Fréttablaðið - 13.02.2021, Síða 44

Fréttablaðið - 13.02.2021, Síða 44
Spennandi störf í þágu stafrænnar umbreytingar sveitarfélaga með sveigjanlegri staðsetningu Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að tveimur framsýnum og metnaðarfullum verkefnastjórum til að starfa í nýju stafrænu teymi sveitarfélaganna á vegum Sambands íslenskra sveitar- félaga. Teymið mun vinna að framkvæmd sameiginlegra verkefna á sviði stafrænna umbreytinga. Annars vegar með áherslu á verkefnisstjórnun vegna þróunar sameiginlegrar þjónustulausna og þekkingarvefs og hins vegar vegna mótunar tæknistefnu og tæknistrúktúrs. Um er að ræða störf til tveggja ára og verður teymið leitt af leiðtoga stafræna teymisins. Þeir sem ráðnir verða þurfa að hafa skýra sýn á þau tækifæri sem stafræn umbreyting felur í sér, frumkvæði, kraft og metnað til að hrinda breytingum í framkvæmd með góðum árangri. Þeir þurfa að búa yfir góðum samskipta- og samstarfshæfileikum, getu til að taka ákvarðanir og breiðri þekkingu sem nýtist í starfi. Mikil áhersla verður lögð á góða samvinnu innan teymisins, góðan starfsanda, traust, sjálfstæði og árangur. Frekari upplýsingar um starfið Sérstaklega er vakin athygli á því að þeir sem ráðnir verða geta haft starfsstöð utan höfuðborgarsvæðisins á einhverjum af þeim starfstöðvum sem Byggðastofnun hefur kynnt fyrir störf án staðsetningar, og má finna á vefsíðu stofnunarinnar eða sambærilegri aðstöðu. Umsækjendur eru beðnir um að tilgreina ósk um starfsstöð utan höfuðborgarsvæðis í umsókn sinni. Sambandið mun í því tilviki gera samning við ábyrgðaraðila viðkomandi starfsstöðvar um notkun hennar í þágu starfsins. Starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu er á skrifstofu sambandsins að Borgartúni 30. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir, merktar Umsókn um starf - verkefnastjórnun og vefumsjón eða Umsókn um starf - tæknistefna og tæknistrúktúr, berist eigi síðar en 28. febrúar nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða á netfangið samband@samband.is. Verkefnisstjóri í stafrænni umbreytingu – tæknistefnu og tæknistrúktúr Helstu verkefni • Leiða vinnu sem miðar að því að auka hagkvæmni í rekstri tækniumhverfis sveitarfélaga, tækifæri í samrekstri og gerð heildarsamninga um hugbúnaðarkaup. • Stuðla að bættri hagnýtingu gagna og upplýsingatækni í rekstri tækniumhverfis sveitar- félaga. • Leiða vinnu við gerð tæknistefnu fyrir sveitarfélögin sem styður stefnumörkun stafrænnar umbreytingar sveitarfélaganna. • Áætlanagerð og áhættustýringu verkefna sem snúa að sameiginlegri innviðauppbyggingu á sviði upplýsingatækni. • Verkefnastjórnun sameiginlegra stafrænna verkefna sveitarfélaga og stuðningur við inn- leiðingu. • Vinna að einföldum og snjöllum lausnum með hagsmuni allra sveitarfélaga að leiðarljósi. • Þátttakandi í ávinningsmati og forgangsröðun sameiginlegra verkefna sveitarfélaga í staf- rænni umbreytingu. • Fylgja eftir og miðla sjónarmiðum sveitarfélaga á sviði upplýsingatækni. • Uppbygging stuðningsefnis og verkfæra fyrir stafræna umbreytingu sveitarfélaga. • Stuðla með virkum hætti að auknu samstarfi sveitarfélaga og ríkis á sviði upplýsingatækni. Hæfnikröfur • Háskólapróf skilyrði, meistarapróf er kostur eða reynsla sem nýtist í starfi. • Þekking og reynsla af uppbyggingu upplýsingatæknimála og stafrænni umbreytingu. • Geta til að stýra verkefnum, setja upp skipulag og áætlanir og fylgja þeim eftir. • Þekking og reynsla af faglegri verkefnastjórnun í stafrænni umbreytingu þar sem margir hagaðilar koma að verkefnum. • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að koma skoðunum, upplýsingum og röksemdar- færslum frá sér á skýran hátt. • Hæfni til að greina og túlka gögn og upplýsingar á auðskiljanlegan hátt. • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri. • Yfirsýn og þekking á markaðsþróun upplýsingatæknimála og tækifærum. • Mjög góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku, ásamt kunnáttu í einu Norðurlandamáli. Verkefnisstjóri í stafrænni umbreytingu – verkefnastjórnun og vefumsjón Helstu verkefni • Uppbygging rafræns upplýsingavettvangs fyrir sveitarfélögin sem felur í sér framsetningu efnis, miðlun og deilingu þekkingar og lausna sveitarfélaga sem og verkefna og kóða fyrir sveitarfélögin í stafrænni umbreytingu. • Byggja upp faglegt og skipulagt verklag fyrir samstarf sveitarfélaga og sameiginleg verkefni þeirra og innleiðingu þvert á sveitarfélög. • Þátttakandi í mati á forgangsröðun sameiginlegra verkefna sveitarfélaga í stafrænni um- breytingu. • Verkefnastjórnun sameiginlegra stafrænna verkefna sveitarfélaga og innleiðinga. • Vinna að einföldum og snjöllum lausnum með hagsmuni allra sveitarfélaga að leiðarljósi. • Þátttakandi í ávinningsmati og forgangsröðun sameiginlegra verkefna sveitarfélaga í staf- rænni umbreytingu. • Fylgja eftir og miðla sjónarmiðum sveitarfélaga á sviði upplýsingatækni. • Vinna að hagnýtingu þekkingar og lausna er snýr að stafrænni umbreytingu í rekstri sveitar- félaga. • Gerð fræðsluefnis til að greiða fyrir innleiðingu sameiginlegra verkefna og lausna. • Stuðla með virkum hætti að auknu samstarfi sveitarfélaga og ríkis á sviði stafrænnar þróunar. Hæfnikröfur • Háskólapróf skilyrði, meistarapróf er kostur eða reynsla sem nýtist í starfi. • Þekking og reynsla af upplýsingatækni og stafrænni umbreytingu. • Geta til að stýra verkefnum, setja upp skipulag og áætlanir og fylgja þeim eftir. • Þekking og reynsla af faglegri verkefnastjórnun í stafrænni umbreytingu þar sem margir hagaðilar koma að verkefnum. • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að koma skoðunum, upplýsingum og röksemdar- færslum frá sér á skýran hátt. • Geta til að byggja upp, hanna og viðhalda vef með faglegri framsetningu upplýsinga og gagna. • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri. • Mjög góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku, ásamt kunnáttu í einu Norðurlandamáli. Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi og samheldinn starfsmannahóp. Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á vefsíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að finna nánari starfslýsingu sem og mannauðsstefnu sambandsins. Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is 8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.