Vinnan - 01.05.1975, Blaðsíða 29

Vinnan - 01.05.1975, Blaðsíða 29
B Kjaramálaráðstefnur ASÍ í ágúst og október 1973 kröfðust skatta- lækkunar. B Síðan samið var í febrúar 1974 hafa skattar verið verulega auknir. B Hækkun viðlagasjóðsgjaldsins var óþörf. B Viðlagasjóði hefði nægt 1% söluskattur áfram. B Með þeim lögum, sem nú hafa verið samþykkt er dregið úr skatta- hækkuninni. fl Fólk, sem lækkar í tekjum mun njóta þess, að skattheimta takmark- ast við 2/5 útborgunar. fl Heildarskattheimta ríkis og sveitarfélaga mun nema 34y2% þjóðar- framleiðslunnar í ár, en nam 321/2% síðastliðið ár. SAMNIN GARNIR OG SKATTAMÁLIN ÁSMUNDUR STEFÁNSSON HAGFRÆÐINGUR ASl: AÐDRAGANDI í samningaviðræðum Aiþýðusam- bandsins og atvinnurekenda nú í vetur hafa skattamálin verið rædd og Al- þýðusambandið og raunar atvinnu- rekendur einnig átt sérstakar viðræð- ur um þau mál við fulltrúa ríkisvalds- ins. Það eru ekki allir á eitt sáttir um að heppilegt sé að blanda skattamál- um inn í hinar almennu samningavið- ræður. Það er þó rétt að minna á, að verkalýðshreyfingin hefur löngum bar- ist fyrir ýmsum félagslegmn umbót- um samhliða baráttunni fyrir hækk- uðu kaupi. Varðandi skattamálin var mörkuð skýr stefna í kjaramálaálykt- un Kjaramálaráðstefnu ASÍ, að Reyk- holti 27. og 28. ágúst 1973 og settar fram kröfur um „gagngera breytingu í skattamálum, sem tryggi verulega lækkun skatta hjá almennu launafólki, jafnframt því sem þannig verði stað- ið að skattlagningu til samfélagsþarfa, að eignamenn og sjálfstæðir atvinnu- rekendur greiði skatta í samræmi við raunverulegar tekjur og eignir“. Á- herslan á skattamálin er ítrekuð með sérstakri ályktun um skattamál á Kjaramálaráðstefnu ASÍ 12. október 1973, þar sem kröfurnar eru settar fram í 9 liðum, og þess m. a. krafist: að persónufrádráttur verði hækkaður, við útborgun launa verði aldrei tekið meira en % Iaunanna upp í greiðslu beinna opinberra gjalda, að húsaleiga verði gerð frádráttarbær, og að hrað- að verði undirbúningi að því að taka upp staðgreiðslukerfi skatta. í samræmi við stefnu kjaramála- ráðstefnanna voru skattamálin rædd við stjórnvöld samhliða samningavið- ræðum við atvinnurekendur veturinn 1973—1974. Að höfðu samráði við Alþýðusam- bandið beitti ríkisstjómin sér síðan fyrir stórfelldri breytingu á skattakerf- inu. Því fór þó fjarri, að þær breyting- ar fullnægðu öllum óskum Alþýðu- sambandsins. Það var þannig í fullu samræmi við áður marhaða stefnu, að skattamálin voru tekin til meðferðar í samninga- viðræðum nú í vetur. SKATTAHÆKKANIR FRÁ GERÐ KJARASAMNINGA I I FHRI AR 1974 Á þeim tíma, sem liðinn er frá gerð kjarasamninganna í febrúar 1974, hafa skattar verið mjög auknir. 1. Iimflutningsgjöld af bifreiðum hafa verið hækkuð tvívegis, þ. e. í maí 1974 og febrúar 1975. Þess- ar hækkanir eiga að gefa um 600 m.kr. í ríkiskassann. Þó er rétt að taka fram, að ýmislegt bendir til þess að innflutningur bíla dragist það mikið saman, að því marki verði ekki náð. 2. Þá hafa þrívegis orðið hækkanir á áfengi og tóbaki, þ. e. í maí 1974, desember 1974 og febrúar Shci/ askku n ., w SkettfcV\«'WtM fíz<S enu f í'cidrÁtto v' g^uSlcAfc-tvtr Skaetv/j// Ue.íl0u, VINNAN 25

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.