Fréttablaðið - 13.02.2021, Side 32
dásamlegu fiskibollum ásamt
góðum rjómabollum og látið
dekra við sig í tilefni dagsins. En
Marentza er þekkt fyrir sína alúð
legu framkomu og einstaklega
ljúffenga matseld og bakstur sem
lætur engan ósnortinn.
Fiskibollur að hætti
Marentzu
20 stykki
700 g þorskur
300 g nýr lax
3 skalottlaukar, fínt saxaðir
2 msk. hveiti, má vera glútenlaust
3 egg
½ dl rjómi
2 tsk. salt, má vera meira, fer
eftir smekk
1–2 tsk. pipar
1 tsk. fiskikrydd frá Kryddhúsinu
2 dl fínt saxað ferskt dill
Setjið þorskinn í hakkavél eða
matvinnsluvél, síðan er allt
hráefnið nema laxinn sett í hræri
vélarskálina og hrært mjög vel
saman. Það skiptir miklu máli
að hræra hráefninu vel saman,
þannig verða bollurnar þéttar og
fínar.
Laxinn er síðan skorinn í teninga
og bætt varlega saman við fisk
farsið.
Búið til 20 fallegar bollur. Mér
finnst best að gera bollurnar
deginum áður en ég steiki þær og
þær standa í kæli yfir nótt.
Sítrus-kartöflumús
3 bökunarkartöflur afhýddar,
skornar í bita og soðnar þar til
þær eru orðnar mjúkar
4 msk. smjör, má vera vegan
½ dl rjómi, má vera vegan
Rifinn börkur af einni sítrónu
1 msk. sítrónusafi
Salt og pipar eftir smekk
Hellið vatninu af soðnu kart
öflunum og stappið þær frekar
gróft með þeytara, bætið öllu
hráefninu saman við og hrærið
varlega, ekki er gott að hræra of
mikið í kartöflumúsinni, þá getur
hún orðið seig.
Smurbrauðsdrottningin
fullkomnar bolludaginn
Marentza Poulsen, sem margir þekkja sem smurbrauðsdrottningu Íslands, er ein af þeim
sem elskar hefðir og fer alla leið þegar kemur að matarhefðum sem gleðja hjarta og sál.
Marentza
Poulsen heldur í
íslenskar hefðir
og býður hér
lesendum upp
á uppskriftir að
fiskibollum og
sætum bollum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@torg.is
Matarást
Sjafnar
Fiskibollur með ferskum kryddjurtum og laxi ásamt sítrus-kartöflumús.
Vegan bollu-
dagsbollurnar
hennar Mar-
entzu líta svona
líka flottar út og
bragðast einnig
vel.
Ég baka mínar eigin bollur fyrir þennan skemmtilega dag, ég elska hefðir og held fast
í þær. Þetta er algjör bolludagur
í allri sinni mynd.“ Marentza er
eigandi og rekstraraðili Klambra
bistró á Kjarvalsstöðum og þar fær
matarástríða hennar að njóta sín
til fulls, gestum hennar til mikillar
gleði.
Vegan bollurnar
í hávegum hafðar
„Þar sem góður hluti af fjölskyld
unni minni er vegan er ég farin að
baka vegan bollur þannig að allir
geta borðað þær, það er enginn
munur á bragðinu, allavega ekki á
þessum bollum. Það er líka auðvelt
að skipta út nýmjólk fyrir hafra
mjólk og smjöri fyrir smjörlíki
og venjulegum rjóma fyrir vegan
rjóma.“
Fiskibollur með ferskum
kryddjurtum og laxi
„Ég geri líka mínar eigin fiskibollur
en þær eru ekki alltaf eins. Það
er svo gaman að prófa alls konar,
bæði með ferskum kryddjurtum
og öðru kryddi og svo að bæta
laxi saman við farsið. Við borðum
mikinn lax og það er freistandi að
prófa að blanda honum saman við
farsið. Útkoman er hreint út sagt
ótrúlega góð og bollurnar gleðja
bragðlaukana til fulls. Það má auð
vitað sleppa laxinum fyrir þá sem
finnst hann ekki góður, bollurnar
eru góðar fyrir það.“
Bolludagurinn
á Klambra bistró
Þeir sem hafa ekki tíma til að
útbúa bollur á bolludaginn geta
komið við á Klömbrum á Kjar
valsstöðum og gætt sér á þessum
Appelsínu-gulrætur
Gulrætur eru skrældar og skornar
til helminga eða í fjóra hluta, settar
í eldfast mót ásamt rifnu hýði af
einni appelsínu, safa af heilli eða
hálfri, allt eftir hversu stór skammt
urinn er, ásamt olíu, salti og pipar.
