Vinnan - 01.11.1984, Qupperneq 11
,,Eina
vopnið“
Eftirfarandi tillaga frá kjaramálanefnd
var samþykkt:
„11. þing SBM lýsir andúð sinni á ný-
samþykktum lögum frá Alþingi, sem
svipti einn hóp launamanna verkfalls-
rétti. Þingið telur að verkfallsréttur sé í
raun einasta vopnið sem launafólk hef-
ur þegar til átaka kemur, og er því laga-
setningin árás á grundvallarréttindi
launafólks.“
Guðmundur Ómar Guðmundsson ræðir málin
við Benedikt Davíðsson.
Stjórn SBM
I aðalstjórn Sambands bygginga-
manna fyrir næsta kjörtímabil eru
eftirtaldir:
Formadur. Benedikt Davíðsson,
Varaformaður: Grétar Þorleifsson,
Grétar Þorsteinsson,
Hallgrímur G. Magnússon,
Karl G. Magnússon,
Halldór Höskuldsson og
Guðmundur Ómar Guðmundsson.
Á þinginu var samþykkt tillaga þess efnis að
lýsa yt'ir andstyggð á vígbúnaðarkapphlaupi
stórveldanna og öllum tilraunum þeirra og
annarra til kúgunar á þjóðum og þjóðar-
brotum hvar sem er í heiminum. Þingið lýsti
jafnframt yfir stuðningi við hugmyndina um
kjarorkuvopnalaus Norðurlönd, og þær
hreyfingar sem vinna að friði og afvopnun.
I áliti fræðslunefndar kom fram að Fræðslu-
miðstöð ætti að einbeita sér að fræðslu um
vinnuvernd.
Frá ll.þingi SBM
Húsgagnasmiðir rýna í skjölin.
Fræðsluþættir og
atvinnumálanefndir
í ályktunum atvinnumálanefndar
segir m.a.:
11. þing SBM lýsir stuðningi við
hugmyndir um það að koma á föst-
um fræðsluþáttum í útvarpi um fag-
Ieg efni og eins hagsmunamál í
byggingar- og tréiðnaði, í samvinnu
við aðila í starfsgreinum í þessum
atvinnugreinum.
1 1. þing SBM telur nauðsynlegt að
sambandið hafi forystu um að koma
á endurbótum í neytendamálum í
byggingar- og tréiðnaði. Leitað
verði samvinnu m.a. við þá aðila,
sem atvinnumálanefnd hefur haft
samstarf við undanfarna mánuði. í
því sambandi er nauðsynlegt að efla
bæði trétæknideild iðntæknistofn-
unar og Rannsóknarstofu bygging-
ariðnaðarins.
11. þing SBM áréttar að öll vinna að
atvinnumálum er hluti af kjarabar-
áttunni, þegar til lengri tíma er litið.
Því telur þingið nauðsynlegt að fé-
lögin komi sér upp atvinnumála-
nefndum, sem hafi það að verkefni
að fylgjast með atvinnumálum
heima í héraði og skapa tengsl við
starfsemi sambandsins á þessu sviði.
S.J.
Framsókn 70 ára
Verkakvennafélagið Framsókn verður
sjötíu ára 25. október n.k. í tilefni
afmælisins verður gefið út afmælisrit,
en fréttnæmara er að félagið hefur
keypt fokhelt húsnæði í hinu myndar-
lega húsi sem Sókn er að byggja við
Skipholtið.
Fyrsta önn í okt.
Félagsmálaskóli Alþýðu hefst um
miðjan október í Ölfusborgum. Byrjað
verður með fyrstu önn. Nánari upplýs-
ingar um skólann munu birtast í næsta
blaði, einnig eru veittar upplýsingar hjá
MFA. Umsóknir á að senda til við-
komandi verkalýðsfélags.
VINNAN 11