Vinnan - 01.05.1975, Blaðsíða 9

Vinnan - 01.05.1975, Blaðsíða 9
HLUTVERK Til þess að gera hér grein fyrir hlut- verki skólans verður hér vitnað til orða Stefáns Ögmundssonar formanns MFA í ávarpi, er hann flutti við skólasetninguna: „Sá skóli sem hér er settur, er frábrugð- inn öðrum skólum bæði hvað námsefni varðar og fræðslusnið. Þessi sérstaða er skýrt afmörkuð í reglugerð um félagsmála- skólann með þessum orðum: „Hlutverk skólans er að mennta og þjálfa fólk úr verkalýðshreyfingunni með það fyrir aug- um að efla þroska þess og hæfni til að vinna að bættum kjörum og frelsi alþýðu- stéttanna.“ En um kennsluaðferðir segir: „Fræðslan fer fram í formi námskeiða og skal námsefni og námsskrá samin í sam- ræmi við þá tilhögun. Starfið fer fram í fyrirlestrum, umræðu- og starfs- hópum eða á annan hátt, sem best þykir henta.“ Aðferðin er því fyrst og fremst sú, að kryfja námsefnið sameiginlega með það fyrir augum að sem bestur árangur náist. Með slíku námsformi, — þegar vel heppn- ast, -— hafa allir lagt sitt af mörkum, allir verið nemendur og allir leiðbeinendur með nokkrum hætti. Félagsmálaskóla alþýðu er ætlað að ná til verkafólks í landinu öllu. Áformað er að skólinn verði hreyfanlegur, geti flust milli landshluta eftir því sem aðstæður leyfa, og þá ekki hvað síst horft til orlofs- byggða verkalýðsfélaganna, sem óðum eru að rísa. Sú frumraun sem nú er hafin mun færa okkur reynslu á mörgum sviðum. Ljóst er að framundan eru erfiðleikar, sem við verðum að sigrast á. Kemur þá fyrst í hug skortur á hentugu og vönduðu námsefni, einkum til framhaldsnáms eða síðari anna. Öflun þess og gerð mun kosta mikið fé og mikla vinnu. Þegar fyrstu sporin eru stig- in á þessari námsbraut okkar verður líka úr því skorið, hvort þessi skóli nýtur sama réttar til styrktar af opinberu fé og aðrir skólar í landinu. Hvort fullorðið vinnandi fólk, sem kemur beint úr framleiðslustörf- unum, fær sjálft notið einhvers af þeim fjármunum, sem það aflar með vinnu sinni til menntamála. íslenska verkalýðshreyfingin hefur með sameinuðu, virku afli möguleika á því að vera sinnar eigin gæfu smiður í félagslegu uppeldisstarfi. Hún hefur innan sinna vé- banda beint og óbeint nálega tvo þriðju hluta þjóðarinnar. Hún nýtur þeirrar að- stöðu umfram verkalýðssamtök fjölmargra annarra þjóða að svo til allt launafólk í landinu, sem heyrir undir verkefnasvið hennar er meðlimur í verkalýðsfélagi og Alþýðusambandi íslands og langmestur hluti þessa fólks er samþykkur þeim mark- miðum samtakanna að þau skuli hafa „for- ustu i stéttabaráttu og fclagsstarfsemi al- þýðunnar á íslandi“ eins og segir í lögum ASÍ. f margbreytileik hina svokölluðu þróuðu og menntuðu þjóðfélaga nútímans verða hin félagslegu verkefni verkalýðsins æ vandasamari, en mesti vandi hans er þó í því fólginn að láta ekki villa um fyrir sér, missa ekki sjónar á hinu einfalda, láta ekki reykský áróðurs hylja fyrir sér raunveruleikann, skilja að orsakir ójafn- aðar eru ekki óskýranlegar. Til hess þurf- um við að afla okkur þekkingar með námi. Sú þekking til viðbótar skóla hins daglega lífs á að gera okkur fært að treysta eigin dómgreind sem æðsta dómara í hverju máli. Það er þetta sem við er átt í stefnu- skrá MFA, þar sem sagt er að hlutverk þess sé „að auka þroska einstaklingsins, sjálfstraust, vilja og þrek til þess að gera hann hæfari í baráttunni fyrir hagsmunum og frelsi alþýðunnar". Með öflugum félagsmálaskóla og mark- vísu fræðslustarfi, þar sem skilningur og þekking er aflvaki baráttunnar fyrir hags- munum og jafnrétti alþýðunnar, höfum við möguleika til þess á næstu árum og ára- tugum að eignast liðsmannasafn, sem fært verður um að beina brautina og halda á Ijóskerinu í starfi íslensku verkalýðsfélag- anna. Ég vona að þessi okkar fyrsta önn megi takast með þeim hætti, að við förum héðan bjartsýn og reif til starfa að hálfum mánuði liðnum.