Vinnan - 01.05.1975, Blaðsíða 12

Vinnan - 01.05.1975, Blaðsíða 12
BRÉFASKÓLI KYNNTUR tilbúin í haust. Þá mun fólk eiga kost á að læra ítölsku, frönsku og rússn- esku á sama hátt, nema íslenska skýr- ingartextann vantar ennþá. Þessi tungumálanámskeið eru útbúin þann- ig að fólk fær bækur og snældur (kass- ettur), svo að það bæði les og hlustar. Þá býður skólinn upp á sænskt tungu- málanámskeið, sem hefur verið ís- lenskað. Þetta námskeið var upphaf- lega útbúið af sænska ríkisútvarpinu í samvinnu við Sænska Bréfaskólann. Námskeiðið, sem nú er tilbúið er fyrri hluti lengra námskeiðs. Það er einnig byggt upp á bókum og snældum. Leitast hefur verið við að aðlaga hluta námsefnis skólans almennu gagnfræðaskólanámi, þannig að nem- endur Bréfaskólans geta beinlínis not- að það til þess að afla sér réttinda til áframhaldandi náms. Dönskunámið er einmitt útfært á þennan hátt. Guðrún Halldórsdóttir skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur er að semja leiðbeining- arrit ásamt texta lesnum á snældum, þar sem hún styðst við kennslubækur sínar í dönsku. Gert er ráð fyrir að þetta námsefni verði tilbúið í haust. Skólinn reynir sérstaklega að fylgjast með nemendum, sem stunda þær grein- ar sem aðlagaðar hafa verið gagn- fræðaskólastiginu, þannig að þeir geti ef þeir óska þreytt gagnfræðapróf í þeim skólum landsnis, þar sem slík próf eru haldin. Fyrri hluti bókfærslu- námskeiðs, samið af Þorsteini Magn- ússyni kennara við Verslunarskólann er fullkomin bókfærslukennsla, þar sem höfð er til hliðsjónar kennsla þessarar greinar í Verslunarskóla og Samvinnuskóla. Einnig hefur íslenska málfræðin verið endurbætt, en Ey- steinn Sigurðsson hefur samið bréf við málfræði eftir Björn Guðfinnsson. Samband íslenskra samvinnufélaga hefur látið útbúa mjög skemmtilegan bækling sem kallast „Við bætum þjón- ustuna“ og Bréfaskólinn sér um að kynna og dreifa. Þessi grein er einkum hagnýt fyrir verslunarfólk, jafnt í kaupfélögunum, sem annars staðar. Geir Geirsson endurskoðandi er að vinna að handbók í endurskoðun, sem verður með svipuðu sniði og bækling- urinn um þjónustuna, sem fyrr var nefndur. NÁMSHRINGIR Sigurður sagðist binda einna mestar vonir við bréfanám í námshringjum, en slíkt nám er mjög útbreitt á öðr- um Norðurlöndum, og feikivinsælt, enda gefur það marga möguleika til skemmtilegs og gagnlegs náms. Við hvert efni er ákveðin bók, sem gefin hefur verið út á almennum bóka- markaði, höfð sem grundvallarrit, en leiðbeiningarrit fylgir, þannig að þátt- takendur námshringsins eiga auðveld- ara með að ræða og skiptast á skoð- unum um efni bókarinnar. Miðað er við að fundir hópanna séu u. þ. b. 8—10 talsins. Nú er verið að ganga frá slíkum leiðbeiningarritum við ís- landsklukkuna eftir Halldór Laxness, Gísla sögu Súrssonar, auk bókanna Manneskjan er mesta undrið eftir Harald Ólafsson og Vistkreppa og náttúruvernd eftir Hjörleif Guttorms- son. I samtali okkar við Sigurð A. Magnússon kom fram að með tilkomu bréfa sem hugsuð eru til nota í náms- hringjum opnast möguleikarnir á því að fólk með svipuð áhugamál taki sig saman og læri og ræði áhugamál sín á mjög hentugan og gagnlegan hátt. Til að mynda geta vinnufélagar tekið sig saman og keypt bréf í tungumál- um eða einhverju því sem snertir vinnustaðinn, verkalýðshreyfinguna eða þjóðfélagið allt, auk hinna sígildu bókmennta okkar eins og fram hefur komið að fólk á nú kost á. Ástæða er til þess að vekja sérstaka athygli á þessum nýju tungumálanámskeiðum, sem einkar hentugt er fyrir hóp að kaupa í sameiningu og læra saman. Það hlýtur að gefa náminu gildi, nám- ið verður hverjum þátttakanda ódýr- ara, auk þess sem slík samskipti, t. d. vinnufélaga sem annarra, eru æskileg fyrir margra hluta sakir. Hóparnir eru frjálsir að því hvernig þeir haga námi sínu, og sömuleiðis einstaklingar sem kaupa bréf og gerast nemendur skólans. Mörgum bréfunum fylgja verkefni, þar sem fólk getur gengið úr skugga um kunnáttu sína á hvaða stigi námsins sem er. Eins getur fólk leitað til skólans ef einhver vandkvæði koma upp og verður þá leitast við að leiðbeina því eins og frekast er kostur. EIGENDUM SKÓLANS FJÖLGAR Sigurður sagði að þær skipulags- breytingar hefðu verið gerðar á skól- anum að auk SÍS og ASl hefðu BSRB, Kvenfélagasamband íslands, Far- manna- og fiskimannasamband Is- lands og Stéttarsamband bænda gerst aðilar að skólanum. StS og ASÍ ættu hvort fyrir sig þrjá menn í stjórn skól- ans, en hin samböndin einn mann hvert. Eignaraðildin er í sömu hlut- föllum. Auk þessara breytinga á stjórninni er nú einnig 30 manna full- trúaráð, sem kemur saman einu sinni á ári. Hlutfallið í ráðinu er það sama og í stjórninni. Sigurður kvað tilgang- inn með þessari útvíkkun skólans vera þann, að með því myndi nást til fleiri þátttakenda, auk þess sem þessi samtök gætu haft hönd í bagga með því námsefni, sem snertir þau sérstak- lega. Þá er fjárhagsgrundvöllur skól- ans betur tryggður með aðild svo margra fjöldasamtaka. Aðildarsam- tökin greiða til skólans í réttu hlut- falli við eignaraðild sína. AÐSETUR OG STARFSLIÐ Eins og fram hefur komið hefur Sigurður A. Magnússon verið ráðinn skólastjóri Bréfaskólans, en auk hans starfar við skólann Haraldur Þorvarð- arson. Skólinn hefur nú aðsetur sitt að Suðurlandsbraut 32, og þangað get- ur fólk leitað eða hringt, sem áhuga hefur á að hefja nám í einhverri af þeim fjölmörgu greinum sem skólinn býður upp á, eða vill kynna sér þá möguleika sem hann hefur upp á að bjóða. Sigurður sagði að lokum er við ræddum við hann að aukið bréfa- skólanám og annað frjálst nám, ekki síst ef það væri á grundvelli náms- hringja, væri spurning um aukið og 12 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.