Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 32
dásamlegu fiskibollum ásamt góðum rjómabollum og látið dekra við sig í tilefni dagsins. En Marentza er þekkt fyrir sína alúð­ legu framkomu og einstaklega ljúffenga matseld og bakstur sem lætur engan ósnortinn. Fiskibollur að hætti Marentzu 20 stykki 700 g þorskur 300 g nýr lax 3 skalottlaukar, fínt saxaðir 2 msk. hveiti, má vera glútenlaust 3 egg ½ dl rjómi 2 tsk. salt, má vera meira, fer eftir smekk 1–2 tsk. pipar 1 tsk. fiskikrydd frá Kryddhúsinu 2 dl fínt saxað ferskt dill Setjið þorskinn í hakkavél eða matvinnsluvél, síðan er allt hráefnið nema laxinn sett í hræri­ vélarskálina og hrært mjög vel saman. Það skiptir miklu máli að hræra hráefninu vel saman, þannig verða bollurnar þéttar og fínar. Laxinn er síðan skorinn í teninga og bætt varlega saman við fisk­ farsið. Búið til 20 fallegar bollur. Mér finnst best að gera bollurnar deginum áður en ég steiki þær og þær standa í kæli yfir nótt. Sítrus-kartöflumús 3 bökunarkartöflur afhýddar, skornar í bita og soðnar þar til þær eru orðnar mjúkar 4 msk. smjör, má vera vegan ½ dl rjómi, má vera vegan Rifinn börkur af einni sítrónu 1 msk. sítrónusafi Salt og pipar eftir smekk Hellið vatninu af soðnu kart­ öflunum og stappið þær frekar gróft með þeytara, bætið öllu hráefninu saman við og hrærið varlega, ekki er gott að hræra of mikið í kartöflumúsinni, þá getur hún orðið seig. Smurbrauðsdrottningin fullkomnar bolludaginn Marentza Poulsen, sem margir þekkja sem smurbrauðsdrottningu Íslands, er ein af þeim sem elskar hefðir og fer alla leið þegar kemur að matarhefðum sem gleðja hjarta og sál. Marentza Poulsen heldur í íslenskar hefðir og býður hér lesendum upp á uppskriftir að fiskibollum og sætum bollum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIG- TRYGGUR ARI Sjöfn Þórðardóttir sjofn@torg.is Matarást Sjafnar Fiskibollur með ferskum kryddjurtum og laxi ásamt sítrus-kartöflumús. Vegan bollu- dagsbollurnar hennar Mar- entzu líta svona líka flottar út og bragðast einnig vel. Ég baka mínar eigin bollur fyrir þennan skemmtilega dag, ég elska hefðir og held fast í þær. Þetta er algjör bolludagur í allri sinni mynd.“ Marentza er eigandi og rekstraraðili Klambra bistró á Kjarvalsstöðum og þar fær matarástríða hennar að njóta sín til fulls, gestum hennar til mikillar gleði. Vegan bollurnar í hávegum hafðar „Þar sem góður hluti af fjölskyld­ unni minni er vegan er ég farin að baka vegan bollur þannig að allir geta borðað þær, það er enginn munur á bragðinu, allavega ekki á þessum bollum. Það er líka auðvelt að skipta út nýmjólk fyrir hafra­ mjólk og smjöri fyrir smjörlíki og venjulegum rjóma fyrir vegan rjóma.“ Fiskibollur með ferskum kryddjurtum og laxi „Ég geri líka mínar eigin fiskibollur en þær eru ekki alltaf eins. Það er svo gaman að prófa alls konar, bæði með ferskum kryddjurtum og öðru kryddi og svo að bæta laxi saman við farsið. Við borðum mikinn lax og það er freistandi að prófa að blanda honum saman við farsið. Útkoman er hreint út sagt ótrúlega góð og bollurnar gleðja bragðlaukana til fulls. Það má auð­ vitað sleppa laxinum fyrir þá sem finnst hann ekki góður, bollurnar eru góðar fyrir það.“ Bolludagurinn á Klambra bistró Þeir sem hafa ekki tíma til að útbúa bollur á bolludaginn geta komið við á Klömbrum á Kjar­ valsstöðum og gætt sér á þessum Appelsínu-gulrætur Gulrætur eru skrældar og skornar til helminga eða í fjóra hluta, settar í eldfast mót ásamt rifnu hýði af einni appelsínu, safa af heilli eða hálfri, allt eftir hversu stór skammt­ urinn er, ásamt olíu, salti og pipar. Vökvinn á ekki að flæða yfir gul­ ræturnar. Bakið í ofni í nokkrar mínútur, eða þar til gulræturnar eru passlega mjúkar. Agúrku-remúlaði ½ agúrka 2 meðalstórar gulrætur ½ dl sýrður rjómi eða Oatly Naturel Maustamaton 3 msk. majónes, má vera vegan 2 tsk. karrí 50 g syltede agurker (cornichoner) ½ dl saxað ferskt dill Salt og pipar Skerið agúrkuna til helminga langsum og takið kjarnann úr með teskeið, skerið agúrkuna í strimla og síðan í litla teninga. Gulræturn­ ar eru skrældar, skornar í strimla og síðan í litla teninga. Sýrðu gúrkurn­ ar (cornichoner) eru einnig skornar í strimla og síðan í teninga. Sýrði rjóminn og majónesið er hrært vel saman ásamt kryddinu og síðan er grænmetinu blandað saman við. Smakkið til með salti og pipar. Klambra bistró vegan bolludagsbollur 5 dl fingurvolgt mjólkurvatn, vatn og haframjólk til helminga 100 g blautt pressuger eða 1 bréf þurrger, u.þ.b. 12 g 50 g sykur 100 g smjörliki brætt eða 1 dl olía 1 tsk. salt 800–1.000 g hveiti Byrjið á því að hita ofninn í 200 °C. Blandið geri saman við volgt mjólkurvatnið ásamt sykri, salti og olíu eða smjörlíki, og það hrært vel saman, síðan er hveitinu bætt út í rólega og hnoðað þar til deigið losnar frá skálinni. Deigið er látið hefast í um það bil 30 mínútur. Deigið er sett á hveitistráð borð og hnoðað aðeins með höndunum og búnar eru til bollur úr deiginu. Þeim síðan raðað á ofnplötu klædda bökunarpappír og látnar hefast í um það bil 15 mínútur. Bakið bollurnar við 200 °C í 15 til 20 mínútur. Kremið ljúfa á milli 2 ½ dl vegan rjómi þeyttur 1 tsk. flórsykur 3 tsk. núggat/heslihnetusmjör Byrjið á því að hræra vel saman flórsykur og núggat eða heslihnetu smjör og og setjið síðan varlega saman við þeytta rjómann. Setjið á milli í bollurnar. Súkkulaðitoppurinn á bollurnar Bræðið hvítt vegan súkkulaði yfir vatnsbaði, bætið örlitlu af rauðum matarlit út í súkkulaðið og blandið því vel saman. Þetta er sett ofan á lok á bollunum og síðan skreytt með ferskum berjum að eigin vali. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA Föstudaginn 26. febrúar gefur Fréttablaðið, í samstarfi við Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð, út sérblað um Samfélagsábyrgð fyrirtækja. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Arnar Magnússon, sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími: 550-5652 / arnarm@frettabladid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.