“ SETNINGIN: Við setninguna voru ýmsir gestir. Þar á meðal Gunnar Thoroddsen fé- lagsmálaráðherra og Hannibal Valdi- marsson fyrrv. forseti ASÍ. Fluttu þeir skólanum ávörp og árnaðaróskir. Bolli B. Thoroddsen hagræðingur ASl gerði grein fyrir námsefni og tilhögun námsins, en hann var ráðinn náms- stjóri skólans. Þá flutti Björn Jónsson forseti Alþýðusambandsins ræðu og afhenti Stefáni Ögmundssyni húsnæð- ið til afnota fyrir skólann. I ræðu sinni við þetta tækifæri sagði Björn m. a.: „Það ber íslenskri verkalýðshreyfingu gott vitni um dómgreind og skilning, að á siðustu áratugum hafa kröfurnar innan hreyfingarinnar um stóraukið fræðslustarf risið æ hærra og einnig vaxandi gagnrýni Matráðskonurnar Erla Eiríksdóttir og Anna Sigurðardóttir. á forystu hennar fyrir að hafa ekki sinnt þeim málum sem skyldi. En þrátt fyrir þessa réttmætu gagnrýni ber þó hiklaust að geta þess og meta, sem gert hefur verið. Stofnun Menningar- og fræðslusambands alþýðu og starfsemi þess á sviði útgáfu og námskeiðahalds hefur reynst stórt spor í rétta átt og undirstaða og nauðsynlegur undanfari þess sögulega atburðar, sem á þessari stundu er að gerast: að formlegt skólahald Félagsmálaskóla alþýðu er að hefjast. Ég mun ekki hér eða nú rekja meira en tveggja áratuga forsögu þessarar skóla- stofnunar, en minni aðeins á þann þátt hennar, þar sem barátta Hannibals Valdi- marssonar fyrrverandi forseta ASÍ og fleiri forystu- og stuðningsmanna verkalýðs- hreyfingarinnar á alþingi og utan, fyrir því að slíkur skóli yrði felldur, a. m. k. fjárhagslega inn í hið almenna menntunar- kerfi þjóðarinnar og að hlutverk og mikil- vægi hans yrði þar með metið til jafns við aðra skólastarfsemi í landinu. Þessi viður- kenning hefur enn ekki fengist og á kannski langt í land að svo verði, en bar- áttan fyrir henni, og vonbrigðin í sambandi við hana. hefur verið verkalýðshreyfing- unni allri holl lexía um það að treysta fremur á eigið framtak en á opinbera for- sjá. Ég er þess þó fullviss, að sú viður- kenning á eftir að nást fram þótt síðar verði, en vonin um það má þó aldrei stuðla að því að verkalýðshreyfingin sleppi hendi sinni af því að móta sjálf starfsem- ina á öllum sviðum og halda henni óháðri hvers konar yfirstjórn ríkisvaldsins, að ég ekki tali um atvinnurekenda, eins og til- lögur hafa verið uppi um. Séð frá því sjónarhorni ber því ef til vill ekki að harma það, að heildarsamtök verkalýðs- hreyfingarinnar bera ein veg og vanda af stofnun skólans og fyrstu sporum, sem starfsemi hans stígur nú í nánustu framtíð. Þá ber sérstaklega að fagna því, þótt ekki geti verið hér um að ræða í upphafi launað kennaralið, að sá hópur leiðbein- enda, sem kemur hér á fyrstu önn skólans ber ekki vott um nein vanefni þótt fjár- munir séu af skornum skammti. Kemur hér bæði til drengileg aðstoð sérfróðra og valinkunnra velunnara samtakanna á ýms- um sviðum og einnig að starfslið og for- VINNAN 9

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.