Fréttablaðið - 13.02.2021, Page 22
Á því móti fá aðeins atvinnumenn
þátttökurétt og enginn Íslendingur
hafði náð í atvinnumennsku.
„Þarna fór ég aftur í einhvers konar
þráhyggju og langaði að sanna að ég
gæti orðið best í heiminum.“
Hvað var dómarinn að hugsa?
Margrét hafði haldið sér á beinu
brautinni í tvö og hálft ár en var þó
alltaf, eins og hún orðar það, með
svipuna á bakinu og fannst hún
sífellt eiga að gera betur.
„Það var alltaf einhver keppandi
sem mér fannst f lottari en ég. Ég
var heimsmeistari í að líta vel út
en skoðaði myndir eftir keppni og
fannst til dæmis rassinn minn ekki
nógu flottur og hugsaði: „Hvað var
dómarinn eiginlega að hugsa að
leyfa mér að vera í fyrsta sæti?““
Margrét hefur lengi haldið úti
vinsælum Instagram reikningi og
var með í kringum 100 þúsund fylgj
endur. Hún segir niðurrifið oft hafa
komið til vegna neikvæðra ummæla
þar. „Þó svo að flestar athugasemdir
hafi verið á jákvæðu nótunum er
erfitt fyrir manneskju með brotna
sjálfsmynd að taka þessar neikvæðu
ekki inn á sig.“
Eftir heimsmeistaramótið var
Margréti boðið að gerast atvinnu
maður á vegum alþjóðlegu fitness
samtakanna IFBB sem meðal annars
Arnold Schwarzenegger keppti fyrir.
„Ég var svo stolt af mér að ná
svona langt.“
Fljótlega fór Margrét þó að merkja
breytingar á fitness heiminum.
„Mér fannst ekki lengur áhersla
á þetta heilbrigða útlit sem hafði
heillað mig. Ég þurfti að passa mig
virkilega á því að bæta ekki á mig
of miklum vöðvamassa. Ég fór að
verða hrædd við að lyfta en var þó
staðráðin í að halda mínu striki og
hélt mig við sama matarplan.“
Það var svo í undirbúningi fyrir
Arnold Classic, en það er stærsta
mót í heimi þar sem Margrét var í
fyrsta sinn að keppa sem atvinnu
maður, ein af fimmtán útvöldum
konum, að Margrét sá ekki árangur
erfiðis síns. Hún lækkaði ekki í
fituprósentu og orðar það sjálf svo
að þá hafi losnað einhver skrúfa.
„Ég sagðist tilbúin að leggja meira
á mig, taka brennsluæfingar og vigta
matinn minn enda lá mikið við. Ég
hugsaði með mér að ég gæti ekki
stigið á svið með flottustu konum í
heimi, sjálf spikfeit,“ segir Margrét
og hneykslast á eigin þankagangi.
„Ég fór að taka brennsluæfingar
alla morgna sem ég hafði aldrei gert,
lyfti á daginn, taldi hverja hitaein
ingu og borðaði minna en þjálfarinn
sagði mér að gera.“
Þróaði með sér aðra átröskun
Þarna þróaði Margrét með sér aðra
tegund átröskunar sem nefnist
orthor exia.
„Það snýst um að hafa fullkomna
stjórn á mataræði þínu. Orthorexiu
er hægt að f lokka á marga vegu en
snýst um þessa stjórn. Ég vissi ekki
að ég væri haldin átröskun, ég hélt
bara að þetta væri norm.“
Á þessum tíma hætti Margrét að
hitta fjölskyldu og vini en skrifaði
það alltaf á keppnirnar og fólk
sýndi því skilning.
„Ég forðaðist matarboð og afmæl
isveislur en síðustu árin var ég líka
bara orðin svo svöng og þreytt.
Þegar líkaminn er í lengi í svelti
ástandi fer hann að kalla meira
og meira á mat. Þetta kallast ofsa
hungur eða „extreme hunger.“ Ég
upplifði þetta oft um helgar þegar
ég mátti fá mér svindlmáltíð sem
breyttist svo í algjört stjórnleysi
og þróaði þannig með mér búlimíu
og kastaði þá annað hvort upp eða
refsaði mér með erfiðri æfingu.“
Þessu segir Margrét hafa fylgt mikil
skömm, enda hún atvinnumann
eskja í íþróttum sem hefði átt að
hafa stjórn.
„Ég hélt að allir aðrir keppendur
væru með þetta á hreinu og ég væri
ein svona veikgeðja en nú þegar ég
hef opnað mig um þetta á Instag
ram hafa fjölmargir fitness kepp
endur haft samband við mig og
sagst hafa upplifað nákvæmlega
það sama.
Hætti á blæðingum
Í kringum 2016 var ég upp á mitt
versta, tók brennsluæfingar kvölds
og morgna og borðaði lítið sem ekk
ert. Ef ég kleip í magann á mér var
það eins og að klípa í handarbakið
á einhverjum öðrum. Ég leyfði mér
ekkert að hækka í fituprósentu og
fór ekki á blæðingar í tvö og hálft ár.
Ég trúði því að ég gæti ekki eignast
börn, ég hafði aldrei notað getn
aðarvarnir en þó aldrei orðið ólétt
svo ég hafði ekki teljandi áhyggjur
af því að blæðingarnar hættu. Ég
sannfærði mig um að ég vildi hvort
eð er ekki verða ólétt því það myndi
eyðileggja líkama minn og hafði
hugsað mér að ættleiða.
Árið 2017 var Margrét ákveðin
í að hætta keppni, því þó hún nyti
þess alltaf að keppa var hún orðin
þreytt og fann ekki sömu löngun
og áður, en eftir að hún sigraði
keppni í Prag komst hún inn á Ms.
Olympia og ákvað að það yrði síð
asta keppnin. Hún keppti í fjórum
öðrum keppnum í undirbúningi og
þrátt fyrir sífellt lægri fituprósentu
var henni alltaf sagt að hún þyrfti að
vera skornari.
„Á keppnisferðalögum gekk ég í
marga klukkutíma á dag og borðaði
aðeins tófú og kirsuberjatómata í
hvert einasta mál.“
Á barmi hjartastopps
Margrét hunsaði merki líkamans
um að ekki væri allt með felldu og
þegar hún upplifði mikla vöðva
kippi og náladofa var hún viss um
að hún þjáðist af B12 skorti þar sem
hún var vegan.
„Ég var mjög slöpp og upplifði
skyndilega alla liti rosalega skæra
og hafði þjáðst af hjartsláttartrufl
unum í svolítinn tíma.“
Margrét bað um B12 sprautu á
heilsugæslunni en var send í blóð
prufu sem leiddi í ljós að hún var
með lífshættulega lágt kalíum í
blóði.
„Læknirinn sagðist vita um sjúkl
inga með meira kalíum í blóði sem
hefðu fengið hjartastopp. Þarna átt
aði ég mig á því að í öll þessi ár hafi
ég verið á barmi þess að fá hjarta
stopp.“ Þetta var henni ákveðið
áfall. „Mig langaði nefnilega aldrei
til að deyja, mig langaði bara að vera
ógeðslega grönn.“
Eftir að hún hætti keppni fór Mar
grét að huga betur að líkama sínum
og meðal annars þeirri staðreynd
að hún hafði ekki farið á blæðingar
í tvö og hálft ár.
„Mig langaði ekki að fórna heilsu
minni fyrir einhvern bikar. Það
fyrsta sem ég gerði var að viður
kenna að ég hefði enga stjórn lengur
og ákvað að þiggja alla þá aðstoð
sem mér byðist.
Fyrsta markmið mitt var að
komast aftur á blæðingar. Það var
margra mánaða bið á Hvíta band
inu en ég var ákveðin að vera ekki
í stjórnleysi þangað til ég kæmist
að. Ég fór á ákveðna 12 spora fundi
og horfði mikið á myndbönd af
stelpum sem voru að segja frá sínum
bata sem hjálpuðu mér mikið. Ég
þyngdist mjög mikið á stuttum tíma
en reyndi að fókusera ekki á það og
treysta því að líkaminn sæi um að
ná jafnvægi.“
Þegar Margrét komst að hjá Hvíta
bandinu hafði hún náð ákveðnum
bata en var enn föst í vissum ramma
um leyfilegar fæðutegundir. „Þar
var mér kennt að stíga inn í óttann
við vissar fæðutegundir og læra að
borða eitthvað sem ég hafði aldrei
leyft mér en þó langað í.“
Hélt hún gæti ekki eignast börn
Margrét stofnaði í framhaldi stuðn
ingshóp sem hittist einu sinni í viku.
