Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 2
Lognið á undan bolludeginum
Bakarar hjá Reyni bakara í Kópavogi undirbúa bolludaginn. Þeir munu baka tuttugu þúsund bollur í ár og segjast vera meðal fárra bakaría sem
gera vatnsdeigið frá grunni, soðið upp á gamla mátann. Landsmenn er hvattir til að útbúa bolluvendina í ár í tveggja metra lengd. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
TÓNLIST Könnun meðal norrænna
kvikmyndatónskálda sýnir heldur
dökka stöðu þeirra. Í könnuninni
kemur fram að um helmingur
aðspurðra tónskálda hefur verið
beðinn um að gefa eftir hluta af höf-
undarrétti sínum til framleiðslu-
fyrirtækja og ríf lega þriðjungur
hreinlega missti verkefnið þar sem
fólkið sætti sig ekki við slíka skil-
mála. Innkoma streymisveitna eins
og Netflix hefur haft mikil áhrif á
þetta samningsumhverfi.
Fjallað verður um könnunina
á Norrænu kvikmyndatónlistar-
verðlaunahátíðinni sem fer fram í
næstu viku en hún nefnist Harpa og
hafa íslensk tónskáld verið einkar
sigursæl á hátíðinni á undanförnum
árum. Tónlistin í kvikmyndunum
Kona fer í stríð, Undir trénu og
Hrútum hefur unnið verðlaunin
sem voru sett á laggirnar árið 2009.
STEF kom að mótun könnunar-
innar og segir Guðrún Bjarnadóttir,
framkvæmdastjóri STEFs að þetta
sé í fyrsta sinn sem svona könnun
sé gerð. Hún veiti nýjar upplýsingar.
„Við höfum orðið vitni að þess-
ari þróun og STEF sendi sérstaka
áskorun fyrir skömmu til Sam-
bands íslenskra kvikmyndafram-
leiðenda um að gæta betur að rétt-
indum tónhöfunda á framsali eða
sölu til streymisveitna eins og Net-
flix. Þetta er stórt hagsmunamál og
hefur verið töluvert í umræðunni
því það þarf að gæta betur að rétt-
indum kvikmyndatónskálda,“ segir
Guðrún.
Streymisveiturnar, eins og Net-
f lix, hafa verið að reyna að koma
með ameríska starfshætti inn í
Evrópu með það sem mætti kalla
uppkaupssamningum. Þá kaupir
streymisveitan öll réttindi myndar-
innar og höfundur fær eingreiðslu í
byrjun en síðan ekki söguna meir.
„Það þýðir að sama hversu vel
myndinni gengur og hversu mikið
henni er streymt þá nýtur höf-
undurinn ekki góðs af því. Fær bara
þessa einu greiðslu í upphafi og þá
er búið að aftengja árangur mynd-
arinnar og laun,“ segir Guðrún.
Hún bendir á að það séu ekki
góðar fréttir að þriðjungur tón-
skálda hafi misst verkefni fyrir það
eitt að standa á sínum réttindum.
„Það sem kemur þarna fram er svo-
lítið sjokkerandi. Við höfum vitað
að þetta sé vaxandi en þetta sýnir
hversu algengt þetta er.“
Ráðstefnan í ár fer fram á netinu
vegna aðstæðna en verðlaunin
verða af hent á fimmtudag. Í ár er
hljómsveitin Hugar tilnefnd af
hálfu Íslands fyrir tónlist sína við
heimildarmyndina The Vasulka
Effect. Þeir Bergur Þórisson og Pétur
Jónsson mynda Huga. „Í tengslum
við verðlaunahátíðina er ráðstefna
og boðið upp á spjall við höfunda
og myndirnar jafnvel sýndar. Það
verða fleiri fyrirlestrar í boði en um
þessa könnun, eins og ýmsa þætti
sem snúa að kvikmyndatónlist.“
benediktboas@frettabladid.is
Streymisveitur vilja
hirða verk tónskálda
Helmingur tónskálda á Norðurlöndum hefur verið beðinn um að gefa eftir
hluta af höfundarrétti til framleiðslufyrirtækja. Þetta er niðurstaða nýrrar
könnunar. Þriðjungur hefur misst verkefni vegna höfnunar slíkra skilmála.
Hildur Guðnadóttir tók við Emmy verðlaunum í fyrra, en það ár rakaði hún
til sín öllum helstu verðlaunum fyrir kvikmyndatónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Við höfum vitað að
þetta sé vaxandi en
þetta sýnir hversu algengt
þetta er.
