Börn og menning - 01.04.2007, Qupperneq 23

Börn og menning - 01.04.2007, Qupperneq 23
Súperamma í sumarfríi 21 Brynja Baldursdóttir Súperamma í sumarfríi Björk Bjarkadóttir er að góðu kunn sem barnabókahöfundur sem bæði semur sögurnar og myndskreytir. Amma fer í sumarfrí er sjötta bók Bjarkar og þriðja sagan um súperömmu og barnabarnið hennar, hann Óla. Áður hafa komið bækurnar Leyndarmálið hennar ömmu árið 2003 og Amma og þjófurinn í safninu árið 2004. Bókina prýðir litskrúðug kápa sem sýnir ömmu og strákhnokka svífa á skýi á leið til sumars og sólar. Þau þurfa ekki hefðbundna flugvél þar sem amma er súperamma sem getur flogið. Bakgrunnur kápunnar er mildur Ijósblár litur og sólin skin. Björk leikur sér með liti og letur í titli, stafirnir eru misstórir og hoppa til og frá. Á bakhlið kápunnar má sjá fólk að leik í sjónum við sólarströnd. Þegar bókin er opnuð blasa við saurblöð sem gefa litlu barni möguleika á heilmiklum umræðum um hvað þarna sé að finna og til hvers megi nota hluti á borð við fötur og skóflur, krossfiska og ís í kramarhúsi. Þegar horft er á titilsíðu blasir við önnur hlið á ömmunni, þar er hún reiðubúin að takast á við ill öfl é borð við steliþjófa enda byrjar sagan á því að amma er steinuppgefin eftir mikinn eltingarleik við glæpagengi. Myndir sem segja sögu Eins venja er í ríkulega myndskreyttri barnabók er textinn í minnihluta og myndir þekja stóran hluta hverrar opnu. Ekki má vanmeta söguna sjálfa en myndirnar segja svo miklu meira, þær eru svo mikilvægur hluti að barnið í kjöltunni nýtur sögunnar betur og bætir mörgum atriðum við hana. Sagan um ömmu í sumarfríi gengur út á enn eitt afreksverk þessarar kröftugu konu. Hún notar alla sína hæfileika til að leysa vandamál tengd vasaþjófum á sólarströnd. Þar býr hún að þeirri kunnáttu að geta flogið um loftin blá án annarra hjálpartækja en fluggleraugna. Höfundur notar bogadregnar línur í umhverfisteikningum jafnt sem á mannslíkamann. Hvassir olnbogar sjást varla og fætur ömmu og Óla eru í fallegum sveig þegar þau eru á lofti. Annars eru fótleggir manna yfirleitt frekar mjóslegnir og virðast skrölta inni í hólkvíðum buxum. Skýin sem svífa um loftin blá eru skemmtilega köntuð og ólík venjulegum skýjum. Skýin hennar Bjarkar hafa líka þann eiginleika að vera þétt í sér og geta borið fólk uppi. Oft er sjónarhornið beint framan á viðfangsefnið en víða eru myndir þar sem lesandi horfir niður á viðfangsefnið. Sem dæmi má nefna mynd á sjöttu opnu en þar horfir lesandi niður á bakarann í bakaríinu, viðskiptavinina og bakkelsið sem er í boði. Á næstu opnu er horft niður á ströndina þar sem sumir sólarþyrstir strandgestir reyna að ná í sem mest af fallegum lit á meðan aðrir ergja sig yfir vasaþjófum sem láta greipar sópa um eigur þeirra. Einnig er skemmtileg mynd af ömmu og Óla á áttundu opnu, þarfljúga þau eins og fuglar og horfa niður á milli hárra húsa og fólkið á jörðu niðri er eins og litlar pöddur. Fjölbreytt litadýrð Björk sparar ekki litadýrðina og raðar saman hinum ólíklegustu og fjölbreytilegustu litum. Glæpagengið á fyrstu opnu er í mjög litskrúðugum peysum og buxum, öfugt við aðra glæpaflokka sem klæðast jafn dökkum litum og hægt er. Einn er ( fjólublárri peysu og bláum buxum, annar í rauðri peysu og dökkbláum buxum. Þarna gefst möguleiki á að ræða við barnið um litina og kenna því pínulítið í leiðinni. Björk leikur sér ekki bara með liti og línur, hún fer höndum um letrið og stækkar sum orð svo þau verða afar áberandi á síðunum. Með því að stækka einstaka orð næst fram spenna í sögunni og lesandi eða hlustandi

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.