„Þar tjáðum við okkur og sögðum
frá sigrum okkar. Með því að ein
beita mér að því að vera til staðar
fyrir aðra fór ég að hætta að pæla
svona mikið í sjálfri mér. Ég fór að
vera til staðar fyrir fjölskyldu mína
og er að reyna að bæta þeim upp
öll þessi ár sem ég var í mínu bulli.
Nú er ég dóttir, systir, vinkona og
kærasta. Ég er til staðar, áður var ég
aldrei til staðar.
Margrét kynntist sambýlismanni
sínum og barnsföður, Ingimari Elí
assyni, árið 2018. „Hann sagði að
honum hefði strax fundist ég fal
legasta kona sem hann hefði séð. Ég
var steinhissa enda hafði ég aldrei
verið þyngri.“
Ingimar átti eitt barn fyrir og
Margrét var fljót að segja honum að
líklega gæti hún aldrei eignast börn.
„Ég byrjaði aftur á blæðingum
sumarið 2018 og í byrjun var tíða
hringurinn óreglulegur en eftir
nokkra mánuði var ég farin að
upplifa miklar skapsveiflur sem ég
skildi ekki og Ingimar hvatti mig til
að taka óléttuprufu,“ Margrét var
viss um að það væri óþarft en tók
loks próf til að róa kærastann.
Niðurstaðan kom sannarlega á
óvart, jákvætt óléttupróf og sam
bandið aðeins sex mánaða gamalt.
„Sambandið hafði ekkert verið rosa
lega alvarlegt en varð þarna skyndi
lega mjög alvarlegt,“ segir Margrét
og hlær. Hún segir aldrei annað hafa
komið til greina en að eiga barnið.
„Ég vissi ekki annað en þetta væri
mögulega kraftaverk enda hafði ég
aldrei orðið ólétt áður.“
Margrét hafði strax samband
við sálfræðing Hvíta bandsins þar
sem hún sótti vikuleg viðtöl á með
göngunni. Meðgangan gekk vel og
sonurinn Elías Dagur kom í heiminn
í janúar á síðasta ári. Tilkoma hans
styrkti samband Margrétar við
líkama sinn. „Ég man eftir að hafa
litið í spegil eftir að hann fæddist og
horft á tóma bumbuna og línuna á
maganum og upplifað þessa miklu
ást á líkama mínum – sem fætt hafði
barn.“
Lokaði Instagram reikningnum
Margrét lokaði instagram reikningn
um sínum á þessum tíma. „Ég þurfti
að fá að syrgja gömlu Möggu, ég er
ekki lengur hún.“ Það hafði tekið á
hana að sjá fylgjendum fækka eftir
að hún hætti keppni. „Auðvitað átti
þetta ekki að hafa áhrif á mig en
þegar 100 manns hverfa á einum degi
hefur það undarleg áhrif.“
Margrét ákvað því að prófa að loka
reikningnum um skeið en opnaði
hann nýverið á öðrum forsendum.
„Mér finnst ég líka vita meira hver
ég er og mér hefur tekist að f letta
blaðsíðunni yfir í næsta kafla, ég
átti svo erfitt með það áður. Það er
gaman að fylgjast með konum af
öllum stærðum og gerðum birta
myndir af sér og hvetja til jákvæðrar
líkamsímyndar,“ segir hún að lokum.
Ef grunur er um átröskun er mikil-
vægt að leita til fagaðila svo sem
heimilislæknis. Hann metur þá
hvort ástæða sé til að senda beiðni
til átröskunarteymis Landspítalans.
Heimasíða teymisins er: https://
www.land s pitali .i s/sjuklingar-
adstandendur/teymi-/atroskunar-
teymi-landspitala/
Margrét birti þessar tvær myndir saman á Instagram. Á þeirri vinstra megin er hún langt leidd af átröskun og segir
í myndatexta að hún hafi aldrei verið sátt við þann líkama. Hægri myndin er ný og segist hún fyrst nú ekki velta sér
upp úr því hvernig hún líti út, svo lengi sem hún hugsi vel um líkama sinn muni hún líta út eins og hún eigi að gera.
Margrét var sannfærð um að hún gæti ekki eignast börn eftir að hún hafði ekki farið á blæðingar í tvö og hálft ár
vegna átröskunar. Elías Dagur er því sannarlega draumabarn en hann er nýorðinn eins árs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MIG LANGAÐI NEFNILEGA
ALDREI TIL AÐ DEYJA, MIG
LANGAÐI BARA AÐ VERA
ÓGEÐSLEGA GRÖNN.
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð