Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 44
Spennandi störf í þágu stafrænnar umbreytingar sveitarfélaga með sveigjanlegri staðsetningu
Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að tveimur framsýnum og metnaðarfullum verkefnastjórum til að starfa í nýju stafrænu teymi sveitarfélaganna á vegum Sambands íslenskra sveitar-
félaga. Teymið mun vinna að framkvæmd sameiginlegra verkefna á sviði stafrænna umbreytinga. Annars vegar með áherslu á verkefnisstjórnun vegna þróunar sameiginlegrar þjónustulausna
og þekkingarvefs og hins vegar vegna mótunar tæknistefnu og tæknistrúktúrs. Um er að ræða störf til tveggja ára og verður teymið leitt af leiðtoga stafræna teymisins.
Þeir sem ráðnir verða þurfa að hafa skýra sýn á þau tækifæri sem stafræn umbreyting felur í sér, frumkvæði, kraft og metnað til að hrinda breytingum í framkvæmd með góðum árangri. Þeir
þurfa að búa yfir góðum samskipta- og samstarfshæfileikum, getu til að taka ákvarðanir og breiðri þekkingu sem nýtist í starfi.
Mikil áhersla verður lögð á góða samvinnu innan teymisins, góðan starfsanda, traust, sjálfstæði og árangur.
Frekari upplýsingar um starfið
Sérstaklega er vakin athygli á því að þeir sem ráðnir verða geta haft starfsstöð utan höfuðborgarsvæðisins á einhverjum af þeim starfstöðvum sem Byggðastofnun hefur kynnt fyrir störf án
staðsetningar, og má finna á vefsíðu stofnunarinnar eða sambærilegri aðstöðu.
Umsækjendur eru beðnir um að tilgreina ósk um starfsstöð utan höfuðborgarsvæðis í umsókn sinni. Sambandið mun í því tilviki gera samning við ábyrgðaraðila viðkomandi starfsstöðvar um
notkun hennar í þágu starfsins. Starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu er á skrifstofu sambandsins að Borgartúni 30.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir, merktar Umsókn um starf
- verkefnastjórnun og vefumsjón eða Umsókn um starf - tæknistefna og tæknistrúktúr, berist eigi síðar en 28. febrúar nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128
Reykjavík, eða á netfangið samband@samband.is.
Verkefnisstjóri í stafrænni umbreytingu – tæknistefnu og tæknistrúktúr
Helstu verkefni
• Leiða vinnu sem miðar að því að auka hagkvæmni í rekstri tækniumhverfis sveitarfélaga,
tækifæri í samrekstri og gerð heildarsamninga um hugbúnaðarkaup.
• Stuðla að bættri hagnýtingu gagna og upplýsingatækni í rekstri tækniumhverfis sveitar-
félaga.
• Leiða vinnu við gerð tæknistefnu fyrir sveitarfélögin sem styður stefnumörkun stafrænnar
umbreytingar sveitarfélaganna.
• Áætlanagerð og áhættustýringu verkefna sem snúa að sameiginlegri innviðauppbyggingu á
sviði upplýsingatækni.
• Verkefnastjórnun sameiginlegra stafrænna verkefna sveitarfélaga og stuðningur við inn-
leiðingu.
• Vinna að einföldum og snjöllum lausnum með hagsmuni allra sveitarfélaga að leiðarljósi.
• Þátttakandi í ávinningsmati og forgangsröðun sameiginlegra verkefna sveitarfélaga í staf-
rænni umbreytingu.
• Fylgja eftir og miðla sjónarmiðum sveitarfélaga á sviði upplýsingatækni.
• Uppbygging stuðningsefnis og verkfæra fyrir stafræna umbreytingu sveitarfélaga.
• Stuðla með virkum hætti að auknu samstarfi sveitarfélaga og ríkis á sviði upplýsingatækni.
Hæfnikröfur
• Háskólapróf skilyrði, meistarapróf er kostur eða reynsla sem nýtist í starfi.
• Þekking og reynsla af uppbyggingu upplýsingatæknimála og stafrænni umbreytingu.
• Geta til að stýra verkefnum, setja upp skipulag og áætlanir og fylgja þeim eftir.
• Þekking og reynsla af faglegri verkefnastjórnun í stafrænni umbreytingu þar sem margir
hagaðilar koma að verkefnum.
• Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að koma skoðunum, upplýsingum og röksemdar-
færslum frá sér á skýran hátt.
• Hæfni til að greina og túlka gögn og upplýsingar á auðskiljanlegan hátt.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
• Yfirsýn og þekking á markaðsþróun upplýsingatæknimála og tækifærum.
• Mjög góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku, ásamt kunnáttu í einu Norðurlandamáli.
Verkefnisstjóri í stafrænni umbreytingu – verkefnastjórnun og vefumsjón
Helstu verkefni
• Uppbygging rafræns upplýsingavettvangs fyrir sveitarfélögin sem felur í sér framsetningu
efnis, miðlun og deilingu þekkingar og lausna sveitarfélaga sem og verkefna og kóða fyrir
sveitarfélögin í stafrænni umbreytingu.
• Byggja upp faglegt og skipulagt verklag fyrir samstarf sveitarfélaga og sameiginleg verkefni
þeirra og innleiðingu þvert á sveitarfélög.
• Þátttakandi í mati á forgangsröðun sameiginlegra verkefna sveitarfélaga í stafrænni um-
breytingu.
• Verkefnastjórnun sameiginlegra stafrænna verkefna sveitarfélaga og innleiðinga.
• Vinna að einföldum og snjöllum lausnum með hagsmuni allra sveitarfélaga að leiðarljósi.
• Þátttakandi í ávinningsmati og forgangsröðun sameiginlegra verkefna sveitarfélaga í staf-
rænni umbreytingu.
• Fylgja eftir og miðla sjónarmiðum sveitarfélaga á sviði upplýsingatækni.
• Vinna að hagnýtingu þekkingar og lausna er snýr að stafrænni umbreytingu í rekstri sveitar-
félaga.
• Gerð fræðsluefnis til að greiða fyrir innleiðingu sameiginlegra verkefna og lausna.
• Stuðla með virkum hætti að auknu samstarfi sveitarfélaga og ríkis á sviði stafrænnar
þróunar.
Hæfnikröfur
• Háskólapróf skilyrði, meistarapróf er kostur eða reynsla sem nýtist í starfi.
• Þekking og reynsla af upplýsingatækni og stafrænni umbreytingu.
• Geta til að stýra verkefnum, setja upp skipulag og áætlanir og fylgja þeim eftir.
• Þekking og reynsla af faglegri verkefnastjórnun í stafrænni umbreytingu þar sem margir
hagaðilar koma að verkefnum.
• Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að koma skoðunum, upplýsingum og röksemdar-
færslum frá sér á skýran hátt.
• Geta til að byggja upp, hanna og viðhalda vef með faglegri framsetningu upplýsinga og
gagna.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
• Mjög góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku, ásamt kunnáttu í einu Norðurlandamáli.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem býður upp á opið
vinnuumhverfi og samheldinn starfsmannahóp.
Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga
eru á vefsíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að finna nánari starfslýsingu sem
og mannauðsstefnu sambandsins.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R