Fréttablaðið - 13.02.2021, Síða 24
Síðasta árið hafa tíu nem-endur af erlendum upp-runa tekið þátt í nýju verk-efni í Háskóla Íslands þar sem þeim er veittur stuðn-ingur í framhaldsskóla til
að undirbúa sig fyrir háskólanám.
Nemendur hittast þrisvar í mánuði
og fá öll sinn eigin mentor, eða leið-
beinanda.
„Það snýst um að styðja fram-
haldsskólanemendur með innflytj-
endabakgrunn til háskólanáms. Við
viljum stuðla að því að fjölbreyttari
nemendahópur komi í háskólann
og styðja við nemendur með inn-
f lytjendabakgrunn,“ segir Rakel
Ósk Reynisdóttir, fjölmenningar-
fulltrúi Háskóla Íslands.
Hún segir að verkefnið sé liður í
jafnréttisáætlun skólans og taki til-
lit til hærra hlutfalls innflytjenda í
samfélaginu en, árið 2020 voru
erlendir ríkisborgarar 13,5 prósent
mannfjölda á Íslandi samkvæmt
Hagstofu Íslands.
„Þetta snýst í raun um jafnrétti.
Jafna möguleika til náms og sam-
félagsþátttöku og atvinnulífs,“ segir
Rakel Ósk.
Þær Salvör Ísberg, verkfræðinemi,
og Sunneva Líf Albertsdóttir hafa
báðar verið leiðbeinendur í Spretti
síðasta árið og sjá fram á að halda
áfram þeirri þátttöku og jafnvel
taka að sér f leiri nemendur í einu.
„Við vorum valin inn í verkefnið
þannig að við myndum passa vel
við einn nemanda. Að áhugamál
pössuðu saman. Eitthvað sem við
áttum sameiginlegt. Við sjáum
svo um samverustund einu sinni
í mánuði þar sem við gerum eitt-
hvað skemmtilegt. Þau fá yfirleitt að
velja, krakkarnir og það er þá ekki
eitthvað sem tengist náminu,“ segir
Sunneva Líf.
Vilja vera jákvæðar fyrimyndir
Ungmennin mæta í málstofur þar
sem þau fá stuðning með námið.
Reglulega eru heimavinnuhópar
þar sem þau mæta með það sem þau
eru að læra hverju sinni og þurfa
aðstoð með.
„Við styðjum þau félagslega og
þetta snýst að miklu leyti um að
vera góð fyrirmynd,“ segir Sunn-
eva Líf.
Rakel Ósk tekur undir þetta og
segir að það að vera jákvæð fyrir-
mynd sé í raun stór hluti af verk-
efninu.
„Þau sjá að mentorunum gengur
vel í skólanum, í félagslífi og þannig
sýna þau nemendunum hvað gæti
orðið.“
Spurðar um hvernig verkefni þær
leysi með ungmennunum segja þær
að þau séu allskyns. Salvör tekur
dæmi um að einn nemandinn hafi
mætt með stærðfræðidæmi og að
stundum komi þau með ritgerðir.
Þær hafi tekið eftir því og heyrt hjá
börnunum að þeim finnist stundum
óþægilegt að þurfa að leita til kenn-
arans með dæmi eða námsefni sem
þá vantar aðstoð með, fyrir framan
hina nemendurna. Þá sé gott að geta
leitað utan skólans til mentorsins.
„Flestir muna eftir því í mennta-
skóla að hafa fengið mömmu eða
pabba til að lesa yfir ritgerð en
þarna ertu með nemendur þar sem
foreldrar þeirra tala kannski ekki
íslensku reglulega og þá er gott að
einhver annar geti lesið yfir,“ segir
Salvör.
Rakel Ósk segir að foreldrar allra
þeirra sem taka þátt séu af erlendu
bergi brotnir, að mörg þeirra eigi í
vandræðum með íslensku, hafi ekki
gengið í háskóla og hafi takmarkaða
reynslu af íslenska skólakerfinu. Því
geti þau oft ekki aðstoðað börnin
sín með heimavinnuna.
„Þess vegna finnst þeim gott að
geta komið til okkar,“ segir Rakel
Ósk.
Aðeins 22 prósent útskrifast
Hluti af verkefninu eru menningar-
legir viðburðir og er því reglulega
farið á söfn og leikhús og annað
slíkt. Þær segja misjafnt hversu
mikla reynslu ungmennin hafa af
slíku. Alveg eins og er með önnur
ungmenni.
„Þetta snýst líka um að hvetja þau
og styðja, bæði náms- og félagslega,“
segir Rakel Ósk.
