Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 28
heima við sé kannski bara frekar málið,“ segir Halla Bára og bendir á að fólk sé farið að gefa heimilinu dýrmætan tíma og endurhugsa hlutina. Þannig átti það sig betur á hvað megi losa sig við, hvað skipti máli og hverju gæti verið gaman og gott að bæta við og breyta. „Flestir hafa fundið fyrir miklu dýpri tengslum við heimilið sitt. Virkilega áttað sig á því að það er sá staður sem skiptir máli, þar sem við erum við sjálf, f innum fyrir öryggi og hefur haldið utan um okkur. Heimilið nánast greip fólk sem fannst það í lausu lofti við þessar miklu breytingar sem allir hafa upplifað á einu ári. Það varð að virkilegu heimili en ekki bara íveru- stað margra sem alltaf voru á ferð og f lugi og stöldruðu lítið við. Margir hafa aldrei verið jafnmikið heima hjá sér og undanfarna mánuði og það er full ástæða til að gera ráð fyrir að umgjörð um heimilið muni hafa tekið varanlegum breytingum hjá flestum.“ Nostalgía fram undan Halla Bára vill meina að flest heimili muni koma breytt út úr heimsfar- aldri enda sæki fólk frekar í einfald- leika þegar óvissa steðji að. „Ætli ákveðin nostalgía einkenni ekki komandi árstíðir, strauma og stefnur. Það er sótt í það sem við þekkjum og við vitum að hefur stað- ist tímans tönn,“ segir Halla Bára og bendir á setningu sem innihaldi mikinn sannleika: „Það þarf ekki alltaf að finna upp á einhverju nýju, það þarf miklu frekar að sýna kjark og framsýni í að nota það besta úr gömlum hugmyndum.“ Hún segir fólk nú sækja í mýkt og hlýju, náttúruleg efni, vandaðan textíl, allt sem gott er að snerta og vefja um sig, þægilega lýsingu og húsgögn sem fara vel með okkur. „Margir hafa farið vel í gegnum dótið sitt, áttað sig á því hvað skiptir máli, hvað segir sögu og felur í sér minningar.“ Halla Bára segir að, að hennar mati hafi tískustraumar, „trend“, verið háværir síðustu ár en þó megi ekki vanmeta mátt þess sem við köllum tísku. „Tískan er tíðarandinn, hún er drifkraftur, en á aldrei að leiða útlit og yfirbragð í innanhússhönnun og arkitektúr. Tískan veitir innblástur en það góða er að hún ætti líka að fá fólk til að hugsa um hvað það á, hvað það elskar af sínu dóti, hvað er skemmtilegt að gera í kringum sig og hvernig tískan má spila þarna inn með. En þá skulum við líka spyrja okkur hvort það sem okkur langar í geri eitthvað fyrir heimil- ið, fyrir okkur, mun það endast og eldast vel inni í okkar umgjörð. Eða eins og Terence Conran, stofnandi Habitat hafði svo staðfasta trú á, að ef við umvefjum okkur hlutum sem skipta okkur máli, þá sé það ákveðin útgáfa af sköpunargáfu sem skili sér út í umhverfið og margir hagnist á.“ Jarðtengdir litir Halla Bára er rög við að spá fyrir um tískustrauma í innanhússhönnun fyrir árið 2021 og vill frekar að fólk fylgi eigin sannfæringu í þeim efnum. „Það má samt ekki gerast að ef þú virkilega elskar bleikt, ætlar að gera upp baðherbergið þitt og langar að hafa það bleikt, að þú hættir við að gera það bleikt af því að bleikt er búið að vera vinsælt! Það má alls ekki stoppa fólk en ég heyri slíkt allt of oft.“ Hún segir marga tengja liti við tískustrauma en þeir séu mjög jarð- tengdir um þessar mundir. „Það er sérstaklega vegna þess hve náttúran og mikilvægi hennar spilar stóran þátt í lífi fólks nú um stundir.