Fréttablaðið - 13.02.2021, Síða 16

Fréttablaðið - 13.02.2021, Síða 16
 FÓTBOLTI Þrátt fyrir allar tilraunir helstu af la knattspyrnuheimsins virðist vera erfitt að stoppa netníð í garð leikmanna. Á tæplega tveggja vikna tímabili hefur enska knatt- spyrnusambandið þrisvar þurft að senda út yfirlýsingu þess efnis að sambandið fordæmi netníð sem leikmenn verða fyrir á samskipta- miðlum. Margir af fremstu knatt- spyrnumönnum heims hafa greint frá kynþáttafordómum frá nafn- lausum aðilum á samskiptamiðlum undanfarnar vikur. Þá hafa þjálfarar og leikmenn komið Mike Dean til varnar und- anfarna daga eftir að Dean og fjöl- skyldu hans bárust líf látshótanir eftir að hafa dæmt leik West Ham og Fulham í ensku úrvalsdeildinni. Slík mál hafa komið upp á Íslandi en þá hafa skilaboðin komið erlendis frá og yfirleitt tengst veðmálum. Viðmælendur innan KSÍ sem Frétta- blaðið ræddi við mundu ekki eftir dæmi um að netníð í garð leik- manns frá Íslendingi hefði ratað inn á sitt borð. „Ég man ekki eftir máli þar sem athugasemdir á samskiptamiðlum í garð leikmanns hafa verið tekin fyrir. Ekki það sem kallast netníð frá Íslendingi. Við vitum hins vegar af samskiptum þar sem for- ráðamenn og leikmenn félaga hafa fengið reiðipistil utan úr heimi þar sem háar fjárhæðir voru undir í veð- málum,“ segir Haukur Hinriksson, yfirlögfræðingur KSÍ, sem sér meðal annars um aga- og kærumál fyrir Knattspyrnusamband Íslands. „Það hafa mál ratað inn á borð aganefndar þar sem köll frá áhorf- endum eða samskipti milli leik- manna eru tekin fyrir. Þá er þetta unnið út frá skýrslu dómarans en þetta er sem betur fer sjaldgæft á Íslandi. Ef komist er að niðurstöðu um brot þá leiðir það yfirleitt til refsingar í garð félags þess sem í hlut á og/eða leikmannsins.“ Í öðrum málum eða atvikum sem eiga sér stað utan kappleikja þá segir Haukur að það sé takmarkað hversu langt lögsaga KSÍ geti náð. Sé um að ræða brot einstaklinga sem ekki séu innan lögsögu KSÍ, þá sé einfaldlega um að ræða lög- reglumál. „Þar kemur það inn að lögsaga okkar hjá KSÍ nær aðeins ákveðið langt, til leikmanna, þjálfara, for- ráðamanna, starfsmanna og jafn- vel stuðningsmanna félaganna. Ef um er að ræða brot þessara ein- staklinga á leikstað eða á annan hátt í tengslum við kappleik, þá geta félögin verið gerð ábyrg fyrir brotum í þessum fáu málum sem hafa komið upp. Sé um að ræða brot sem ekki verður rakið til þess- ara einstaklinga þá er eina úrræðið að leita með málið til lögreglunnar. Við höfum hvorki lögsögu né burði til fylgja slíku máli eftir en þá værum við komin fram hjá laga- heimildum okkar. Við höfum ekki lögsögu yfir einstaklingum úti í samfélaginu sem hvorki starfa né sinna öðrum hlutverkum í knatt- spyrnuhreyfingunni og myndum því í slíkum tilvikum beina gögn- um til lögreglunnar.“ Hann segir ekkert eiginlegt reglu- verk vera til staðar fyrir netníðsmál sérstaklega innan KSÍ, en tók undir að það gæti verið gott skref í ljósi tíðinda af slíku netníði erlendis. „Það þarf kannski að skýra betur hvert skal leitað ef svona mál kemur upp fyrir leikmönnum, þegar fólk verður fyrir þessu. Það hefur komið upp umræða um einhvers konar leiðbeiningar fyrir samfélagsmiðla og þar væri hægt að hafa leiðbein- ingar um hvar væri hægt að til- kynna slík brot. Það gæti verið skref sem væri vert að skoða.“ Í aðdraganda leikja í stærstu deildum álfunnar er iðulega leikin auglýsing UEFA gegn kynþáttafor- dómum þar sem skærustu stjörnur knattspyrnuheimsins minna á að knattspyrna sé leikur án fordóma. Skilaboð auglýsingarinnar virðast ekki rata út fyrir völlinn því for- ráðamenn enska knattspyrnusam- bandsins í samstarfi við félög lands- ins sendu framkvæmdastjórum Twitter og Facebook, tveimur af stærstu samskiptamiðlum heims, áminningu um stöðu mála í vik- unni. Þrátt fyrir notagildi forritsins fyrir félög og leikmenn sé þarna að finna svæði þar sem einstaklingar komist upp með að segja hvað sem þeir vilja án afleiðinga. Yfirlýsingin kom degi eftir að Instagram til- kynnti hertar aðgerðir í garð þeirra sem væru staðnir að kynþáttafor- dómum gagnvart leikmönnum. kristinnpall@frettabladid.is Ekki til regluverk um netníð hjá KSÍ Félög í ensku úrvalsdeildinni hafa kallað eftir aðstoð samskiptamiðla við að stöðva netníð í garð leikmanna. KSÍ hefur ekki enn þurft að taka á slíku máli og er fyrir vikið ekki með eiginlega aðgerðaáætlun ef slíkt mál kæmi inn á borð sambandsins. Anthony Martial og Marcus Rashford hafa orðið fyrir netníði í formi kynþáttafordóma nýlega. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Við höfum ekki lögsögu yfir ein- staklingum úti í samfélag- inu sem hvorki starfa né sinna öðrum hlutverkum í knattspyrnuhreyfingunni og myndum því í slíkum tilvikum beina gögnum til lögreglunnar. Haukur Hinriksson, yfirlögfræðingur KSÍ NBA LeBron James nær þeim merka áfanga síðar á þessu ári að verða sjötti íþróttamaðurinn í sögunni sem nær að rjúfa milljarð talna múrinn í tekjum. Með því kemst LeBron í f lokk með knattspyrnu- mönnunum Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, hnefaleikakappanum Floyd Mayweather, kylfingnum Tiger Woods og körfuboltamann- inum Michael Jordan, en stór hluti tekna Jordan kom eftir að leik- mannaferlinum lauk. Í samantekt sem Forbes tók saman á dögunum kom fram að LeBron þéni um 95,4 milljónir dala á þessu ári, þar af 64 milljónir með auglýsingasamningum, sem ýtir honum yfir milljarð dollara þrösk- uldinn síðar á þessu ári. LeBron á tvö ár til viðbótar eftir af samningi sínum við Los  Angeles Lakers, sem ætti að færa honum 85 millj- ónir dala til viðbótar, en á þessu ári þarf hann, líkt og aðrir leikmenn deildarinnar, að gefa eftir tuttugu prósent launa sinna vegna áhrifa kórónaveirufaraldursins á tekju- streymi félaganna í NBA-deildinni. Tæp sjö ár eru síðan LeBron tjáði sig fyrst um að hafa það að mark- miði að verða milljarðamæringur í samtali við GQ og nokkrum árum síðar greindi einn helsti viðskiptafé- lagi LeBrons, Maverick Carter, frá áhuga körfuboltamannsins að eign- ast einn daginn lið í NBA-deildinni. Á þessum sjö árum sem liðin eru frá ummælum körfuboltamannsins um markmiðin að verða milljarða- mæringur hefur LeBron verið tekju- hæsti leikmaður deildarinnar öll sjö árin. Þar eiga veglegir auglýsingasamn- ingar sinn þátt en fyrir sex árum síðan samdi LeBron til lífstíðar við íþróttavöruframleiðandann Nike sem gæti fært honum allt að millj- arð dollara. Þá er hann með samn- inga við AT&T, Beats, Kia, Walmart og nýlegan samning við Pepsi eftir átján ára samstarf við Coca Cola. Þá hefur LeBron verið duglegur í fjárfestingum með góðum árangri utan vallar. Hlutdeild hans í enska knattspyrnuliðinu Liverpool hefur margfaldast á stuttum tíma líkt og hlutur hans í skyndibitakeðjunni Blaze Pizza. – kpt LeBron rífur milljarðamúrinn í ár Það er ekkert að hægjast á LeBron á átjánda tímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.