Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 50
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti
og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti
og tengd mál. Hjá PFS starfa 30 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, við-
skiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fulltrúi í rekstrardeild kemur að flestum verkefnum sem snúa að daglegum rekstri stoð-
þjónustu, s.s. reikningagerð, áætlanagerð, uppgjöri, starfsmannahaldi og öðru því sem þarf að
sinna í rekstrardeild.
• Hlutverk fulltrúa er að hafa umsjón og eftirlit með útsendingu álagningarseðla vegna gjalda
hjá PFS. Einnig að hafa umsjón með bókun reikninga, innkaupakortum, gerð ferðapantana og
greiðslu dagpeninga. Daglegur rekstur skrifstofu og umsjón með grænu bókhaldi er einnig á
ábyrgðarsviði fulltrúa.
Fulltrúi sér ásamt öðrum starfsmönnum Rd um afgreiðslu og þjónustu við ytri og innri viðskipta-
vini PFS.
• Leitað er að ábyrgum aðila sem býr yfir jákvæðu viðmóti og sveigjanleika og getur unnið sjálf-
stætt. Starfshlutfall er 50% og samið verður um sveigjanlegan vinnutíma eftir álagi á vinnustað
og þörfum starfsmanns.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði viðskiptafræði
• Stúdentspróf af viðskiptabraut, eða annað sérhæft nám sem nýtist í starfi og haldgóð reynsla
af skyldum störfum gæti verið metið í staðinn.
• Góð almenn tölvukunnátta (m.a. Excel, Word, Outlook)
• Reynsla af eða skilningur á færslu bókhalds
• Reynsla af notkun Oracle fjárhagskerfi ríkisins er kostur
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Nákvæmni og vandvirkni
• Áreiðanleiki og heiðarleiki og sveigjanleiki
• Sjálfstæði, samstarfshæfni og jákvæðni
Fulltrúi í rekstrardeild
Póst- og fjarskiptastofnun leitar að nýjum liðsmanni í rekstrardeild, en starf fulltrúa er laust til umsóknar. Starfshlutfall er áætlað 50% og vinnutími getur verið sveigjanlegur.
Starfið felur í sér almenn skrifstofustörf, vinnu við bókhaldskerfi, aðstoð við áætlanagerð, þjónustu við innri og ytri viðskiptavini og fleira sem fylgir starfsemi rekstrardeildar.
Meginverkefni rekstrardeildar eru; Fjármál, rekstur og skrifstofuhald, mannauður, gæðamál og gæðaferlar, kynningarmál og almannatengsl, upplýsingatækni, upplýsingakerfi og
innra öryggi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
PFS hvetur alla sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um laus störf, óháð kyni. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar nk. Umsjón með starfinu hefur Hrefna Ingólfsdóttir, forstöðumaður rekstrardeildar. Netfang hrefna@pfs.is Umsóknir óskast fylltar út á Starfatorgi.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
SUMAR
STÖRF
Reykjavíkurborg leitar að öflugu og jákvæðu fólki í fjölbreytt
og skemmtileg afleysinga- og sumarstörf.
Hægt er að sækja um margskonar störf sem snerta daglegt líf
borgarbúa með ýmsum hætti með það að leiðarljósi að gera
Reykjavík að lifandi og fallegri borg.
Stefna Reykjavíkurborgar er að vera einn vinnustaður í öllum
sínum fjölbreytileika og hafa aðdráttarafl fyrir hæfileikaríkt
og metnaðarfullt fólk sem vinnur í þágu borgarbúa.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Kynntu þér störfin sem eru í boði á vefsíðu Reykjavíkurborgar:
reykjavik.is/sumarstorf
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars.
Fjölbreytt sumarstörf í Reykjavík
Sjónarhóll, ráðgjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með
sérþarfir, óskar eftir að ráða ráðgjafa í fullt starf út þetta
ár, með möguleika á lengri ráðningu.
Starfið felur í sér óháða ráðgjöf og stuðning við foreldra
þar sem þarfir fjölskyldunnar eru hafðar að leiðarljósi.
Það felur meðal annars í sér að veita foreldrum upp-
lýsingar um rétt til stuðnings vegna þarfa fjölskyldunnar
og aðstoða við að fylgja þeim rétti eftir.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði félags-, mennta- eða
heilbrigðisþjónustu eða önnur sambærileg sérmenntun
sem nýtist í starfi.
• Reynsla af starfi með fjölskyldum barna með
sérþarfir skilyrði.
• Staðgóð þekking á úrræðum í málefnum barna með
sérþarfir og fjölskyldna þeirra skilyrði.
• Geta til að starfa sjálfstætt en jafnframt færni
í samstarfi.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
Annað:
Þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfsemi Sjónarhóls er að finna
á heimasíðunni www.sjonarholl.is.
Frekari upplýsingar veitir Elísabet Marteinsdóttir,
framkvæmdastjóri í síma 5351900.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til Sjónarhóls –
ráðgjafarmiðstöðvar ses. á Háaleitisbraut 11-13 fyrir
23. febrúar nk. eða á netfangið elisabet@sjonarholl.is
Ráðgjafi óskast
14 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R