Börn og menning - 01.04.2007, Page 30

Börn og menning - 01.04.2007, Page 30
28 Börn og menning tónlist Margrét Örnólfsdóttir Einu sinni átti ég gott - og nú eigum við það alltaf! Þar sem við nútímafólkið erum smám saman að þróa með okkur minnisleysi, síminn man fyrir okkur símanúmer ættingja og vina og tölvan man allt annað sem við þurfum að muna, þá er mikil blessun þegar einhver tekur það að sér fyrir mann að grafa upp, safna saman, flokka og varðveita mikilvæga hluti, sem hvorugt þessara tækja geymir. Og þegar svona mikilli og merkilegri rannsóknarvinnu er siðan komið á aðgengilegt form verður maður að vera óendanlega þakklátur. Ég er hér að vísa til útgáfu Smekkleysu og Árnastofnunar, Einu sinni átti ég gott, sem hefur að geyma tvo geisladiska og myndskreytta textabók með gömlum barnagælum, þulum, fælum, bænum og sögum. Þessi útgáfa rýkur að mínu mati beint inn á skyldueignalista hvers heimilis og uppetdisstofnunar, ásamt Vísnabókinni, Eninga Meninga, Ómari Ragnarssyni, Hrekkjusvínunum og Dýrunum i Hálsaskógi, svo einhver sígild meistaraverk úr barnadeildinni séu nefnd. Beint samband við fortíðina Þegar ég hlustaði (fyrsta sinn á þetta safn, eru engar ýkjur að það fór um míg eldgamall sæluhrollur. Ég hef í seinni tíð oft bitið mig í hnúana fyrir að hafa ekki lagt betur á minnið það sem ég heyrði f æsku, þegar ég átti því láni að fagna að umgangast fólk sem fæddist öðru hvoru megin við aldamótin 1900, í meira mæli en nú. Það voru miklar töfrastundir þegar einhver með djúpan sarp og ró þeirra sem hættir eru að keppast við lífið, gáfu manni óskiptan tíma sinn og fóru með ýmislegt sem þeir kunnu utanbókar síðan þeir voru sjálfir börn. Mér fannst á þessum gæðastundum eins og ég fengi beint og áþreifanlegt augnablikssamband við löngu liðna tíma, án nokkurra annarra hjálparmeðala en raddar og minnis sögu- eða kvæðamanneskjunnar. Þessi kennsluaðferð er víst mikið til að deyja út, því miður. En þess þá heldur verður maður hoppandi glaður yfir útgáfu eins og Einu sinni átti ég gott. Er þetta eitthvað skemmtilegt? Útgáfa eins og þessi hefur auðvitað óumdeilanlegt varðveislu- og fræðslugildi, og ekki er síður mikilvægt að upptökunum, sem flestar eru um 40 ára gamlar, af flutningi fólks sem fæddist öðru hvoru megin við aldamótin 1900, skuli hafa verið bjargað frá gleymsku og glötun. En hefur Einu sinni átti ég gott það sem við köllum almennt skemmtanagildi?Geturfjölskyldansestsaman og hlustað og heillast? Fá börn „Einu sinni átti ég gott-æði"? Komast endaleysuþulur og öfugmælavísur aftur í tísku? Ég ákvað að gera lævísa tilraun og notaði litlu börnin mín, 2ja og 4ra ára, sem tilraunadýr. Framkvæmd tilraunarinnar var með eftirfarandi hætti: Ég setti diskinn í spilarann og settist niður með bókina, sem ekki má gleyrma að minnast sérstaklega á því hún er svo stór og skemmtilegur þáttur í útgáfunni, með frábærum myndskreytingum Halldórs Baldurssonar og stendur auk þess algerlega fyrir sínu ein og sér, líkt og gamla Visnabókin. En aftur að tilrauninni, fyrst hljómuðu raddir tveggja systra, Ásgerðar og Guðfinnu Gísladætra, sem rauluðu samtóna á hógværan hátt, morgunbænina alkunnu „Nú er ég klæddur". Enn fékk ég að sitja óáreitt við vfsindaathuganir mínar, bænin var ekki beinlínis að æra áheyrendur. En það átti eftir að breytast snögglega. ( kjölfarið fylgir Leppalúðakvæði sem Gísli Gíslason mælir fram á röggsaman hátt. Og við það eitt að heyra nafn hins alræmda fjölskylduföður voru litlu forvitnu eyrun glaðvöknuð og sperrt. Frá og með kvæði 2 sat ég semsagt með tvo gríslinga í fanginu, sem blöðuðu fram og aftur í bókinni, spurðu út úr, átu upp skringileg orð og flissuðu yfir spaugilegum hugmyndum. Engar umkvartanir um að þetta væri leiðinlegt, vantaði undirspil eða að flytjendurnir væru ekki nógu hipp og kúl. Bara ósvikinn áhugi á því að heyra og læra eitthvað „nýtt", sem er samt alveg eldgamalt. Tíminn leiðir í Ijós hvort þetta M

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.