Stefnir - 01.12.1984, Side 9
FRIEDMAN Á BLAÐAMANNAFUNDI
Friedman á
Blaðamannafundi
„Ég hef lœrlþaö á minni löngu œvi, uð það er miklu auðveldara að gefa góð ráð enfá aðra tilþess að fara eftirþeim. “
Dagana 28. ágúst til 2. september s.l. dvaldi
hér á landi bandaríski hagfræðingurinn
Milton Friedman ásamt konu sinni Rose
Friedman, sem einnig er hagfræðingur.
Milton Friedman hélt hér fyrirlestra í boði
Stofnunar Jóns Þorlákssonarog Viðskipta-
deildar Háskóla íslands. Eftirfarandi texti
er þýðing Hannesar H. Gissurarsonar á
fundi Miltons Friedman með íslenskum
blaðamönnum.
Hannes H. Gissurarson: Ég bið ykkur
hjartanlega velkomin til þessa blaðamanna-
fundar, með þeim Milton og Rose Friedman,
en þau eru hér á landi í boði Stofnunar Jóns
Þorlákssonar og Viðskipdadeildar Háskóla
íslands. Ég veit, að ég þarf ekki að kynna Fri-
edman fyrir ykkur, en hann er tilbúinn til að
svara spurningum ykkar.
Bogi Ágústsson, Sjónvarpinu: Hafið þér,
prófessor Friedman, eitthvað að segja okkur
um ísienska hagkerfið?Teljiö þértil dæmis, að
kenningar yðar geti átt við um eins lítið hag-
kerfi og hið íslenska, þar sem þær hafa orðið til
í miklu stærra hagkerfi?
Milton Friedman: Ef kenningar mínar eiga
ekki eins vel við um ísland og um Bandaríkin,
þá eru þær ekki fullnægjandi kenningar. Hag-
fræðin fæst við starfsemi einstaklinga, fyrir-
tækja, félaga og annarra eininga atvinnulífs,
og hana verður auðvitað að nota með öðrum
hætti með fámennri þjóð en fjölmennri, en
kenningarnar eru hinar sömu. En svo að ég
víki að spurningu yðar, hef ég ekki verið hér
nema : tíu klukkutíma, og sex þeirra hef ég
sofið! Það, sem ég veit um íslenskt atvinnulíf,
hef ég úr skýrslum og gögnum Seðalabanka
íslands, sem ég las í flugvélinni á leiðinni
hingað, og það nægir ekki til þess að segja
neitt um einstök atriði.
Bogi Ágústsson: Þér hafið með öðrum orðum
ekkert lausnarorð á reiðum höndum?
Milton Friedman: Nei, ég hef lausnarorðið
fyrirykkur íslendinga.
Bogi Ágústsson: Og megum við fá að heyra
það?
Milton Friedman: Þetta orð er frelsi! Það hefur
reynst nytsamlegra en flest annað til þess að
leysa úr málum. Atvinnulíf ykkar er mjög smátt
í sniðum, og líklega er frelsið ykkur enn nauð-
synlegra en fjölmennari þjóðum. En ég skal
nefnaykkureittdæmi. íslenska ríkið rekureina
sjónvarpsstöð og eina útvarpsstöð, sem
sendir út átveimur rásum. Þaðfrelsi, sem ég er
að tala um, hefði í för með sér, að upp risu
útvarps- og sjónvarpsstöðvar í eigu einstakl-
inga, sem kepptu síðan hverjir við aðra um hylli
hlustenda. ísland er auðvitað lítið land, svo að
hér væri ekki svigrúm fyrir margar slíkar
stöðvar. En hér mætti þó að minnsta kosti reka
fleiri útvarpsstöðvar en þær tvær, sem eru í
eigu ríkisins.
Guðmundur Magnússon, Morgunblaðinu:
Prófessor Friedman, sumir saka yður um að
ganga erinda efnamanna með kenningum
yðar. Hvernig svarið þérslíkum ásökunum?
Milton Friedman: Þær eiga ekki við nein rök
að styðjast. Markaðskerfið er mikilvirkasta
tækið, sem enn hefur fundist til þess að breyta
fátæklingum í efnafólk. Sannieikurinn ersá, að
hvergi er meiri munur á bestu og verstu lífs-
kjörunum en í löndum samhyggjumanna.
Miklu meiri munur er á lífskjörum valdsmanna
og venjulegs fólks í Ráðstjórnarríkjunum, að
þjóðin skiptist í fámennan forréttindahóp og
fjölmenna undirstétt, sem býr við óskaplega
eymd. Þetta sjáum við hvergi, þar sem atvinnu-
lífið er sæmilega frjálst. Ef við ætlum að virða
fyrir okkur muninn á markaðskerfi og mið-
stjórnarkerfi í þessu tilliti, þá þurfum við ekki að
gera annað en fara til Hong Kong og bera það
saman við Kína. Sannleikurinn er sá, að í
markaðskerfinu getur fólk aðeins efnast með
því að bjóða fram þjónustu, sem öðrum kemur
að notum. Það getur ekki efnast með því að
seilast í vasa náungans. En það, sem ein-
kennir á hinn bóginn ríkið, er, að þar er verið að
eyða annarra manna fé. Og þetta fé er fengið
með því að seilast í vasa náungans. Þess
vegna segi ég það, að samhyggjumenn ganga
í rauninni erinda forréttindahópanna, en frjáls-
hyggjumenn og stuðningsmenn markað-
skerfisins hafa þá hugsjón, að allir eigi að fá
tækifæri.
Jónas Guðmundsson, NT: Má ég vekja máls
á öðrum ásökunum, sem á yður hafa verið
bornar? Því er viða haldið fram, að kenningar
yðar hafi reynst illa í framkvæmd, til dæmis í
Chile, ísrael og Bretlandi. Verðbólga er að
STEFNIR
9