Spurðar af hverju þær sóttu um
að vera mentorar segir Sunneva Líf
að hún hafi áður verið mentor í sál-
fræðinni, sem hún er að læra, og svo
hafi hún farið út sem skiptinemi til
Hollands og upplifað sig pínulítið
utangátta en að það hafi hjálpað
mikið að vera með mentor sem
skildi menninguna.
„Mér fannst mikilvægt að leggja
mig fram um að gefa til baka og
hjálpa öðrum. Mér þykir verkefnið
líka mjög mikilvægt. Af þeim nem-
endum af erlendum uppruna sem
hófu nám í menntaskóla árið 2010
útskrifuðust aðeins um 22 prósent
samkvæmt tölum frá 2017. Þetta er
svo lágt hlutfall,“ segir Sunneva Líf.
Salvör hefur áður verið sjálf-
boðaliði fyrir Rauða krossinn þar
sem hún sinnti heimanámsaðstoð
fyrir bæði íslensk börn og börn af
erlendum uppruna.
„Foreldrarnir eru oft ekki með
menntun. Ungmennin ætla sér
kannski bara að klára grunnskóla
og finna sér svo vinnu. Þau sjá bara
ekkert annað. Þannig að mig lang-
aði að hafa áhrif á það. Auk þess sé
ég alveg að í verkfræðinni er hópur-
inn mjög einsleitur og því þarf að
breyta,“ segir Salvör.
Þær telja allar að það gagnist öllu
samfélaginu ef atvinnumarkaður-
inn er fjölbreyttari og starfsstétt-
irnar sem þar eru.
Leita að 20 nýjum nemendum
Nú er verið að leita að 20 nýjum
nemendum til að hefja þátttöku
næsta haust og taka þátt næstu þrjú
árin. Ekki var hægt að taka inn alla
sem vildu síðast en þá voru aðeins
teknir inn tíu nemendur.
Reynt er að passa í pörun á nem-
endum og mentorum að þau eigi
sér einhver sameiginleg áhuga-
mál. Salvör og Sunneva Líf segja
báðar að það hafi auðveldað þeim
vinnuna í upphafi en telja þó að
þær gætu líklega fundið eitthvað
til að tala um þótt ekki hefði eins
mikið verið lagt í pörun.
Spurðar um áhrif verkefnisins
á ungmennin sjálf segja þær þau
margvísleg, bæði náms- og félagsleg.
„Mér f innst ég sjá á þeim að
þeim finnist þetta skemmtilegt
og að þau séu opnari fyrir frekara
námi og öðrum möguleikum. Þau
sjái annað fyrir sér en þegar þau
byrjuðu,“ segir Sunneva Líf.
Þær segja að þær telji að þetta
hafi líka opnað fyrir þeim hvers
konar nám er gott að fara í. Margir
hafi verið einbeittir á hefðbundnar
greinar eins og lögfræði en svo
núna líti þau einnig til verkfræð-
innar eða annarra raungreina.
„Þau fá nýjar hugmyndir og opna
hugann. Þetta er svolítið eins og
bekkur og þau kynnast því líka vel
innbyrðis. Sum eru orðin vinir,“
segir Rakel Ósk.
Nemendur sem taka þátt eru
studdir bæði félagslega og fjár-
hagslega. Þau geta sótt um sem eru
í 10. bekk, ætla í framhaldsskóla
næsta haust, hafa gaman af námi,
eru með innf lytjenda- eða f lótta-
mannsbakgrunn eða koma úr fjöl-
skyldu þar sem fáir eða enginn er
með háskólamenntun. Nánari upp-
lýsingar er að finna á hi.is/sprettur.
Tuttugu nemendur verða valin til
að taka þátt í fjögur ár, þar af þrjú í
framhaldsskóla og svo fyrsta árið í
háskólanum. Kynjaskipting verður
alveg jöfn. lovisa@frettabladid.is
Þetta snýst í raun um jafnrétti
Í Spretti í HÍ fá framhaldsskólanemendur af erlendum uppruna stuðning til að undirbúa þau fyrir háskólanám.
Þau fá öll sinn eigin mentor sem aðstoðar þau við heimavinnu og annað sem þau þarfnast aðstoðar við.
Á myndinni eru þær Salvör Ísberg, verkfræðinemi og mentor, Rakel Ósk Reynisdóttir, fjölmenningarfulltrúi HÍ og Sunneva Líf Albertsdóttir, sálfræðinemi, sem er mentor. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÞETTA SNÝST LÍKA UM AÐ
HVETJA ÞAU OG STYÐJA,
BÆÐI NÁMS- OG FÉLAGS-
LEGA.
Rakel ósk
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð