Vinnan - 01.05.1975, Page 25

Vinnan - 01.05.1975, Page 25
í nokkrum vafa um að þeir lífeyris- sjóðir, sem enn standa utan sambands- ins, eiga eftir að endurskoða fyrri á- kvörðun sína, þegar rekstur sam- bandsins er kominn í fastar skorður. Hér er fyrst og fremst um að ræða þjónustustofnun fyrir sjóðfélagana, sem skerðir á engan hátt sjálfstæði sjóðanna, heldur veitir þeim upplýs- ingar og aðstoð eftir því, sem tök eru á. Enginn sjóður hefur í rauninni efni á því að standa utan sambandsins til frambúðar. — Hver verða brýnustu verkefni sambandsins á næstu mánuðum? Samband almennra lífeyrissjóða mun opna skrifstofu að Klapparstíg 27, Reykjavík, í júlí eða ágústmánuði nk. Fram að þeim tíma hefur sam- bandið aðsetur hjá Lífeyrissjóði Dags- brúnar og Framsóknar að Laugavegi 77, Reykjavík. Tíminn fram á haust mun væntanlega verða notaður meira eða minna til þess að kynnast rekstri sjóðanna. Ég tel sérstaka ástæðu að hafa gott og náið samstarf við for- stöðumenn sjóðanna og sjóðstjórnir. Það er í rauninni frumskilyrði þess að góður árangur náist, svo hægt verði að koma á samræmdri skipulagningu lífeyrissjóðanna. Ég tel sérstaka á- stæðu að huga vel að þeim fyrstu sporum, sem tekin verða og flana ekki að neinu, heldur undirbúa allar aðgerðir rækilega. Áður hefur verið greint frá helstu verkefnum sambands- ins og að undirbúningi þeirra er nú unnið. Þótt sambandið sé fyrst og fremst þjónustustofnun er það eitt meginverkefni þess að vinna að sam- eiginlegum hagsmunamálum lífeyris- sjóðanna. Hlutverk lífeyrissjóðanna er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum lífeyri. Það er hins vegar kunnugra en frá þurfi að segja, að eignir sjóðanna hafa rýrnað gífurlega í óðaverðbólgu síðustu ára. Aðstöðumunur þeirra sjóðfélaga, sem eru í óverðtryggðum sjóðum og þeirra, sem eru í sjóðum, sem njóta verð- trygginga er geysilegur og í rauninni óþolandi til frambúðar. Um heildar- lausn þessara mála eru þó skiptar skoðanir. Allir virðast þó vera sam- mála um að allir eigi að njóta sam- bærilegs lífeyris, miðað við þau rétt- indi, sem sjóðfélagar hafa áunnið sér. Um leiðir að þessu marki eru þó skiptar skoðanir, eins og áður segir. Vorið 1973 skipaði fjármálaráðherra 11 manna nefnd til þess að fjalla um „framtíðarskipan á ávöxtun fjár hf- eyrissjóða með hliðsjón af þörfum þjóðfélagsins fyrir fé til verklegra framkvæmda og því markmiði sjóð- anna að tryggja lífeyrisþegum lífeyri, sem sé í samræmi við ríkjandi kaup- gjald á hverjum tíma“. í nefndinni eiga m. a. sæti Eðvarð Sigurðsson og Jón H. Bergs. Nefndin hefur enn ekki lokið störfum, en Ijóst er þó að svo verður innan tíðar. Á stjórnarfundi Sambands almennra lífeyrissjóða 20. febrúar sl. benti Björn Jónsson á, að hann teldi rétt ríkisvaldsins vafasam- an til að setja á laggirnar starfsnefnd til að ráðslaga um meðferð fjármuna þeirra lífeyrissjóða, sem samningsaðil- ar vinnumarkaðarins hefðu komið á stofn með frjálsum samningum. Nú hefur verið sett á stofn nefnd á vegum Sambands almennra lífeyris- sjóða, sem hefur það verkefni að taka til sjálfstæðrar athugunar, hvaða leiðir séu færastar til að verðtryggja lífeyris- sjóðina. Verðtrygging lífeyris er því brýnasta verkefni sambandsins. — Nú er notaður sérstakur stigaút- reikningur til þess að finna grundvöll lífeyrisréttinda. Er hér ekki um flókið kerfi að ræða? Það er rétt að sjóðir innan Sam- bands almennra hfeyrissjóða nota sér- stakan stigaútreikning. Hjá flestum sjóðum innan sambandsins er miðað við 2. taxta Dagsbrúnar og fulla starfsaldurshækkun, en þó nota nokkr- ir sjóðir önnur grundvallarlaun. Þó sumir sjóðir noti ekki sama grund- Eignir lífeyrissjóðanna hafa rýrnað gífurlega í óðaverðbólgu síðustu ára Ég er ekki í nokkrum vafa um, að þeir lífeyrissjóðir, sem standa utan sambandsins, eigi eftir að endurskoða fyrri afstöðu sína. völlinn við útreikning stiga, -— ég vil segja því miður, •— þá er markmið stigaútreikningsms það sama. Eins og kunnugt er nota flestir sjóð- ir utan sambandsins þá reglu að líf- eyrir fari eftir meðallaunum 5 eða 10 síðustu starfsáranna. Sú regla veitir meiri rétt miðað við iðgjaldagreiðslur þeim starfsmönnum, sem fá verulegar flokkahækkanir síðustu starfsárin, en hinum sem taka laun samkvæmt sama launaflokki allan starfstíma sinn. Stigaútreikningurinn er hins vegar þannig, að áunnin réttindi fara eftir verðgildi iðgjaldanna, eins og það var, þegar þau voru innt af hendi. Kostir þessa stigakerfis eru margir og má til að mynda nefna, að ekki á að skapast misræmi í réttindum, þótt innan líf- eyrissjóðsins hafi menn jafnar tekjur yfir ævina, stöðugt hækkandi tekjur eða tekjur, sem verða hæstar á miðri starfsævi, en fara síðan lækkandi síð- ustu starfsárin. Um þá spurningu, hvort hér sé um flókið kerfi að ræða, þá er því til að svara, að að svo er ekki, en æskilegt væri þó að sjóðirnir notuðu sömu grundvallarlaunin við stigaútreikninginn. — Er nokkuð að lokum, sem þú vilt koma á framfæri? Ég vil aðeins undirstrika það, sem ég hef áður sagt, að brýnasta verkefni SAL er að finna leiðir til að verð- tryggja lífeyrinn. Af öðrum brýnum verkefnum má nefna reglurnar um réttindaflutning milli sjóðanna. Það er nauðsynlegt að draga sem frekast er unnt, úr óþarfa réttindaflutningi milli sjóðanna. Um þetta eru ákveðn- ar reglur í samskiptareglum sjóðanna, sem ekki hefur enn verið farið eftir og mun sambandið beita sér fyrir því að sjóðirnir fari eftir þessum reglum. Þá er sérstök ástæða að veita sjóðun- um aðstoð við útreikning lífeyris og þá ekki síst við útreikning lífeyris aldraðra félaga í stéttarfélögum, skv. lögum nr. 63/1971, en framkvæmd þessara laga er vægast sagt mjög flók- in. Samband almennra lífeyrissjóða mun veita sjóðunum aðstoð við trygg- ingafræðileg efni og er þess að vænta að tryggingafræðileg athugun á fjár- hag sjóðanna 1970—1974 liggi fyrir í haust, en Guðjón Hansen, trygginga- fræðingur, vinnur nú að þeirri athug- un fyrir sambandið. VINNAN 21

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.