Blik - 01.04.1948, Qupperneq 36
32
B L I K
Ferðasjóður nem. 657,00
Blaðsjóður skólans 2267,68
Umbótasj. skólans 2178,20
Samtals: 13004,57
Sjóðir þessir eru geymdir í
Sparisjóði Vestmannaeyja og Út-
vegsbanka Vestmannaeyja.
1. desember s. 1. héldu nem-
endur Gagnfræðaskólans ársfagn
að sinn.
1. febrúar s. 1. minntust nem-
endur bindindisstarfs og bind-
indishugsjónar æskulýðsins. Skól-
inn hafði boðið stúkunum Báru
og Sunnu að senda sér gesti í til-
efni dagsins. Þessir góðtemplarar
sátu bindindisfund nemenda:
F. h. Báru nr. 2. Séra Halldór
Kolbeins og Óskar Jónsson. F.h.
Sunnu nr. 204, hjónin Árni J.
Johnsen og Margrét Johnsen.
28. febr. s. 1. héldu nemendur
glímudansleik í skólanum, hinn
fyrsta í sögu Gagnfræðaskólans.
10. marz s. 1. héldu nemendur
skólans almenna skemmtun í
Samkomuhúsi Vestmannaeyja til
tekna fyrir Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna. Til skemmtunar:
Leikfimi, söngur, kvikmyndasýn-
ing, gítarleikur, kvæðaþáttur og
danssýning. Aðsókn var ágæt og
voru Barnahjálpinni afhentar
kr. 3100,00. Þá var allur kostnað-
ur greiddur.
ÍBÚATALA Eyjanna vi'ð s. 1.
áramót var 3476 manns alls, eða
1718 karlar og 1758 konur.
ÁFENGISNEYZLA í Eyjum
nam s. 1. ár um kr. 1 millj. og
500 þús. kr.
SPARISJ. VESTMANNAEYJA.
Inn- og útborganir námu s. L
ár 14 millj. 185 þús. kr.
SAMGÖNGUR
Flugfélagið Loftleiðir flutti
5636 farþega milli Vestmanna-
eyja og Reykjavíkur á s. 1. ári.
Flutningur farþega nam 44.379
kg. Póstur 1669 kg. Flugtími
samtals 665 klst. 750 sinnum
lentu flugvélar félagsins á vellin-
um hér; oftast Kristinn Ólsen
flugmaður eða 260 sinnum.
Flugfélag íslands hóf fastar
flugferðir milli Vestmannaeyja
og Reykjavíkur 8. júlí f. á. Flug-
vélar þess fluttu 2516 farþega
milli Reykjavíkur og Vestm.-
eyja. Flutningur farþega nam
24.306 kg. Póstur 6058 kg. Ann-
ar flutningur 453 kg.
ÞÓR (vi'ð Árna): „Ég skal
veðja við þig, að þú skalt ekki
geta stokkið yfir stafinn minn,
þó að ég leggi hann á gólfið.
ÁRNI: Já, ég þori að veðja.
ÞÓR: Hverju viltu veðja?
ÁRNI: Einum dansi við
Döddu.
ÞÓR: Ég geng áð því.
Síðan lagði Þór stafinn sinn
á gólfið fast upp við vegginn og
Árni tapaði veðmálinu.