Börn og menning - 01.04.2007, Side 10

Börn og menning - 01.04.2007, Side 10
Börn og menning Ármann Jakobsson Útlegðin og smábarnið 60 ára Stubbur Flestar bækur sem ég kyrmtist á leikskólaaldri gleymdust hratt en ég man þó ennþá eftir sjálfum mér sem fimm ára lesanda Tinnabókanna, Selsins Snorra og Skemmtilegu smábarnabókanna. Þar sem börn eru talhlýðin fannst mér Skemmtilegu smábarnabækurnar skemmtilegar, enda kom það fram I heiti þeirra. Þær höfðuðu þó misvel til mín. Ekki Bláa kannan sem fjallaði ef ég man rétt um könnu sem brotnaði vegna heimskupara sinna og ekki veit ég enn hvaða lærdóm átti að draga af. Öðru máli gegndi um bókina um Tralla sem fór I stórfiskaleik við kóngsdóttur og þótti leikskólabarninu það skemmtilega bíræfið. Svo var Láki sem flestum börnum stóð stuggur af en hannvar heillandi þó að hann væri skuggalegur, eins og illskan almennt. Sagan um Stubb var sú fjórða í þessum bókaflokki. Mig minnir að við höfum tekið þessum bókum sem nýjum. Söguvitund barna á þessum aldri er líklega heldur óþroskuð. Síðan velta þau þessum æskufélögum ekkert fyrir sér meir en þegar betur er að gáð kennur í Ijós að Stubbur kom út á íslensku rétt eftir seinna stríð, þegar mamma mín var barn. Þetta mun vera dönsk saga en um það skeytti markhópur Stubbs ekki heldur neitt. Ég geri fastlega ráð fyrir að börn fædd eftir aldamótin 2000 taki bókinní um Stubb ennþá sem nýlegri sögu. Sextugsafmæli í ár fagnar Stubbur sextíu árum á íslenskum bókamarkaði. Sagan kom fyrst út árið 1947. Síðan hefur hún verið endurútgefin sjö sinnum, á 4-11 ára fresti. Margar kynslóðir íslenskra barna hafa alist upp við Stubb. Má leiða getum að því að yfirgnæfandi meirihluti íslendinga undir sjötugu þekki þessa bók og hún tengi saman langömmur og smábörn. í Danmörku kom hún fyrst út árið 1943, Stubbur hét á frummálinu Strit (sem vísar líklega til hárgreiðslu titilpersónunnar) en höfundarnir voru Bengt Janus Nielsen (1921- 1988) og Grete Janus Hertz (1915-2002). Vilbergur Júlíusson endursagði hana á íslensku. Þau Nielsen og Hertz skrifuðu seinna Kim-bækurnar vinsælu undir dulnefninu Jens K. Holm og Danir þekkja Nielsen einnig sem höfund glæpasögunnar Doden kommer til middag (sem Erik Balling kvikmyndaði árið 1964). Systkinin Bengt og Grete Það skiptir kannski máli hér að þau Bengt og Grete eru systkini. Sagan um Stubb snýst Stubbur er ekki stór. einmitt um átök milli systkina - tveggja eldri bræðra og eins yngri, eins og iðulega í ævintýrunum. Stubbur er fimm ára en á tvo bræður sem eru átta ára og heita Óli og Pétur. Aðrar persónur skipta ekki máli þó að mamma bræðranna sjáist einu sinni á mynd, boldangskvenmaður. Óli og Pétur níðast stöðugt á Stubbi. Þeir vilja ekki gefa honum epli eða hleypa honum með sér í skólann og þegar þeir fá ný föt nota þeir tækifærið og hæðast að Stubbi. Ævinlega er glæpur hans sá sami: Að vera lítill. Á hinn bóginn atvikast

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.