Vinnan - 01.05.1975, Page 8

Vinnan - 01.05.1975, Page 8
FÉLAGSMÁLASKÓLI ALÞÝÐU TEKUR TIL STARFA Stórum ófanga nóö Þann 16. febrúar sl. var Félagsmálaskóli alþýðu settur í Ölfusborgum. Má segja að þar með hafi áratuga langur draumur verkalýðshreyfingarinnar ræst, þó af stað hafi verið farið í litlu, en engu að síður vísir að öðru stærra og meira. Það er ekki vansalaust að íslensk verkalýðshreyfing skuli ekki fyrir löngu hafa sett á stofn sérstakan verkalýðsskóla, þar sem meðlimir hreyfingarinnar geti sótt sér alhliða þekkingu um sín eigin mál og það þjóðfélag, sem þeir búa við. Að sjálfsögðu hefur alla tíð verið um meiri og minni fræðslu að ræða innan vébanda verkalýðsfélaganna, en með samþykkt reglugerðar fyrir Félagsmála- skólann á Sambandsstjórnarfundi ASÍ 29. og 30. nóv. 1974 er málið tekið föst- um tökum. Strax í vetur var svo hafist handa um að útbúa kjarnahús það, sem verið hefur í Ölfusborgum, þannig að þar gæti skólastarfið farið fram. Hall- varður Guðlaugsson húsasmíðameistari og menn hans unnu þetta verk af svo stakri prýði, að orð var á haft. Alþýðusambandið kostaði þetta verk, en húsið er í eigu þess. Nú er ákjósanleg aðstaða til margs konar fræðslu- og félagsstarfs í Ölfusborgum, er ekki var áður, og dugað getur um mörg ókomin ár. Nú er þar góður salur fyrir fundi og ráðstefnur með tilheyrandi húsgögnum, auk mat- stofu og eldhúss, búið fullkomnustu tækjum. Þó þetta verk hafi verið unnið nú, er samt sem áður þörf fyrir veglegt kjarnahús í Ölfusborgum, eins og alltaf hefur staðið til. Óskandi væri að það risi áður en langt um hður. Nemendur og starfslið: Sitjandi talið frá vinstri, Tryggvi Bene- diktsson, Bolli B. Thoroddsen, Kristín Hjálmarsdóttir, Ingibjörg Guðlaugsdóttir, Ester Jónsdóttir, Anna Sigurðardóttir, Stefán Ögmundsson og Tryggvi Þór Aðalsteinsson. Standandi talið f. v.: Pétur Sigurðsson, Björgvin Hannesson, Jóhannes Halldórsson, Hilmar Gunnarsson, Gústaf Pálsson, Grétar Jónsson, Gísli Sigurhansson, Helgi Guðbrandsson, Þor- steinn Guðbrandsson, Pétur Siguroddsson, Héðinn Þorsteinsson, Guðmundur Hall- varðsson, Bolli A. Ólafsson, Grétar Þorsteinsson, Eiríkur Ólafsson og Pétur Hraunfjörð Pctursson. 8 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.