Vinnan - 01.11.1984, Side 8

Vinnan - 01.11.1984, Side 8
s Formannafundur VMSI: Lagfæringar á töxtum og hækkun lægsta taxta í 14.000 krónur Tekjur fólks, sem vinnur við launahvetjandi kerfi, hafa raskast mikið Á formannafundi Verkamanna- sambands íslands sem haldinn var 19. júní var samþykkt eftir- farandi ályktun um kjaramál: 1. Formannafundur samþykkir að skora á öll félög innan Verkamannasambands ís- lands að segja upp launalið- um gildandi kjarasamninga fyrir 1. ágúst n.k., þannig að þeir verði lausir 1. september n.k. 2. Kröfugerð a) Lægsti taxti verði kr. 14.000,- á mánuði b) Taxtakerfi VMSÍ verði endurskoðað þar sem fullt tillit verði tekið til vinnuálags og starfsaldurs. c) Reiknitölur fylgi töxtum. 3. Verkamannasambandið mun í komandi kjarasamningum taka fullt tillit til raunhæfra verðlækkana sem kjarabóta. Greinargerð: Óviðunandi verður að teljast að samn- ingsbundnir taxtar séu allt niður í röskar 10.500 kr. á mánuði, þegar dagvinnutekju- trygginger 12.913 krónur. Þetta veldur því- líkri röskun á t.d. yfirvinnuálagi, að álag í eftirvinnu í 10. flokki er aðeins 20% miðað við dagvinnu, í stað 40% sem gert er ráð fyrir í samningum. Alvarleg hætta er á að slíkt ástand verði varanlegt ef ekki eru gerðar ganráðstafanir. Nægir þar að benda á reynsluna af samn- ingunum 1968, en þá var eingöngu samið um hækkun og vísitöluálag á dagvinnu. Þetta átti að verða tímabundið samkomu- lag. Yfirvinnuálag fór þá úr 60% niður í 40% og næturvinnuálag úr 100% niður í 80%. Þetta hlutfall hefur haldist síðan og ekki tekist að breyta því, þótt upphaflega hafi það aðeins átt að gilda eitt ár. Óeðlilegt hlýtur einnig að teljast, að taxtar fyrir bónus og önnur kaupaukakerfi, sem miðaðir voru við gildandi dagvinnukaup, skuli nú miðaðir við taxta sem liggur Iangt fyrir neðan gildandi tekjutryggingu. Astand þetta hefur raskað mjög tekjuni fólks sem vinnur við launahvetjandi kerfi, t.d. fiskvinnslufólks, þar sem bónusvinna er miðuð við 9. taxta eftir 1 ár. Sá taxti er 62.22 kr. á tímann en dagvinnutekjutrygg- ingin er 74,50. Þá hefur þetta leitt til þess að aldurshækk- anir hafa í raun fallið niður, þar sem enginn af töxtum VMSÍ nær dagvinnutekjutrygg- ingu. Þannir eru byrjendur í starfi og fólk sem unnið hefur 10 ár á sama kaupi, þótt almennir samningar geri ráð fyrir að eftir 6 ár sé aldurshækkun 12,5%, miðað við byrj- endataxta. Samningar ASÍ og VSÍ 21. febrúar sl. miðuðust við að kaupmáttur 4. ársfjórðungs 1983 héldist óskertur út samningstímabilið. Ríkisstjórnin tók í raun ábyrgð á samning- unum með þáttöku í samningsgerðinni. Nú liggur fyrir að kaupmáttur er í dag minni en gert var ráð fyrir 21. febrúar sl. Þá er ekki reiknað með neinum óvæntum aðgerðum eða hækkunum, svo sem olíuverðshækk- unum eða öðrum slíkum, sem þó liggja í loftinu. Ef verkalýðsfélögin ætla að sækja eitt- hvað af þeim kjaraskerðingum sem áttu sér stað á síðasta ári, og endurheimta þannig eitthvað af fyrra kaupmætti, þarf 8,3% kauphækkun til að ná 3. ársfj, 1983, til að ná kaupmætti 2. ársfj. þarf 17,6% hækkun og til að ná kaupmætti 1. ársfj. 1983 þarf 26,7% kauphækkun. Og til að ná meðaltalskaupmætti ársins þarf 15,1% kauphækkun 1. september nk. Framh. á nœstu síðu Á afmælisfundi Verkamannasambands íslands voru nokkrir eldri for- ystumenn og starfsmenn heiðraðir. Karl Steinar Guðnason, varafor- maður VMSÍ, afhenti þeim fána sambandsins með hinu nýja merki. Talið frá vinstri: Andrés Guðbrandsson, Hermann Guðmundsson, Björn Jónsson, Ragnar Guðleifsson, Kristín Guðmundsdóttir, Þórunn Valdimarsdóttir og Ingveldur S. Guðmundsdóttir. 8 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.