Vinnan - 01.05.1975, Qupperneq 23
„VERÐTRYGGING
LlFEYRISSJÓÐANNA
ER BRÝNASTA
VERKEFNIД
— Hver voru tildrög að stofnun
Sambands almennra Iífeyrissjóða?
Tildrög að stofnun SAL má í raun-
inni rekja aftur til ársins 1969. í
kjarasamningi Alþýðusambands ís-
lands og atvinnurekenda frá 19. maí
1969 var m. a. kveðið á um stofnun
lífeyrissjóða á félagsgrundvelli og
skyldu greiðslur til þeirra hefjast 1.
janúar 1970. Á árinu 1969 var skipuð
sérstök lífeyrissjóðsnefnd, sem skyldi
hafa það verkefni að undirbúa stofn-
un sjóðanna. 1 nefndina voru til-
nefndir eftirtaldir menn: Frá ASL Eð-
varð Sigurðsson, Guðmundur H.
Garðarsson og Óskar Hallgrímsson.
Frá Vinnuveitendasambandi íslands:
Benedikt Gröndal, Gunnar Guðjóns-
son og Óttarr Möller. Nefndin lauk
störfum í byrjun árs 1970. Eitt megin-
verkefni nefndarinnar var að gera til-
lögur um samræmda reglugerð, sem
gilt gæti fyrir alla sjóðina. Fræðilegur
ráðunautur nefndarinnar var Guðjón
Hansen, tryggingafræðingur. 1. des-
ember 1970 féllst fjármálaráðuneytið
á þessa samræmdu reglugerð, sem líf-
eyrissjóðsnefndin hafði þá þegar kom-
ið á framfæri við lífeyrissjóðina.
Á ráðstefnu Álþýðusambands ís-
lands, sem haldin var 4. desember
1970 var samþykkt að kjósa 7 manna
nefnd, sem m. a. skyldi hafa það verk-
efni að vinna að athugun á samstarfi
lífeyrissjóðanna og sameiginlegri
stofnun fyrir þá sjóði, sem samkomu-
lag var um 19. maí 1969. Á móti þess-
um 7 fulltrúum ASÍ tilnefndi Vinnu-
veitendasamband íslands 7 fulltrúa af
sinni hálfu og var þessi 14 manna líf-
eyrissjóðsnefnd, sem við tók af nefnd-
VINNAN RÆÐIR
VIÐ HRAFN
MAGNÚSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRA
SAMBANDSALMENNRA
LÍFEYRISSJÓÐA
Á stjórnarfundi Sambands almennra
lífeyrissjóða 20. febrúar sl. var Hrafn
Magnússon ráðinn framkvæmdastjóri
sambandsins með atkvæðum allra
viðstaddra stjórnarmanna.
Hrafn Magnússon, sem um árabil
var kennari við Samvinnuskólann að
Bifröst og gegnt hefur störfum fram-
kvæmdastjóra Starfsinannafélags ríkis-
stofnana sl. tvö ár, tók að fullu við
starfi framkvæmdastjóra Sambands al-
mennra lífeyrissjóða (SAL) 1. maí sl.
VINNAN ræddi fyrir skömmu við
Hrafn um starfsemi sambandsins.
inni, sem samið hafði reglugerðarfyr-
irmyndina, þannig skipuð: Frá ASÍ:
Björn Jónsson, Benedikt Davíðsson,
Eðvarð Sigurðsson, Guðmundur H.
Garðarsson, Óskar Hallgrímsson,
Skúli Þórðarson og Snorri Jónsson.
Frá VSÍ: Barði Friðriksson, Björgvin
Sigurðsson, Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson,
Gunnar Guðjónsson, Jón H. Bergs,
Óttarr Möller og Þórður Gröndal. I
ársbyrjun 1973 tók Ólafur Jónsson
sæti Björgvins Sigurðssonar í nefnd-
inni.
I febrúar 1972 fól lífeyrissjóðsnefnd-
in 5 manna undirnefnd, þeim Bjarna
Þórðarsyni, Guðjóni Hansen, Ingvari
N. Pálssyni, Jóni R. Sigurjónssyni og
Karli Benediktssyni að undirbúa upp-
kast að reglum fyrir samband lífeyris-
sjóða innan Alþýðusambands Islands
og reglum um samskipti þeirra sjóða.
í tillögum og greinargerð undirnefnd-
arinnar frá 14. júlí 1972 var í fyrsta
lagi fjallað um samband lífeyrissjóð-
anna, í öðru lagi samskipti þeirra og
í þriðja lagi þjónustu -og samstarfs-
stofnun á vegum þeirra. Lífeyrissjóðs-
nefndin fjaUaði rækilega um fyrst-
nefnda og síðastnefnda þáttinn í
VINNAN 19