Guðrún Björk
Bjarnadóttir,
framkvæmda-
stjóri Stefs
STJÓRNMÁL Guðmundi Inga Þór-
oddssyni, formanni Afstöðu, verður
ekki boðið sæti á framboðslistum
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Hann staðfestir þetta í samtali við
Fréttablaðið. Ástæðuna segir hann
meinta óvissu um kjörgengi hans.
„Ég skil afstöðu uppstillingar-
nefndar þótt ég sé algerlega ósam-
mála ályktun hennar um kjörgeng-
ið,“ segir Guðmundur, sem losnaði
við ökklaband í ágúst í fyrra eftir
afplánun í fangelsi. Óflekkað mann-
orð er skilyrði kjörgengis, en Guð-
mundur segir lögin ekki skýr um lok
afplánunar. Hugtökum um reynslu-
lausn og reynslutíma sé ruglað
saman en sjálfur lýkur Guðmundur
reynslutíma eftir rúm tvö ár. Hann
telur sig hafa lokið afplánun.
„Það eru mikilvæg mannréttindi
einstaklinga í lýðræðisríki að bjóða
sig fram í kosningum. Takmarkanir
á þeim rétti þurfa að vera málefna-
legar, skýrar og afdráttarlausar,“ segir
Guðmundur. Hann segist þó alveg
halda ró sinni. „Ég ætla ekki að vera
með neinn uppsteyt, eins og annað
og virðulegra fólk í flokknum hefur
leyft sér undanfarna daga, þótt þetta
valdi mér auðvitað vonbrigðum,“
segir Guðmundur og telur betrunar-
starf sitt hafa komið að miklu gagni
að undanförnu. „Ég hef ekki upplifað
svona andrúmsloft síðan ég losnaði
af Hrauninu fyrir mörgum árum.“
Guðmundur naut töluverðrar hylli
í skoðanakönnun meðal f lokks-
manna fyrir skömmu og var einn
þriggja karlmanna meðal tíu vin-
sælustu frambjóðenda. Hann segist
ekki hafa tekið ákvarðanir lengra
fram í tímann en um mætingu á
fund flokksfélagsins í Reykjavík eftir
hádegi í dag, þar sem framboðslistar
í Reykjavík verða bornir upp til sam-
þykktar. – atv
Guðmundur fær ekki sæti á lista
Guðmundur Ingi
Þóroddsson, for-
maður Afstöðu
LEIT OG BJÖRGUN Pakistanska
hernum hefur tekist að rekja síðustu
GPS-stað setningu fjallgöngumann-
anna Johns Snorra Sigurjónssonar,
Muhammad Ali Sadpara og JP Mohr,
sem eru týndir á K2. Pakistanski
miðillinn ARY News greindi frá
þessu í gær.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
nýtir leitarliðið ýmsa tækni við leit-
ina að þremenningunum, sem ekk-
ert hefur spurst til síðan 5. febrúar.
Hitamyndavélar og herflugvélar eru
meðal annars notaðar við leitina, en
í umfjöllun ARY News kemur fram
að gervihnattarmyndir frá Síle og
Geimvísinda- og tækniskrifstofu
Íslands, af K2-svæðinu, hafi verið
nýttar til að kortleggja leitarsvæðið.
Vitað sé nákvæmlega hvar GPS-sam-
band þremenninganna rofnaði.
Þegar hefur komið fram að yfir-
völd í Pakistan hafa ákveðið að leitin
að John Snorra og sam ferða mönnum
hans muni halda áfram næstu 60
daga en búðir þeirra á K2 verða að
teknar niður í dag. – aá
Vitað hvar GPS-
samband Johns
Snorra rofnaði
Leitað verður á K2 næstu sextíu
daga að sögn pakistanska hersins.
Undirbúningsstyrkir
Styrkir til sýningaverkefna
Útgáfu-, rannsóknastyrkir
og aðrir styrkir
M
yn
dl
is
ta
rs
jó
ðu
r
Veittir verða styrkir allt að 3.000.000 kr.
Umsóknafrestur er til miðnættis 18. febrúar 2021
Upplýsingar um myndlistarsjóð,
umsóknareyðublað, úthlutunar-
reglur ásamt leiðbeiningum má
finna á vefsíðu myndlistarsjóðs
myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í marsmánuði.
Um er að ræða fyrri úthlutun
úr sjóðnum árið 2021.
Umsóknarfrestur
í myndlistarsjóð
rennur út
18. febrúar
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð