Börn og menning - 01.04.2007, Síða 18

Börn og menning - 01.04.2007, Síða 18
16 Börn og menning Flestar þessara bóka mundi maður ætla að væru mannskemmandi í svarthvítri heimsmynd sinni og stórkostlegri einföldun á góðu og illu. Flinum síðastnefndu sköpunarverkum Lindgren og Jansson þar sem þessi einföldun er víðs fjarri - kynntist ég of seint til að hamla á móti þeirri heimsmynd á mestu mótunarárunum. Ég held reyndar að ég hafi lesið MacLean, Desmond Bagley, Flammond Innes, Sven Hassel, Louis Masterson og fleiri góða löngu áður en ég lagðist í drepfyndna tilvistarkreppu Múmínálfana og margræðan heim Ástríðar hinnar sænsku. Held meiraðsegja að ég hafi kynnst Agöthu Christie og ýmsum hennar útsmognustu morðingjum áður en ég komst að því að Hemúllinn væri hættur að safna frímerkjum, meiraðsegja áður en ég vissi að hann væri að safna frímerkjum yfirleitt. Agöthu, Poirot og piparjónkunni Marple kynntist ég nefnilega tólf ára gamall í sveit austur á Héraði, og það á dönsku. Blóði drifin bókmenntaæska Já, bókmenntaleg æska mín var blóði drifin og svarthvít - með örfáum undantekningum, því ég las auðvitað allan andskotann annan meðfram þessum ósköpum. Enda ólæknandi bókaormur, kannski það hafi orðið mér til bjargar. Millý Mollý Mandýtil dæmis- kannski sú stelpuskotta, í sínum rauðdoppótta kjól, hafi búið í haginn fyrir uppbyggileg áhrif þeirra Línu, Emils, Múmínsnáðans og Míu litlu á sálartetur mitt síðar meir? Nú eða Kalli kaldi og félagar hans, sem spruttu úr penna Indriða Úlfssonar og voru til alls vísir - jafnt hrekkja sem hetjudáða. Kalli kaldi var nefnilega prakkari, brallarioggrallari, sem var litinn óhýru auga af hinum fullorðnu sem valdið höfðu, en reyndist auðvitað réttsýnn, heill og sannur þegar á reyndi Og í litlu, hjartahreinu snótinni Millý Mollý Mandý birtist kokkteill erkibreskrar íhaldssemi og sænskrar sósíaldemókratíu og húmanisma - að minnsta kosti í minningunni. Heile Welt kalla þýskir þetta fyrirbæri, þar sem öll vandamál leysast farsællega í fögru og heilbrigðu umhverfi og allir fá köku og kakó í lokin eða þarumbil, jafnvel þótt þröngt sé í búi. Það á jafnt við um Kalla kalda sem Millý Mollý Mandý. Stórskrítnir menn - einsog Brjálaði túlípaninn - reynast hinar mestu hetjur, og jafnvel hrekkjusvínin sjá að sér áður en yfir lýkur. Man ekki betur en að í meinlitlum ævintýrum hinnar doppóttu snótar hafi meiraðsegja sígaunar reynst hið ágætasta fólk þegar til kom, eftir að þeir höfðu verið grunaðir illilega um græsku. En kannski er það misminni, kannski var þetta bara fólk sem einhverjir héldu að væru sígaunar, en reyndist síðan sómakærir Englendingar og allt varð gott. En það varð alltjent allt gott að lokum, svo mikið man ég þó fyrir víst. Það á reyndar við um allar þessar bækur sem hér hafa verið taldar upp. Munurinn liggur eingöngu í eðli og umfangi vandræðanna sem á undan gengu - og uppruna þeirra sem ollu þeim. Hörundsdökkir ódæðismenn Sígaunar - eða tatarar einsog þeir voru oft kallaðir í íslenskum þýðingum á bókum Enid Blyton - eru fyrirferðarmiklir í minningunni um ódæðismenn ýmiskonar. Og reyndar útlendingar af öllu tagi. Iðulega hörundsdökkir, dökkhærðir og illilegir andskotar, örum settir með miklar augabrúnir og skakkan munn. Oftar en ekki svarteygðir með ygglibrún, ósjaldan skakkar tennur að auki. Allavega þeir fullorðnu. Þeir sem ekki voru útlendingslegir voru í það minnsta afbrigðilegir á einhvern hátt. Styttri, lengri, luralegri, yggldari, feitari eða horaðri en eðlilegt mátti teljast. Einstaka sinnum reyndust nokkurnveginn normal og jafnvel vinalegar, góðlegar manneskjur vera hin verstu fól þegar á reyndi og það var alltaf jafnmikið sjokk. Oft mátti reyndarfinna börn meðal tatara, útlendinga og innfæddra í framandi löndum sem voru hin bestu skinn, það man ég vel. En þau voru nær undantekningarlaust barin eða kúguð á einhvern hátt af fullorðnum meðlimum sama slektis. Rétt einsog dýrin - en tatatar og útlendingar eru víst oft vondir við dýr. Enda reyndust bæði börn og dýr þessara illyrmislegu útlendinga traustir bandamenn hugumprúðra hetjanna og skirrðust hvergi við að svíkja foreldra sína og húsbændur ef það mátti verða hávöxnum, bráðgerum og myndarlegum Vesturlandabúum að gagni. Góðlátlegt yfirlæti eða illkvittnisleg fordæming Hið sama á reyndar líka við um marga helstu, fullorðnu bandamenn þeirra Franks og Jóa, Nancyar, Bob Morans og fleiri. Þar var oft um „innfædda" að ræða; asíska, afríska, suður-amerfska en umfram allt einfalda, hjartahreina og hugdjarfa einstaklinga, sem þráttfyrir eigin einfeldni sáu í gegnum fláráða landa sína og sem vissu að hagsmunum þeirra var betur borgið með því að aðstoða hina upplýstu, frelsandi, Ijóshærðu og blá- eygðu engla en því að leggjast í duftið fyrir kúgurunum, löndum sínum. En hjátrúin var samt aldrei langt undan hjá þessum innfæddu/útlensku hjálparhellum, og fáfræðin reið ekki við einteyming - sem oftar en ekki kom sér giska vel fyrir hetjurnar, þegar að er gáð. Og þegar upp er staðið er góðlátlegt yfirlæti jú engu skárra en illkvittnisleg fordæming. Engin skaðleg áhrif? Samt slapp ég - held ég. Einhvernveginn slapp ég við xenófóbíuna, einhvernveginn sannfærðist ég aldrei um yfirburði hins hvíta og vestræna kynstofns, einhvernveginn þroskaðist ég til þess, sem ég af dæmigerðum hroka hins vestræna velferðarmenntamanns vil kalla víðsýni og umburðarlyndi. Sem ég af dæmigerðri minnimáttar- og sektarkennd

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.