Börn og menning - 01.04.2007, Blaðsíða 31
Einu sinni átti ég gott
29
verður vinsælasta platan á heimilinu, en það
er allavega búið að biðja þrisvar um að fá að
heyra þarna, karlinn og kerlinguna og
Leppalúða og prestinn ..."
Óður til vitleysunnar
Ég held að öll börn séu heilluð af rími og þvf
fjarstæðukenndara sem það er því betra.
Karl og kerling
riðu á alþing
fundu tittling
og stungu í vettling ...
Og svona heldur þulan áfram lengi vel og
verður bara vitlausari og skemmtilegri.
Ég veit ekki hvað kom yfir fólkið sem
fann hjá sér heilaga hvöt til að endurbæta
Jólasveinar ganga um gólf, af því þeir skildu
ekki „Upp á stól stendur mín kanna",
útkoman varð allavega lítt skiljanlegri en
minnti mann alltaf pirrandi mikið á þá
tilhneigingu til að ógilda mikilvægi hins
órökrétta og furðulega. Það er nefnilega
ekkert sem fóðrar ímyndunaraflið og þroskar
sköpunargáfuna eins vel og vönduð vitleysa.
Gömlu þulurnar urðu til á staðnum til að
mæta eftirspurn eftir afþreyingu, spunnar upp
án takmörkunar rök- eða formhugsunar. Þær
eru frábær þjálfun í minni, abstrakt hugsun
og málþroska og hafa mikið skemmtanagildi.
Nú mætti kannski halda að Einu sinni átti ég
gott innhéldi ekkert annað en vitleysisleirburð
og öfugmæli en því fer fjarri. Fjölbreytnin er
mikil, allt frá smábarnagælum og vísum sem
eiga t.d. að kenna börnunum hvað dýrin
heita og hvaða hljóð þau gefa frá sér, til
kvæða með göfugum siðferðisboðskapi og
stuttum sögum.
Allir í þulugerð!
Allir sem hafa einhvern áhuga á því úr
hvaða jarðvegi við erum sprottin og á
hvaða menningargrunni við byggjum,
barnamenningu, uppeldi, tónlist og kveðskap
almennt hljóta að taka útgáfu eins og Einu
sinni átti ég gott með miklum fögnuði. Þetta
er stór pottur af verðmætum efniviði sem
hægt er að sækja í og nýta sér á margvíslegan
hátt. Ég held að það ætti líka að stuðla að því
að endurvekja þulugerð. Þulur eru örugglega
frábær leið til að þjálfa skapandi hugsun hjá
börnum og reyndar væri fólki á öllum aldri
örugglega hollt að reyna sig við þetta sígilda
form. Efnistök eru frjáls, formið er frjálst,
hugurinn er frjáls og það eina sem þarf
að vanda sig við er að sleppa fram að sér
beislinu. Útkoman hlýtur að verða eitthvað
óvænt og ef vel tekst til skemmtilegt. Hver
veit svo nema þulusmiðurinn uppskeri að
launum óskipta athygli, hæfilega aðdáun og
jafnvel kærkominn aðhlátur. Uppskriftir til
hliðsjónar má allvega finna í Einu sinni átti
ég gott.
Höfundur er tónlistar- og
handritshöfundur