Fréttablaðið - 13.02.2021, Side 18
ÉG HEF ÞRISVAR SINNUM
ORÐIÐ ÁSTFANGINN
Á ÆVINNI. SVO HEFUR
MAÐUR AUÐVITAÐ ORÐIÐ
SKOTINN, OG LOSTINN
FARIÐ MEÐ MANN.
Að elska er ákvörð-unartaka. Að segja v ið einhver n „ég elska þig“ er ákvörð-unartaka, og það sama á við þegar við
hættum að elska. En að verða ást-
fanginn – það er geðveikisástand.“
Svona lýsir Bubbi Morthens ást-
inni fyrir manni sem stefnir á að
fagna Valentínusardeginum ein-
samall með upphitaðri máltíð og
Kung Fu-mynd.
„Að verða ástfanginn er líffræði-
legt ástand sem þú ræður ekkert við
þegar það kemur yfir þig,“ útskýrir
Bubbi. „Það hafa verið gerðar rann-
sóknir sem sýna fram á breytingu
á heilanum þegar fólk lendir í að
verða ástfangið og líkamsástandið
verður annað. Nánast má líkja því
við geðveikisástand. En það er erfitt
að lýsa alsælunni sem fylgir því að
verða ástfanginn.“
Þótt mannkynið hafi í aldanna
rás reynt að lýsa ástinni með alls
konar samlíkingum og frösum segir
Bubbi að henni verði varla komið í
orð. „Þegar maður verður ástfang-
inn þá get ég svarið það að grænt
verður grænna, fókusinn verður
skarpari, þú sefur betur og verst af
Ástin
er aldrei
gömul frétt
Bubbi Morthens fagnar ástinni í streymi
með sínum fimmtu árlegu Valentínusar-
dagstónleikum. Hann segir að þótt það sé
ákvörðunartaka að elska einhvern þá sé
það geðveikisástand að verða ástfanginn.
Bubbi Morthens heldur á morgun sína fimmtu Valentínusardagstónleika þar sem hann syngur bæði um klassíska ást og eins þegar ástarfleytan steypir á skeri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Arnar Tómas
Valgeirsson
arnartomas@frettabladid.is
öllu þá verðurðu algjörlega blindur
á galla þess sem þú ert ástfanginn
af.“
Örvadrífur Amors
Rétt eins og geðheilbrigði fólks er
misjafnt þá segir Bubbi ástina herja
misjafnlega á fólk. „Það er fólk til
sem er ástsjúkt – fólk sem er stöðugt
að leita að ímynd sinni um ástina
og hvað hún muni færa þeim. Þetta
verður einhvers konar þráhyggja.“
Þá eru ekki allir jafn berskjaldaðir
gegn örvadrífum Amors og það er
ekkert víst að allir verði ástfangnir
samkvæmt Bubba, sem þekkir ást-
ina vel eftir ítarlega rannsóknar-
vinnu sem og eigin reynslu.
„Ég hef lengi stúderað þetta fyrir-
bæri,“ segir hann. „Ég hef þrisvar
sinnum orðið ástfanginn á ævinni.
Svo hefur maður auðvitað orðið
skotinn, og lostinn farið með mann.
Og greddan!“
Kleinuhringir og sigin skata
Þótt Bubbi firri sig allri ábyrgð
þegar kemur að fyrirferð heilags
Valentínusar í íslenskum samtíma
hefur hann undanfarin ár staðið
fyrir tónleikum á Valentínusardag.
„Ég ákvað fyrir fimm árum síðan
að það væri möguleiki á að taka Val-
entínusardaginn út úr Ameríkunni
og reyna að setja íslenskan stimpil
á hann,“ segir hann. „Þar ætlaði ég
bara að syngja ástarlög sem ég hef
samið, bæði þessi klassísku eins og
Það er gott að elska, en líka lög eins
og Blindsker sem er ástarlag þótt
það fjalli um að ástarfleytan steyti
á skeri. Ég er ekki í þessum ramma
að þetta sé sykurhúðaður kleinu-
hringur. Það er líka sigin skata
þarna,“ segir hann og hlær.
Á tónleikunum segir Bubbi um
leið sögur um tilurð laganna ásamt
sigrum sínum og skipsbrotum í
ástarmálunum. „Ég vil segja bæði
frá gleðinni sem fylgir því að upp-
lifa ástina á besta veg og líka hyl-
dýpinu sem fylgir því þegar manni
finnst eins og ástin hafi kastað sér út
fyrir borð,“ segir hann. „Mér finnst
svo spennandi hvað það eru margir
vinklar á ástinni. Ég held nefnilega
að ástin geti aldrei orðið gömul
frétt. Hún er endalaust að koma
okkur á óvart.“
Flugsyndur í streyminu
Þar sem f jarlægðar viðmið og
fjöldatakmarkanir eru enn við lýði
fara tónleikarnir í ár fram í beinni
streymisútsendingu. Þetta eru
aðrir stóru tónleikarnir sem Bubbi
f lytur með þessum hætti, en hann
hélt nýlega Þorláksmessutónleika í
streymi. Hann segir fyrirkomulagið
vera ákveðna kúnst.
„Til að svona streymistónleikar
verði góðir, og þá meina ég A plús,
þá verður listamaðurinn sem er
að f lytja lögin sín að fá einhverja
svörun frá áhorfendum.“ Til að
mæta þessari þörf hefur Bubbi um
tuttugu og fimm manns úr hópi vel
valinna vina og vandamanna hjá sér
í salnum.
„Ég er þannig gerður að um leið
og ég fæ athygli og ég finn að það er
fólk að fylgjast með mér, þá rís ég
upp og verð allt annað,“ segir hann.
„Ég vitna stundum í Muhammed Ali
sem sagðist ekkert geta á æfingum
en væri langbestur í hringnum.
Fólkið heima finnur þá fyrir því að
þetta er af holdi og blóði.“
Ásamt Bubba koma einnig fram
Friðrik Dór, Jón Jónsson og GDRN,
sem munu f lytja nokkur vel valin
ástarlög.
Verðandi Seltirningur
Það eru breytingar fram undan hjá
Bubba, sem hefur búið um dágóðan
tíma í sveitadýrðinni í Kjós en flytur
í vor ásamt eiginkonu sinni, Hrafn-
hildi Hafsteinsdóttur, í þéttbýlið á
Seltjarnarnesi.
„Ég á mörg börn og þarfir þeirra
breytast hægt og rólega,“ segir hann.
„Ég hef verið að keyra að lágmarki
hundrað kílómetra á dag og það
kom að tímapunktinum að maður
hugsar með sér að þetta hafi verið
geggjaður tími en nú taki eitthvað
frábært við.“
Þótt miklar breytingar fylgi vissu-
lega f lutningunum horfir Bubbi
einungis fram á veginn.
„Þótt við lifum bara einu sinni,
þá lifum við mörgum lífum og
erum marglaga. Við eigum mörg
líf í þessu eina lífi. Það er svo fallegt
að meira að segja ungt fólk á strax á
unglingsárum annað líf en það sem
var. Núna tekur þessi kaf li við og
svo veit maður ekki neitt.“
Tónleikarnir verða aðgengilegir
í gegnum myndlykla Vodafone og
Símans, en einnig er hægt að kaupa
miða á streymið í gegnum tix.is.
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN