Vinnan - 01.11.1984, Síða 7

Vinnan - 01.11.1984, Síða 7
sett fyrir árið 1985. Þegar það liggur ljóst fyrir munu sjómenn ráða ráðum sínum, og það er alveg ljóst að þeir munu ekki standa aðgerðarlausir varð- andi kröfugerð um næstu áramót. Guðmundur Þ Jónsson, formaður Landssambands iðnverkafólks: Kröfugerð liggur fyrir af hálfu lands- sambandsins og er hún til umræðu hjá félögunum. Við reiknum með að fara fram á viðræður við vinnuveitendur einhvern næstu daga. Kröfur okkar eru í svipuðum anda og kröfur verkamannasambandsins, við förum fram á ýmsar flokkatilfærslur og launahækkanir. Við höfum allan tím- ann mikla samvinnu við verkamanna- sambandið og upplýsingarstreymið þar á milli er stöðugt- enda erum við nánast að semja fyrir sama fólkið. Magnús Geirsson, formaður Rafiðnaðarsambands íslands: Samningum hefur verið sagt upp fyrir 90 prósent félagsmanna Rafiðnaðar- sambandsins. Við höfum enn ekki gengið frá kröfugerð okkar en við vonumst til að hefja samningaviðræður mjög fljótlega. Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Verkamannasambands ísl. Fyrst og fremst viljum við afnema þetta tvöfalda launakerfi sem býður upp á skerta yfirvinnu, skerta aldurshækkun — eða með öllu afnumda - og skerðingu á bónusfólki. Sambandið logar af reiði yfir þessu ástandi. Okkur duga engin sjö prósent - við höfum auk þess skömm á prósent- um, það er komið nóg af þeim. Við viljum fá 14.000 á lágmarkstaxta. í dag eru átta og hálfur til níu taxtar hjá okkur undir tekjutryggingu. Taxta fyrir neðan dagvinnutrygginguna verður að afnema. Fólk á þessum töxtum fer með mun verri hlut frá borði. Flest okkar félög sögðu því upp launaliðum samninganna og viðræður standa nú yfir við Vinnuveitendasam- bandið. Þær eru komnar sæmilega á stað en það er engu hægt að spá um útkomuna. Bensínverð lágt í Svíþjóð: Mikið verðstríð í allt sumar Meðan samkeppni íslensku olíufélaganna birtist ekki í verð- stríði heldur byggingu bensínaf- greiðslustaða með tilheyrandi flottheitum, þá hefur geisað hart verðstríð í Svíþjóð í sumar. Bensínverð í Svíþjóð var áður en verðstríðið hófst með því lægsta í Evrópu, milli 15 og 16 krónur ísl. fyrir lágoktan bensín. Bensínstríðið hófst með því að lítið olíufélag að meirihluta í bandarískri eigu, ARA-JET, lækkaði bensínverðið um 30 aura á líterinn í júlíbyrjun. Félagið taldi sig geta gert þetta, þar sem það rekur mannlausar bensínaf- greiðslustöðvar. önnur olíufélög brugðust við samkeppninni á þann hátt að gefa út margskonar afsláttarkort, sem þýddu í reynd lægra verð en ARA- JET bauð. Þá lækkaði ARA-JET lítr- ann í tæpar 13 krónur á lágoktan bens- íni og enn lækkuðu keppinautarnir sig. Þetta gekk svo langt að nokkrum sinn- um fór verðið niður fyrir 12 krónur. Nú voru öll olíufélögin farin að tapa á viðskiptunum og þá hófust sátta- umleitanir og leit út fyrir að nú um mánaðamótin júlí/ágúst myndu félögin á ný sættast á „fast“ verð sem kemur til með að vera ca. kr. 14.80. Olíu- og bensínmarkaðurinn í Sví- þjóð hefur dregist saman undanfarin ár. Samdrátturinn er mestur á olíu til kyndingar og þessvegna hefur sam- keppnin harðnað í sölu bílabensíns. Þrjú olíufélög hafa hætt rekstri í Svf- þjóð á síðustu árum og talið er að BP í Svíþjóð sé næst úr leik. Tvö norsk olíu- félög og eitt finnskt hafa áhuga á að komast inn á sænska markaðinn og þau hafa fylgst með þessu verðstríði af miklum áhuga. (Heimild Aften- posten). VINNAN 7

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.