Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.02.2021, Qupperneq 75

Fréttablaðið - 13.02.2021, Qupperneq 75
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Mér finnst langskemmtilegast að læra gegnum leik, það gerist án þess að maður fatti það. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, Kristínar Guðmundsdóttur Sérstakar þakkir til starfsfólks Dynjanda á Hjúkrunarheimilinu Ísafold fyrir góða og hlýja umönnun. William Þór Dison Eðvarð Þór Williamsson Sigurbjörg Sigurðardóttir Stefanía Sif Williamsdóttir Óskar Þór Gunnarsson William Þór, Snædís Líf, Nökkvi Þór, Hrannar Þór, Elísa Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, Guðmundur Kristinsson skipstjóri, lést á heimili sínu mánudaginn 8. febrúar. Hann verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju föstudaginn 19. febrúar klukkan 13. Allir eru hjartanlega velkomnir svo lengi sem pláss leyfir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Umhyggju, félag langveikra barna. Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat. Olga Gunnarsdóttir Pétur Smári Richardsson Kristinn Þór Guðmundsson Friðrikka Auðunsdóttir Erlendur G. Guðmundsson Hildur Brynja Sigurðardóttir Sigurborg Kristinsdóttir Kári Valvesson og afabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og stuðning við andlát og útför okkar ástkæra Heiðars Árnasonar Southport, Englandi. Ouza Kwanashie Helena Rún Heiðarsdóttir Lucas Árni Heiðarsson Árni Ragnarsson Ásrún Guðmundsdóttir Laufey Árnadóttir Kristinn Harðarson Ingvar Árnason Sigríður Anna Ólafsdóttir Gauti Árnason Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Jóhanna J. Thorlacius hjúkrunarfræðingur, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 9. febrúar. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 24. febrúar klukkan 13. Allir eru hjartanlega velkomnir svo lengi sem pláss leyfir. Ólafur Þór Thorlacius Margrét Ó. Thorlacius Heimir S. Kristinsson Sigríður Elín Thorlacius Viðar Magnússon Þórdís Thorlacius Haukur Hafsteinsson Theodóra Thorlacius Valgeir Pétursson ömmubörn og langömmubörn. Elskulegur faðir minn, Steinar Freysson vörubifreiðastjóri, Mánatúni 2, lést 29. janúar á Landspítalanum Fossvogi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jón Freyr Steinarsson Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Ármanns Gunnarssonar Steinsstöðum, Akranesi. Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk Hjúkrunar- og dvalarheimilis Höfða og Heimahjúkrunar HVE fyrir hlýhug og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Helga Sólveig Bjarnadóttir Kristín Ármannsdóttir Guðgeir Svavarsson Gunnar Már Ármannsson Anna Kristjánsdóttir Bjarni Ármannsson Helga Sverrisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Ásta Heiður Tómasdóttir áður til heimilis að Rekagranda 5, Reykjavík, lést þriðjudaginn 9. febrúar á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 16. febrúar kl. 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Báruhrauns á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun. F.h. aðstandenda, Linda Guðný Róbertsdóttir Kjartan Heiðar Haraldsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Jóna Kristín Ólafsdóttir lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, þriðjudaginn 9. febrúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 19. febrúar kl. 