Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 52
Gulaþing 23. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 22. desember 2020 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 23 við Gulaþing.
Í gildandi deiliskipulagi lóðarinnar frá 2005 er gert ráð fyrir að á lóðinni verði byggt einbýlishús
á tveimur hæðum allt að 235 m2 að grunnfleti og 400 m2 að heildarflatarmáli að hámarki.
Flatarmál lóðarinnar er 696 m2 og nýtingarhlutfall 0,57 að hámarki. Miðað er við þrjú bíla-
stæði á lóð.
Í tillögu að breyttu deiliskipulagi er gert ráð fyrir að á lóðinni rísi parhús á tveimur hæðum,
Gulaþing 23a og Gulaþing 23b samtals 235 m2 að grunnfleti og 400 m2 að heildarflatarmáli.
Áætlað nýtingarhlutfall lóðarinnar verður 0,57. Bílastæðum fjölgar úr þremur í fjögur, tvö á
hvorri lóð. Ekki er gerð breyting á hæð hússins, mænishæð eða vegghæð. Að öðru leyti er
vísað til gildandi skipulagsskilmála.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags.
3. febrúar 2021. Nánar er vísað til kynningargagna.
Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er eftir
nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurning á starfsmenn skipulags- og
byggingardeildar Umhverfissviðs á netfangið skipulags@kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu
hafa borist skriflega til skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200
Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 13:00 föstudaginn 2. apríl
2021.
Skipulagsstjóri Kópavogs
Auglýsing um breytt
deiliskipulag í Kópavogi
kopavogur.is
Menningarsjóður Íslands og Finnlands
Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Íslands og
Finnlands. Sjóðurinn veitir árlega styrki til einstaklinga,
samtaka, félaga og stofnana vegna verkefna sem geta
orðið til að efla samskipti Íslands og Finnlands á sviði
menningar, lista, atvinnulífs og þjóðlífs almennt.
• Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna
verkefna sem eru fyrirhuguð á síðari hluta ársins 2021 og
fyrri hluta ársins 2022.
• Frestur til að leggja inn umsóknir um styrki úr sjóðnum
vegna þessa tímabils rennur út 31. mars 2021.
• Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku,
norsku, finnsku eða ensku.
• Einungis er hægt að sækja um rafrænt á:
www.hanaholmen.fi.
• Fyrirspurnir vegna umsókna má senda á:
fonderna@hanaholmen.fi
Frekari upplýsingar um Menningarsjóð Íslands og
Finnlands má finna á vef mennta- og menningarmálaráðu-
neytis og á vefnum www.hanaholmen.fi
Stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands.
Erum að leita að bókhaldsstofu fyrir ákveðinn viðskiptavin
til kaups að hluta eða öllu leyti.
Áhugasamir aðilar vinsamlega sendið póst á netfangið
sveinn@jural.is
Fullum trúnaði er heitið.
Bókhaldsstofa
óskast til kaups
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 28. Janúar 2021 að
auglýsa eftirfarandi skipulags tillögur.
Nýtt deiliskipulag fyrir móttökustöð úrgangsefna I-1
Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir móttökustöð úrgangsefna
á svæði I-1 auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að móttökustöð fyrir almenning og
aðkoma að svæðinu verði flutt á norðausturhluta svæðisins og
að aðstaða á vinnusvæðinu sé bætt með frágengnu yfirborði og
steyptum efnishófum. Einnig er gert ráð fyrir að húsnæði sorp-
vinnslustöðvarinnar geti stækkað til austurs. Svæði innan lóðar
með óröskuðu hrauni er ekki raskað.
Breytt deiliskipulag fyrir íbúðahverfi Áshamars ÍB-4
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi fyrir íbúarhverfi
Áshamars (ÍB-4), auglýst skv. 1. Mgr. 43. Gr. Skipulagslaga nr.
123/2010. Helstu breytingar á svæðinu eru ma. að bætt er við
lóð fyrir dreifistöð rafmagns og gerð er skilmálabreyting fyrir
hámarks stærð íbúða sem tilheyra raðhúsareitum.
Breytt deiliskipulagi hafnarsvæðis H-2 við Eiðið
vesturhluti.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæði (H-2)
við Eiði vesturhluti, auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Helstu breytingar eru að útbúin er ný byggingarlóð við
Kleifar 3a, sett eru inn tvö geymslusvæði fyrir Vestmannaeyjabæ
sem staðsett eru norður við skipalyftu og svæðismörk skipu-
lagsins eru færð til austurs.
Breytt deiliskipulagi hafnarsvæðis H-2 við Eiðið
austurhluti.
Um er að ræða breytingar á deiliskipulag hafnarsvæðis H-2 við
Eiðið austurhluti, auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Breytingarnar felast í að svæðismörkum skipulagsins
er einnig breytt og mörkin færð austar vegna nýrra lóða, að
vestur enda lóðamarka Kleifa 1 og Kleifa 6.
Skipulagsgögnin eru til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmda-
sviði Skildingavegi 5, frá og með 10. febrúar 2021 til og með
24. mars 2021 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveita-
félagsins (https://www.vestmannaeyjar.is/thjonusta/skipulag/
skipulagsmal-i-kynningarferli).
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér gögnin. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að
skila skriflega eigi síðar en 24. mars 2021 í afgreiðslu Umhverfis-
og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið
dagny@vestmannaeyjar.is
Umhverfismat vegna eldisstöðvar
Stofnfisks við Kalmanstjörn
Stofnfiskur hf. hefur áform um að auka framleiðslu
á laxi í eldisstöð fyrirtækisins við Kalmanstjörn,
Reykjanesbæ. Framkvæmdin er matsskyld
samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á
umhverfisáhrifum og hefur Verkís verið falið að
vinna matið.
Drög að tillögu að matsáætlun eru nú til kynningar
á heimasíðu Verkís; www.verkis.is, og á heimasíðu
Stofnfisks; www.stofnfiskur.is. Allir geta kynnt sér
drögin og lagt fram athugasemdir.
Frestur til athugasemda er frá 15. febrúar til 1. mars
2021.
Athugasemdir skal merkja „Fiskeldi við Kal-
manstjörn“ og senda með tölvupósti á netfangið
umhverfismal@verkis.is eða með bréfpósti á:
Verkís verkfræðistofa
B.t. Sigmars Arnars Steingrímssonar
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Hringvegur um
Hornafjarðarfljót
- kynningarfundur
Samvinnuverkefni um
samgönguframkvæmdir
Vegagerðin boðar til opins kynningarfundar þriðjudaginn
16. febrúar kl. 9:00–10:00 um fyrirhugað útboð á
samvinnuverkefninu „Hringvegur um Hornafjarðarfljót“.
Útboðið verður í samræmi við lög nr. 80/2020 um
samvinnu-verkefni um samgönguframkvæmdir og felur í
sér byggingu og fjármögnun mannvirkjanna auk reksturs
og viðhalds þeirra á samningstíma.
Um er að ræða nýja legu Hringvegarins um Hornafjarðar-
fljót sem mun stytta núverandi hringveg um 12 kílómetra.
Framkvæmdin felur í sér lagningu 19 kílómetra langs
þjóðvegar, byggingu fjögurra tvíbreiðra brúa, lagningu
nokkurra hliðarvega, samtals um 9 kílómetra langra, auk
tveggja áningarstaða.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist fyrir árslok 2021.
Fundinum verður streymt á síðunni:
livestream. com/accounts/5108236/events/9522144
Spurningum má koma á framfæri í gegnum síðuna
sli.do með því að slá inn kóðann #95714
16 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R