Börn og menning - 01.04.2007, Qupperneq 42

Börn og menning - 01.04.2007, Qupperneq 42
Bðrn og menning Sögusteinn I Norrænu barnabókaverðlaunin 2007 Sögusteinn er nafn á nýjum barnabókaverðlaunum sem IBBY á íslandi hefur sett á fót með rausnarlegum fjárstuðningi Glitnis. Sögusteinn er heiðursverðlaun fyrir veigamikið framlag til íslenskra barnabókmennta. Hlutgengir til verðlaunanna eru jafnt rithöfundar, myndlistarmenn og þýðendur og verður fyrsti Sögusteinninn veitturáDegi barnabókarinnar, 2. apríl 2007. Þriggja manna nefnd, skípuð bókmenntafræðingunum Önnu Heiðu Pálsdóttur og Ármanni Jakobssyni og rithöfundinum og myndlistarkonunni Rögnu Sigurðardóttur, valdi fyrsta verðlaunahafann. Upphæð verðlaunanna eru 500.000 krónur en að auki fær verðlaunahafinn fallegan verðlaunagríp til eignar. Anna Þóra Árnadóttir, grafískur hönnuður, hannaði Sögusteinsmerkið og verðlaunagripinn. SÖGUSTEINN í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir að sögusteinn finnist í maríuerluhreiðri í maí. Skal maður bera hann á sér í blóðugum hálsklút og láta hann í hægra eyra þegar maður vill verða einhvers vísari af honum; segir hann þá allt sem maður vill vita. Okkur sem sitjum í stjórn IBBY fannst vel við hæfi að nýju barnabókaverðlaunin fengju nafn þessa visku- og galdrasteins. í okkar huga er það ekkert annað en galdur hvernig góð barnabók getur án nokkurrar fyrirstöðu leitt börnin inn í annan heim þar sem til dæmis dýr tala, leikföng lifna við og fólk flýgur um himingeiminn. Við erum líka þakklát þeim sem hafa þá visku til að bera að nýta hæfileika sína til að auðga bókmenntalíf barnanna okkar. IBBY hefur í rúm tuttugu ár reynt með ýmsu móti að styðja og styrkja barnamenningu á (slandi. Það er okkur í stjórn félagsins sönn ánægja að bæta Sögusteini á verkefnalistann og færum við Glitni bestu þakkir fyrir að gera okkur þetta kleift. Við trúum því að Sögusteinn eigi eftir að verða listafólki hvatning til að sinna barnabókmenntum af krafti og við vonum að sá hópur sem það gerir muni stækka til muna. Félag skólasafnskennara hefur tilnefnt Brynhildi Þórarinsdóttur til Norrænu barnabókaverðlaunanna 2007, en verðlaunin verða afhent í júlí. Brynhildur er tilnefnd fyrir bækurnar Njálu, Eglu og Laxdætu þar sem hún endursegir þessar þekktu íslendingasögur á skemmtilegan og aðgengilegan hátt og veitir börnum og unglingum innsýn í heim fornsagnanna. Persónur stíga Ijóslifandi fram og fróðleiksmolar um sögusvið og sögutima auka á gildi verkanna. Bækurnar veita kærkomið tækifæri til að kynna sagnaarf íslendinga og dómnefnd Félags skólasafnskennara telur þær afar verðugt framlag til norrænna barnabókmennta. Brynhildur er fædd 1970 og starfar við Háskólann á Akureyri. Hún er M.A. í íslenskum bókmenntum, lauk kennslu- réttindanámi árið 2005 og hefur skrifað skáldsögur og smásögur fyrir börn og unglinga og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. íslensku barnabókaverðlaunin 2004 fyrir Leyndarmál Ijónsins, Vorvinda IBBY 2003 fyrir Njálu, og verðlaun fyrir smásögu í samkeppni Félags móðurmálskennara. Hún er bæjarlistamaður Akureyrar júní 2006 - maf 2007. Danir tilnefna Nils Hartmann og Dorte Karrebæk fyrir bókina / Guder. Um er að ræða sögur úr norrænni goðafræðinni endursagðar við hæfi yngstu lesenda. Myndskreytingar Karrebæk eru í senn litríkar og frumlegar og texti Hartmann skýr og auðskilinn og hentar vel til upplestrar. Færeyingar tilnefna Olav og Sonja Schneider fyrir bókina Heystsuita. Þetta er myndabók úr færeysku sveitasamfélagi nútímans og sýnir ferlið sem er í kringum sauðfjárslátrun, allt frá smölun til rúllupylsugerðar. Megináherslan er þó á börnin sem taka þátt í öllu og leitast er við að svara spurningum barna. Myndirnar eru svart/hvítar og stuttur texti við hverja mynd, rammaður inn af tveimur kvæðum í upphafi og lok bókar. Af hálfu Noregs er Arne Svingen tilnefndur fyrir Svart elfenben. Sögumaður, sem er unglingur, fer með afrískum vini til Abidjan á Fílabeinsströndinni þar sem borgarastríð geisar. Mikið reynir á vináttu unglinganna tveggja en í Ijós kemur að vinurinn hefur á barnsaldri verið hermaður í landi þar sem börn læra að drepa áður en þau læra að hjóla eða lesa. Christina Herrström frá Svíþjóð er tilnefnd fyrir bókina Tusen gánger starkare. Bókin fjallar um Signe sem er 15 ára og ein af þeim ósýnilegu í bekk þar sem Mimi er ókrýnd drottning og ræður lögum og lofum meðal stelpnanna. Strákarnir fá hins vegar að ráða í skólastofunni, með stuðningi kennaranna. Ný stúlka kemur í bekkinn en hún hefur siglt um heimsins höf og ber með sér viðhorf sem ógna ríkjandi skipulagi. Norrænu barnabókaverðlaunin eru heiðursverðlaun sem samtök norrænna skólasafnakennara standa að. Þau hafa verið veitt um árabil og þrisvar verið veitt (slendingum. Árið 1992 hlaut Guðrún Helgadóttir þau fyrir bókina Undan illgresinu, 2003 komu þau í hlut Kristínar Steinsdóttur fyrir bókina Engill í Vesturbænum og 2005 hlaut Ragnheiður Gestsdóttir þau fyrir höfundarferil sinn með sérstakri áherslu á Sverðberann. Fulltrúi íslands og formaður dómnefndar í ár er Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir, skólasafns- kennari í Langholtsskóla. Guðlaug Richter

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.