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir útförina en streymt verður frá vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is Ólafur Rúnar Guðjónsson Hrafnhildur Geirsdóttir Valur Þór Guðjónsson Hulda Björg Birgisdóttir Bryndís Ólöf Guðjónsdóttir Júlíus Pétur Ingólfsson Smári Viðar Guðjónsson Sara Margrét Ólafsdóttir Garðar Heimir Guðjónsson Kristín Líndal Hallbjörnsdóttir Hugrún Olga Guðjónsdóttir Gústav Adolf Karlsson Kristín Mjöll Guðjónsdóttir Baldvin Bjarki Baldvinsson og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elín Bjarnadóttir kennari, frá Blöndudalshólum, Bólstaðarhlíð 41, lést á Droplaugarstöðum þann 8. febrúar. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju 19. febrúar klukkan 13. Sigurjón Hauksson Sigrún Hrafnsdóttir Bjarni Hauksson Laufey Hafsteinsdóttir Anna Ágústa Hauksdóttir Magnús Gissurarson Árni Guðmundur Hauksson Yoko Ozaki barnabörn og langömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Aðalheiður Ríkarðsdóttir lést á Landspítalanum miðvikudaginn 10. febrúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 19. febrúar kl. 15. Streymt verður frá útförinni. Höskuldur Höskuldsson Rakel Sara Höskuldsdóttir Guðbjartur Örn Gunnarsson Lea Ösp Höskuldsdóttir Elsa Guðbjartsdóttir Verkefni mitt var að vinna sýningu upp úr hinni f lottu bók Ránar Fly-genring um Vigdísi for-seta. Hún kom á réttum tíma, finnst mér. Vigdís er komin í hóp elstu kynslóðarinnar og það væri dapurlegt ef yngsta kynslóðin fengi ekki að upplifa kynnin við hana,“ segir Embla Vigfúsdóttir, hönnuður í bókasafninu í Gerðubergi. Hún kveðst hafa ákveðið að hafa sýninguna ekki of upplýsingahlaðna því foreldrar, afar og ömmur bæti svo miklu við þegar þau fara í gegnum hana með börnunum og segja frá sinni upplifun af Vigdísi og líf- inu í landinu. „Mér fannst líka gaman að flétta sögu þjóðarinnar í sýninguna. Útvarpið byrjaði á Íslandi árið sem Vig- dís fæddist. Sjónvarpið kom þegar hún var 36 ára, áður en hún varð forseti, svo landsmenn sáu hana þegar hún var í framboði. En á fimmtudögum var ekk- ert sjónvarp, bara hlustað á útvarpsleik- ritið.“ Vigdísarsýningin lenti í að vera lokuð lengi vegna veirunnar, eins og margt annað, en nú er búið að framlengja hana út mars. „Ég er voða ánægð með það, segir Embla. „En sýningin er máluð beint á veggina og það verður erfitt að mála yfir hana, því þá hverfur hún.“ Sérhæfð í spilahönnun Embla lærði vöruhönnun í Danmörku og sérhæfði sig í spilahönnun. „Þeir sem voru með mér í námi voru mest að gera tölvuleiki en ég var alltaf að hugsa um borðspil. Mér finnst sjálfri gaman að spila og spil nýtast í daglegu lífi, til dæmis í námi. Ég vann hjá spilahönn- unarfyrirtæki í Danmörku. Þar voru gerð spil fyrir atvinnuviðtöl, athugað hvernig fólk ynni undir pressu, hvernig það væri í samstarfi og slíkt. Mér finnst langskemmtilegast að læra gegnum leik, það gerist án þess að maður fatti það!“ Hún kveðst hafa gefið út eitt spil á Íslandi og er með eintak af því í Gerðu- bergi. „En ég nota líka kunnáttu í spila- hönnun í vinnu minni hér innanhúss, til dæmis í Okinu, sem er rými fyrir unglingana. Nú er búið að stækka það og bæta tilraunaverkstæði við þannig að þar myndast gott sköpunarrými.“ Vinnur með Ævari Þegar er byrjað að huga að næstu sýn- ingu í Gerðubergi eftir að Vigdísar- sýningunni lýkur um mánaðamótin mars/apríl. „Þá ætlum við að vinna með honum Ævari vísindamanni og gera bókasafnsráðgátu,“ lýsir Embla. „Það verður gaman.“ gun@frettabladid.is Spil nýtast í daglegu lífi Embla Vigfúsdóttir, hönnuður í bókasafninu í Gerðubergi, fékk frjálsar hendur er hún setti upp sýninguna Vigdís, sem hún segir verða erfitt að mála yfir í lok mars. Embla Vigfúsdóttir hönnuður segist kvíða því að horfa á eftir Vigdísarsýningunni af veggjunum í Gerðubergi. En svo komi Ævar vísindamaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35L A U G A R D A G U R 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.