Börn og menning - 01.04.2007, Qupperneq 40

Börn og menning - 01.04.2007, Qupperneq 40
38 Börn og menning Þrátt fyrir að ekki séu lengur skólagjöld í ríkisreknum grunnskólum þurfa börnin að vera í skólabúningum og sjá sér sjálf fyrir t.d. stílabókum og pennum, og það reynist ófáum malavískum fjölskyldum ofviða. Brottfall úr grunnskólum er því mikið, ekki síst meðal stúlkna. íslensk aðstoð í Chirombo er ríkisrekinn grúnnskóli, Namazizi, en hann hefur m.a. notið stuðnings Þróunarsamvinnustofnunar íslands. Skólinn þykir vel rekinn og börn þaðan hafa náð sæmilegum árangri við að komast áfram í menntaskóla, en bestu nemendunum úr hverjum árgangi er boðin skólavist í menntaskólum. Skólagjöld eru í alla menntaskóla bæði rfkis- og einkarekna sem þýðir að margir góðir námsmenn heltast úr lestinni af fjárhagsástæðum. En í skólum á borð við Namazizi læra börn almennar námsgreinar, þau læra opinber tungumál Malaví, chichewa og ensku, stærðfræði, samfélagsfræði og landbúnað. Einhverjum þykir sjálfsagt einkennilegt að í grunnskóla séu börn í tímum í landbúnaði, en það stafar af því að í Malaví er landbúnaður og akuryrkja uppistaða alls og allt að því hver einasta fjölskylda i landinu er með sinn litla landskika þar sem ræktaður er maís, sem er helsta fæða íbúanna. í Namazizi og mörgum öðrum grunnskólum landsins fá börnin hádegisverð í skólanum í boði World Food Programme. Nýverið hófst samstarf íslenskra stjórnvalda og World Food Programme undir yfirskriftinni „Börn hjálpa börnum". Það felst í því að hvert barn á íslandi gefur einu barni í Malaví og Uganda skólamáltíð. Þau fá vitaminbættan maísgraut sem eldaður er í stórum tunnum í „eldhússkýli" á skólalóðinni. Börnin koma með disk og skeið að heiman og fá þarna mikilvæga næringu í dagsins önn. Þessar skólamáltíðir koma í veg fyrir vannæringu og hvetja foreldra til að senda börnin í skólann. Leikur og lífsbarátta Barnæskan í Malaví er um margt ólík því sem gerist á Vesturlöndum. Malavísk börn bera mikla ábyrgð og þau kynnast fljótt erfiðum hliðum lífsbaráttunnar. En Ifkt og börn annars staðar finna þau leiðir til að leika sér og njóta þess sem umhverfið býður. Oft er ótrúlegt að sjá hvað þau geta fundið sér til dundurs og hversu mikið er hægt að gera úr litlu eða nánast engu. Börnin í Malaví skemmta sér vel í sínum æskuleikjum og eru upp til hópa glöð og dugleg. Það hefur verið okkur ómetanleg lífsreynsla að kynnast lífinu og fá tækifæri til að fylgjast með og taka þátt í lífi fólks bæði í borg og þorpi í Malaví. Höfundur er verkefnisstjóri hjá Þróunarsamvinnustofnun ístands í Maiavi

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.