Vinnan - 01.05.1975, Page 13
virkt lýðræði í landinu. Það hefði
komið í ljós í nágrannalöndum okkar,
bæði Noregi og Svíþjóð, en til þessara
landa sækir skólinn einkum fyrirmynd
sína, að námshringjastarf, sem þar er
geysimikið, hefði ýtt undir alla al-
menna umræðu um málefni þjóðfé-
lagsins, fólk tæki afstöðu til mála,
sem verið er að fást við á hverjum
tíma, og yrði þannig virkari þjóðfé-
lagsþegnar. Sigurður kvaðst álíta að
hið sama gæti gerst hér og benti á
hversu þýðingarmikil slík umræða
gæti verið. Nægði þar að benda á um-
hverfismálin.
Tr. Þ. A.
Tilkynning
frá MFA
Vegna nauðsynlegs undirbúnings
eru þau verkalýðsfélög, sem hug hafa
á að efna til fræðslustarfs næsta vetur
í samstarfi við MFA, beðin að hafa
samband við skrifstofuna sem fyrst.
Menningar- og
íræðslusamband alþýðu
Áskrifendur
athugið
Þeir áskrifendur VINNUNNAR,
sem hafa fengið senda gíróseðla vegna
áskriftargjalda 1974 og ekki enn sent
greiðslu, eru vinsamlegast beðnir að
gera það sem allra fyrst.
Ritncfndin
17120
Áskriftarsími
VINNUNNAR er
17120.
ODDUR
STERKI
Oddur Sigurgeirsson — Oddur sterki af
Skaganum — varð ekki aðeins þjóðsagna-
persóna i lifanda Iífi, heldur hlaut hann einn-
ig sess í bókmenntum okkar með Rímum
af Oddi sterka eftir örn Arnarson.
Oddur var fæddur á Akranesi 29. október
1879 og lést 7. maí 1953.
i grein sem Sigurjón Á. Ólafsson ritaði
um Odd látinn segir hann m.a.: „Með hon-
um er til moldar hniginn sérstæður maður,
sem sett hefur mikinn svip á bæinn undan-
farna áratugi og raunar flestir landsmenn
könnuðust við."
Oddur stundaði sjó lengi fram eftir ævi
og þótti dugmikill og samviskusamur til allra
verka bæði á sjó og landi. Talið er að hann
hafi í æsku hlotið höfuðhögg, sem lamaði
heyrn hans og „gerði hann að ýmsu leyti
sérkennilegan frá öðrum mönnum". Oddur
var hið mesta tryggðatröll vinum sínum.
Hann átti örar tilfinningar, frábært minni og
glöggt auga. Oddur tók sérstöku ástfóstri
við stéttarfélag sitt, Sjómannafélag Reykja-
víkur og gaf því árið 1947 fjársjóð, sem
renna skyldi til dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna. Sjóður þessi var ósmár á þeirri tíð:
Kr. 40.721,23 og skyldu menn úr Sjómanna-
félagi Reykjavikur hljóta styrk úr honum til
dvalar á heimili aldraðra sjómanna. Áður
hafði Oddur fært félaginu tvær stórgjafir.
Sjómannafélagið endurgalt Oddi umhyggju
hans á ýmsa lund og siðast með því að sjá
um og kosta útför hans og reisa honum
bautastein.
Oddur fylgdist jafnan vel með átökum
stéttanna í þjóðfélaginu og átti verkalýður-
inn og samtök hans hug hans óskiptan.
Á myndinni sem Vinnan birtir nú í þættinum
Frá liðnum dögum, sést Oddur bera merki í
kröfugöngu 1. maí. Stefán Jónsson alþm.
færði ASÍ þessa mynd. Ekki er vitað frá
hvaða ári hún er en ljóst er að myndin er
allgömul. Ef einhver af lesendum Vinnunnar
kynni að greina okkur frá aldri atburða,
væri vel þegið að hann léti ritnefnd blaðsins
vita.
FRÁ LIÐNUM DÖGUM
VINNAN 13