“ Hún segir þá liti sem nú einkenni litakortin séu svolítið í anda átt- unda áratugarins. „Litir sem ekkert endilega hafa verið vinsælir síðustu ár en fólk kann að meta í dag. En ég ítreka það sem ég hef nefnt, að ef þú hefur málað alla íbúðina þína í gráum tóni, og þér finnst allir segja að grátt sé ekki lengur í tísku og þú finnur ekki litinn á litaspjaldi, þá máttu samt vera ánægður með gráa litinn sem þú valdir og standa með þínu vali.“ Mjúkar línur og mörg lög Þægindi og vellíðan munu hafa betur gagnvart húsgögnum og hlut- um sem ekki sinna sínu hlutverki að mati Höllu Báru. „Umhverfisvit- und er lykilatriði, minni úrgangur og það sem frá fellur. Hlutir skulu eldast vel og endast vel. Nostalgía í litum og litasamsetningum. Náttúran f læðir inn. Geymslu- pláss hefur forgang. Pláss notað til hins ítrasta. Leitað í heiðarlega og sanna umgjörð fyrir heimilið sem lýsir fólkinu sem þar býr. Áhugi á gömlum hlutum og notuðum og að dót öðlist nýtt líf. Hlutir skulu hafa margþætt gildi og meira notagildi en hefur tíðkast,“ segir hún og spáir því jafnframt að vandað handverk og hönnun styrkist í sessi. Halla Bára talar um mýkri línur, mýkri efni og f leiri lög. „Eitt lag er kannski gólfefni, svo kemur motta, sófi, púðar, teppi, gardínur og fleira. Lagskipting er að miklu leyti tengd textíl og áferð og að bæta í þann hluta heimilisins. Það er einmitt textíll og áferðir sem kalla fram hlýju sem fólk sækist eftir.“ Fólk gefur sér tíma til að bæta Mikið hefur verið fjallað um að fólk sé að taka til hendinni heima fyrir í þeim samkomutakmörkunum sem eru við lýði og segist Halla Bára vissulega hafa tekið eftir stækkandi röð í Sorpu með fulla bíla og kerrur af dóti sem til fellur á heimilum landsmanna. „Mér finnst alltaf gott og gilt að fólk sé að taka til í kringum sig og einfalda líf sitt. Margt af þessu sem fólk er að henda er auðvitað týpískt drasl og dót en það er líka margt sem er það alls ekki. Ég veit að fólk hefur þurft að fleygja húsgögnum í stað þess að koma þeim í nytjagám en það hefur þá viljað gefa þau í stað þess að henda í ruslið. Starfs- menn Sorpu bentu á í þessu tilfelli að það vildi enginn svona og því skyldi mublunni f leygt. Þannig að það er ljóst að mikið hefur verið af gömlu og svo líka alls ekki gömlu dóti í Sorpu. Þetta þýðir samt alls ekki að allir séu að kaupa sér nýtt, bara frekar að losa geymsluna og skúrinn,“ segir Halla Bára en vill þó meina að endurnýting sé komin sterkt inn í huga fólks. „Það sem hins vegar er áberandi er að fólk er virkilega að breyta og bæta heima við. Allt frá því að gera eldhúsið sitt upp frá grunni í það að mála og færa til. Fólk er ekki vant því að eyða svona miklum tíma heima og við það hefur það gefið gaum ýmsum hlutum sem það velti kannski ekki svo mikið fyrir sér áður, hvað þá lét þá angra sig. Og þar sem fólk er miklu meira heima, þá gefur það sér líka tímann sem þarf til að breyta og bæta og gera það af alúð og ástríðu. Heimilið á það aldeilis skilið eftir að hafa sannað gildi sitt síðustu mánuði,“ segir hún að lokum. Halla Bára segir fólk nú sækja í mýkt, náttúruleg efni og húsgögn sem fara vel með okkur. MYND/HOUSE DOCTOR Hlýjan er framkölluð á ýmsan hátt. Náttúran spilar stórt hlutverk. Þægindi og vellíðan skipta jafnvel enn meira máli en áður og nefnir Halla Bára mýkri línur, mýkri efni og fleiri lög. MYND/ HOUSE DOCTOR FLESTIR HAFA ÞURFT AÐ HUGSA FYRIR ÞVÍ AÐ FÁ SEM MEST ÚT ÚR HEIMILI SÍNU OG UMHVERFI ÞESS OG ÞÆR ÞARFIR SEM HEIM- ILIÐ ALMENNT SINNIR HAFA MARGFALDAST Í UM- FANGI. 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.