Vökvinn á ekki að flæða yfir gul
ræturnar. Bakið í ofni í nokkrar
mínútur, eða þar til gulræturnar
eru passlega mjúkar.
Agúrku-remúlaði
½ agúrka
2 meðalstórar gulrætur
½ dl sýrður rjómi eða Oatly
Naturel Maustamaton
3 msk. majónes, má vera vegan
2 tsk. karrí
50 g syltede agurker
(cornichoner)
½ dl saxað ferskt dill
Salt og pipar
Skerið agúrkuna til helminga
langsum og takið kjarnann úr með
teskeið, skerið agúrkuna í strimla
og síðan í litla teninga. Gulræturn
ar eru skrældar, skornar í strimla og
síðan í litla teninga. Sýrðu gúrkurn
ar (cornichoner) eru einnig skornar
í strimla og síðan í teninga.
Sýrði rjóminn og majónesið er
hrært vel saman ásamt kryddinu
og síðan er grænmetinu blandað
saman við. Smakkið til með salti
og pipar.
Klambra bistró vegan
bolludagsbollur
5 dl fingurvolgt mjólkurvatn, vatn
og haframjólk til helminga
100 g blautt pressuger eða 1 bréf
þurrger, u.þ.b. 12 g
50 g sykur
100 g smjörliki brætt eða 1 dl olía
1 tsk. salt
800–1.000 g hveiti
Byrjið á því að hita ofninn í 200
°C. Blandið geri saman við volgt
mjólkurvatnið ásamt sykri, salti
og olíu eða smjörlíki, og það hrært
vel saman, síðan er hveitinu bætt
út í rólega og hnoðað þar til deigið
losnar frá skálinni. Deigið er látið
hefast í um það bil 30 mínútur.
Deigið er sett á hveitistráð borð og
hnoðað aðeins með höndunum
og búnar eru til bollur úr deiginu.
Þeim síðan raðað á ofnplötu
klædda bökunarpappír og látnar
hefast í um það bil 15 mínútur.
Bakið bollurnar við 200 °C í 15 til
20 mínútur.
Kremið ljúfa á milli
2 ½ dl vegan rjómi þeyttur
1 tsk. flórsykur
3 tsk. núggat/heslihnetusmjör
Byrjið á því að hræra vel
saman flórsykur og núggat eða
heslihnetu smjör og og setjið síðan
varlega saman við þeytta rjómann.
Setjið á milli í bollurnar.
Súkkulaðitoppurinn
á bollurnar
Bræðið hvítt vegan súkkulaði
yfir vatnsbaði, bætið örlitlu af
rauðum matarlit út í súkkulaðið
og blandið því vel saman. Þetta er
sett ofan á lok á bollunum og síðan
skreytt með ferskum berjum að
eigin vali.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
SAMFÉLAGSÁBYRGÐ
FYRIRTÆKJA
Föstudaginn 26. febrúar gefur Fréttablaðið, í
samstarfi við Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð, út
sérblað um Samfélagsábyrgð fyrirtækja.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna
dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Arnar Magnússon, sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími: 550-5652 / arnarm@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R