Stefnir - 01.12.1984, Qupperneq 28
AÐALFUNDUR HEIMDALLAR
Aðalfundur Heimdallar
Aöalfundur Heimdallar var haldinn þann 15.
september síðast liöin. Þrátt fyrir prentara-
verkfall og blaðaleysi var fundurinn vel sóttur.
Fundarstjóri var Geir H. Haarde formaður
Sambands ungra sjálfstæðismanna. í skýrslu
fráfarandi stjórnar kom fram að starfið var að
mestu með hefðbundnum hætti á síðasta
starfsári. Útgáfustarf skipaði sem fyrr veg-
legan sess í starfinu. Nýr Skóli, sem er blað
sem dreift er í alla framhaldsskóla landsins,
kom tvisvar út á árinu, gefið var út smáritið
„Ósýnilega höndin" og ferðamálarit var gefið
út síðast liðið sumar.
Sigurbjörn Magnússon var endurkjörinn
formaður Heimdallar, en aðrir í stjórn voru
kjörnir: Baldvin Einarsson, Benedikt Bogason,
Drífa Hilmarsdóttir, Eiríkur Ingólfsson, Elín
Hirst, Gísli Gíslason, Hákon Örn Arnþórsson,
Kristján B. Ólafsson, Rósa Guðbjartsdóttir,
Sigurbjörn Þorkelsson og Þór Sigfússon.
Á fundinum var samþykkt stjórnmálaálykt-
un. í henni segir meðal annars:
„Aðalfundur Heimdallar haldinn 15. sept-
ember 1984 lýsir yfir fullum stuðningi við
stefnu núverandi ríkisstjórnar. Núverandi )
ríkisstjórn tók við þrotabúi síðustu vinstri
stjórna.
Verðbólga var komin yfir 130% og
stöðvun atvinnulífsins blasti við. Ríkis-
stjórnin greip þegar til markvissra aðgerða,
sem nú hafa skilað ótvíræðum árangri,
komið verðbólgunni niður í 15-20%, haldið
gengi stöðugu til hagsbóta fyrir alla almenn-
ing. Þá hefur náðst að tryggja fulla atvinnu
þrátt fyrir aflabrest og minni þjóðartekjur.
Ríkisstjórnin hefur auk þessa beitt sér fyrir
stórfelldum breytingum á mörgum sviðum,
auknu frelsi í banka- og gjaldeyrisverslun,
afnámi verðlagshafta og niðurfellingu hins
óréttláta ferðamannaskatts. Gjörbreyting
hefur orðið í stóriðjumálum og ástæða er til
að fagna sérstaklega nýgerðum álsamningi
sem allt bendir til að sé íslendingum ákaf-
lega hagstæður. Enn fremur leika nú ferskir
vindar um ráðuneyti menntamála. Þessi
árangur er þó ekki nægilegur. Nauðsynlegt
er að ná verðbólgunni enn frekar niður og
hefja nýja sókn í atvinnumálum þjóðarinnar
svo auka megi framleiðni og verðmæta-
sköpun, en einungis þannig er hægt að
bæta lífskjör fólksins í landinu."
„Heimdallur leggur sem fyrr áherslu á ein-
staklingsfrelsi og frjálst markaðskerfi.
Útflutningsverslunina þarf aö gefa frjálsa,
hverfa verður frá því steinrunna ríkisinn-
kaupakerfi sem nú tíðkast um ol íuinnkaup til
landsins. Verslun með grænmeti og kart-
öílur verði gefin frjáls. Sömuleiðis verði
verslunarálagning og opnunartími verslana
gefinn frjáls. Horfið verði frá ríkisverndaðri
einokun í verktakastarfsemi á Keflavíkur-
flugvelli. Setja þarf lög gegn einokun og
hringamyndun og fella brott samkeppnis-
hömlur hvar sem þær er að finna í efnahags-
lífinu.
Heimdallur hefur ætíð barist gegn því að
ríkið sé að vasast í rekstri sem betur er kom-
inn í höndum einstaklinga. Fyrir síðustu
kosningar eins og svo oft áður gaf Sjálf-
stæðisflokkurinn stór loforð um sölu á ríkis-
fyrirtækjum. Lítið hefur orðið um efndir, ef
undan er skilin vaskleg framganga iðnaðar-
ráðherra. í nýgerðri verkefnaáætlun ríkis-
stjórnarinnar er gert ráð fyrir stofnun eignar-
haldsfyrirtækis sem á að hafa með höndum
eignir ríkisins í atvinnufyrirtækjum. Heim-
dallur leggur mikla áherslu á að megintil-
gangur þessa fyrirtækis sé að auðvelda sölu
ríkisfyrirtækja og fyrirtækja sem ríkið á hlut-
deild í.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð talið sig
merkisbera þeirra sem vilja sem minnst
íþyngja borgurunum með opinberum
afskiftum og skattheimtu. Heimdallurfagnar
því fyrirheiti sem fram kemur í nýgerðri verk-
efnaáætlun ríkisstjórnarinnar, að afnema
skuli tekjuskatt af öllum almennum launa-
tekjum en lýsir jafnframt yfir vonbrigðum
sínum með að hér skuli ekki vera um að
ræða allsherjarafnám tekjuskattsins. Alls-
herjarafnám tekjuskattsins er raunhæfasta
kjarabótin eins og ástandið er í þjóðfélaginu
í dag. Heimdallur minnir ennfremur á að
sumir hinna svokölluðu vinstri stjórnar
skatta, sem lofað var að afnema, eru enn í
fullu gildi og að ekki er komið í framkvæmd
hið gamla stefnumál flokksins um að heimili
skuli skattlögð jafnt, hvort sem fyrirvinnan er
ein eða fleiri.
Það hefur lengi verið eitt af meginatriðum
í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins, að ein-
staklingum sé gert kleyft að eignast sitt eigið
húsnæði. Fyrir síðustu kosningar boðuðu
báðir stjórnarflokkarnir að stefnt skyldi að
80% lánshlutfalli með fjármagni frá Hús-
næðisstofnun ríkisins. Því fer fjarri að það
markmið hafi náðst þótt vissulega hafi
miðað í áttina. Þannig hefur lánshlutfallið
hækkað úr 19% í tíð síðustu ríkisstjórnar í
29.1 % nú. Við það bætist, að lán til einstak-
linga hafa hækkað meira og útgreiðslum
flýtt, sem hlýtur að koma þeim sérstaklega
vel sem eru að byggja í fyrsta skipti. Heim-
dallur leggur áherslu á að markvisst verði
unnið að því á næstunni að styrkja hús-
næðislánakerfið. Heimdallur fagnar því að
Sjálfstæðisflokkurinn barðist einn flokka á
Alþingi gegn því að leiguréttarfélögum eins
24
STEFNIR