Bæjarins besta - 03.09.1997, Side 1
Smiðjan í
Smiðjugötu
og smiðirnir
í húsinu
Bæjarins besta
Miðvikudagur 3. september 1997 35. tbl. 14. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
Vestfirðir
Básafell hefur
mestan kvóta
Básafell hf., á Ísafirði er
kvótahæsta vestfirska útgerð-
arfélagið á nýbyrjuðu fisk-
veiðiári. Heildarkvóti fyrir-
tækisins er 7.355 þíg. tonn,
sem er 1,67% af heildarkvóta
ársins. Básafell er í 11. sæti
yfir kvótahæstu fyrirtæki
landsins samkvæmt úttekt
Morgunblaðsins, en efst á
þeim lista trónir Samherji hf.,
á Akureyri með 25.084 þíg.
tonn, eða 5,69% af heildar-
kvóta fiskveiðiársins sem
hófst 1. september sl.
Skutull ÍS-180 er kvóta-
hæsta skip Vestfirðinga sam-
kvæmt úttekt Morgunblaðsins
með 3.831 þíg. tonn, þá kemur
Páll Pálsson ÍS-102 með
3.617 þíg. tonn og Guðbjörg
ÍS-46, sem margir eru hættir
að telja til vestfirskra skipa,
er með heildarkvóta upp á
3.532 þíg. tonn. Heildarkvóti
nýbyrjaðs fiskveiðiárs er
440.713 þíg. tonn. Sjá nánar
frétt á bls. 2.
Vestfirðir
Íbúum fækkar
á Vestfjörðum
Íbúum Vestfjarða fækkaði
um 132 fyrstu sjö mánuði
ársins samkvæmt upplýsing-
um sem blaðið hefur aflað sér
frá Hagstofu Íslands. Svo
virðist sem straumurinn liggi
á höfuðborgarsvæðið því þar
hefur íbúum fjölgað um 686 á
sama tímabili. Mesta fólks-
fjölgunin er í Kópavogi sam-
kvæmt upplýsingum Hagstof-
unnar, en þangað fluttu 487
manns umfram brottflutta.
Íbúum Suðurlands virðist
hafa fækkað mest það sem af
er árinu eða um 181 umfram
aðflutta og munar þar mest
um fækkun íbúa í Vestmanna-
eyjum. Á Norðurlandi vestra
fækkaði íbúum um 141 og á
Suðurnesjum og á Vesturlandi
fækkaði íbúum um 49. Sjá
nánar frétt um búferlaflutn-
inga landsmanna á bls. 2.
Fimmtíu og níu fleiri einstaklingar fluttu frá Ísafjarðarbæ
fyrstu sjö mánuði ársins en til bæjarins.