Blik - 01.04.1948, Side 35
B L I K
31
Eyjatíðindi
LANDAKIRKJA
Hér fæddust á s.l. ári 91. barn,
46 sveinbörn og 45 meybörn. 56
börn fermdust, 30 sveinar og 26
rneyjar. Samtals dóu 28 manns,
11 karlkyns og 17 kvenkyns.
Vígð voru af presti 33 hjón, en
4 stofnuðu borgaralegt hjóna-
band.
26 barnaguðsþjónustur fóru
fram í kirkjunni og sóttu 252
börn guðsþjónustu að meðaltali
eða samtals allt árið 6553 börn.
Samtala kirkjusóknarinnar við
hádegismessur er svipuð og mun
að meðaltali hafa komið til
hverrar messu 160 manns.
Próf III. b. nem. hófst 2. maí
og lauk 23. s. m.
Miðskólapróf hófst 16. maí, því
lauk 31. s. m.
Skólaslit fóru fram í Samkomu
húsi Vestmannaeyja 23. maí með
samdrykkkju nemenda Og kenn-
ara, og gesta þeirra.
Við skólaslit afhenti skóla-
stjóri skólanum þjóðfánann úr
silki, sem Þorsteinn Einarsson í-
þróttafulltrúi og fjölskylda hans
höfðu gefið skólanum til minja
unr kennslustörf Þorsteins við
skólann um 7 ára skeið.
Vestmannaeyjum, 16. júlí 1947
Þorsteinn Þ. Víglundsson
Formaður söngkórs kirkjunnar
er frú Sigurbjörg Asta Sigurðar-
dóttir, Oddgeirshólum. Söngstj.
er Ragnar G. Jónsson. Söngur
kórsins þykir takast með mestu
prýði.
Kvenfélag Landakirkju hefir
innt af hendi mikið og merkilegt
starf. A síðastliðnu ári lét það
steypa garð umhverfis lóð Landa
kirkju. Formaður þess félags er
frú Lára Kolbeins.
Þá hefur sóknarnefndin gert
sitt til að hlynna að kirkjunni
og gera hana vistlegri. Á s. I. ári
lét hún steypa gólf í han'a og
mála alla. Formaður sóknar-
nefndar er Páll Eyjólfsson, forstj.
Sjúkrasamlags Vestmannaeyja. —■
Kirkjuna málaði Engilbert Gísla
son málarameistari.
GAGNFRÆÐASKÓLINN
Við síðastliðin áramót námu
hinir ýmsu sjóðir skólans samtals
kr. 13004,57. Sú upphæð skiptist
þannig:
Minningarsjóður Þór-
unnar Friðriksdóttur
frá Löndum kr. 2235,68
Minningarsjóður Herm.
Guðmundssonar frá Há-
eyri 1892,96
Minningarsjóður
Hauks Lindbergs 3068,05
Smásjársjóður 705,00