er hin eina
sem á rétt á sér þegar minna er til
skipta en áður. En nú hefur sannast að
hvorki atvinnurekendur né stjórnvöld,
hafa notað tímann til slíkrar stefnumót-
unar, heldur til þess að ráðast í sífellu
á garðinn þar sem hann er lægstur, og
vega æ ofan í æ í hinn sama knértmn,
og að nota áföll þjóðarbúsins sem tylli-
ástæðu til að skerða almenn lífskjör
stórum freklegar en efni og ástæður hafa
gefið tilefni til.
Þessari reynslu ríkari, lýsir ráðstefnan
því nú yfir, að langlundargeð verkalýðs-
samtakanna er þrotið, og að þau muni
nú beita áhrifum sínum af alefli til að
sameina alla verkalýðshreyfinguna til
allsherjarátaks, til þess að rétta hlut lág-
launastéttanna, og knýja fram nýja
kjarasamninga. Skorar ráðstefnan því á
öll verkalýðsfélög innan ASÍ að afla nú
þegar heimilda til verkfallsboðunar, og
vera viðbúin að beita þeim heimildum,
ef atvinnurekendur og ríkisstjórn opna
ekki á næstu dögum möguleika á kjara-
samningum, sem, miðað við allar að-
stæður, gætu talist viðunandi til bráða-
birgða. I því ótrygga og óvissa efnahags-
ásandi, sem nú ríkir telur ráðstefnan
ekki koma til greina að festa samninga
um kaup og kjör nema til mjög skamms
tíma, heldur verði nú að stefna að settu
marki um að ná fram í áföngum kaup-
mættinum, eins og hann var eftir síðustu
samninga, og verði hvert tækifæri notað
til þess.
Ráðstefnunni er ljóst að árangur fyrsta
áfangans kann að marka mjög þá, sem
síðar verður að ná, og heitir því á alla
verkalýðshreyfinguna að mynda nú þá
órjúfandi fylkingu, sem til þarf, að hann
verði sem stærstur og árangursríkastur.
VINNAN 7